Fréttablaðið


Fréttablaðið - 15.08.2013, Qupperneq 24

Fréttablaðið - 15.08.2013, Qupperneq 24
15. ágúst 2013 FIMMTUDAGUR| TÍMAMÓT | 22TÍMAMÓT Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli og útfarir má senda á netfangið timamot@365.is. Auglýsingar á að senda á auglysingar@frettabladid.is eða hringja í síma 512 5000. „Við erum báðir sagnfræðingar og höfum því smá orðspor að verja og verðum að gera þetta vel á þessum tímum þjóðmenningar. Ætli það megi ekki líta svo á að við séum að bregðast við kalli ríkisstjórnarinnar, sem vill blása í lúðra varðandi alla sögumiðlun og sögukennslu. Spilið gæti því orðið þjóðmenningarlegasta möndlugjöf sem sögur fara af,“ segir sagn fræðingurinn Stefán Pálsson, sem gefur út borð- spil um Íslandssöguna fyrir jólin næstu ásamt kollega sínum, Ragnari Kristins syni. Stefán segir Íslandssöguspilið, sem kemur út í nóvember, byggja á þeirri hugmynd að Íslandssagan sé skemmti- leg og þetta sé góð leið til að miðla henni. „Þetta er ekki spurningaspil, svo ekki verður um það að ræða að sögu- fróði afinn mali alla keppinauta sína, heldur geta allir keppt á jafnréttis- grundvelli og innbyrt fróðleik í leið- inni. Keppendur fara í gegnum söguna með spilamönnum og teningum og draga meðal annars spil sem senda þá fram og aftur um Íslandssöguna. Svo geta keppendur tekið áhættu og veðjað á atburði sögunnar, eða brugðið fæti fyrir keppendurna. Eineltis þátturinn er mikilvægur í þessu spili eins og í öllum góðum borðspilum,“ útskýrir Stefán og hlær við. „Þarna er allt fullt af vígalegum víkingum, misyndisfólki og vinalegu sauðfé og keppendur geta valið að vera allt frá Axlar-Birni til Magnúsar Stephensen.“ Stefán segir þá Ragnar, en þeir námu sagnfræði saman í Háskóla Íslands, muna vel eftir gamla Söguspilinu sem gefið var út á áttunda áratug síðustu aldar. Aðspurður segir hann það spil gott og gilt fyrir sinn hatt en þó afar karlmiðað. „Konurnar hafa verið fremur andlitslausar í sögubókum og við þurftum því að ganga í það verkefni að gera þær sýnilegar í spilinu. Spilið okkar endurspeglar kannski aðra sögu- sýn en gamla spilið,“ segir Stefán. kjartan@frettabladid.is Sagnfræðingar sem hafa orðspor að verja Sagnfræðingarnir Stefán Pálsson og Ragnar Kristinsson senda frá sér borðspil um Íslands söguna fyrir jólin næstu. Stefán segir að líta megi svo á að þeir séu að bregðast við kalli ríkisstjórnarinnar um aukna sögumiðlun- og kennslu. SAGNFRÆÐINGUR Stefán Pálsson segir gamla Söguspilið, sem kom út á áttunda áratugnum, endurspegla aðra söguskoðun en nýtt borðspil þeirra Ragnars Kristinssonar. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Okkar elskulegi ANDRI VATNAR RÚRIKSSON lést á heimili sínu að Sólheimum 21b föstudaginn 9. ágúst sl. Útförin fer fram frá Langholtskirkju föstudaginn 16. ágúst nk. klukkan 15.00. Rúrik Vatnarsson Sigríður Sigurðardóttir Harpa Helgadóttir Dagbjört Sigurbergsdóttir Sigurberg Rúriksson Lilja Rúriksdóttir Dagbjört Rúriksdóttir Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir, amma og langamma, ÁSGERÐUR INGIMARSDÓTTIR Fróðengi 7, áður Sigluvogi 3, lést á Landspítalanum mánudaginn 5. ágúst. Útförin fer fram frá Grafarvogskirkju föstudaginn 16. ágúst kl. 13.00. Victor Ágústsson Sólveig Victorsdóttir Ágúst Victorsson Ólöf Alfreðsdóttir Ingimar H. Victorsson Sonja Jónasdóttir Victor Örn Victorsson Rúna Stína Ásgrímsdóttir barnabörn og langömmubörn. Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi, JÓN JÓHANNESSON Munkaþverárstræti 23, Akureyri, lést á heimili sínu laugardaginn 10. ágúst. Útförin fer fram frá Akureyrarkirkju miðvikudaginn 21. ágúst klukkan 13.30. Sigrún Magnúsdóttir Kristín Jónsdóttir Rafn Marteinsson Sigrún Ingveldur Jónsdóttir Arnar Árnason og barnabörn. Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, EIRÍKUR GUÐMUNDSSON Reynimel 64, Reykjavík, lést á Landspítalanum mánudaginn 12. ágúst. Útförin fer fram frá Neskirkju föstudaginn 23. ágúst kl. 13.00. Rakel Sveinbjörnsdóttir Guðmundur Eiríksson Jóna Sigríður Jónsdóttir Jón Eiríksson Þórunn Þórisdóttir barnabörn og barnabarnabörn. Þennan dag árið 1933 kom flugkappinn Charles Lindbergh til Íslands. Hann kom til Íslands frá Grænlandi ásamt konu sinni. Hann lenti á Viðeyjarsundi og gisti ásamt konu sinni í vélinni yfir nótt. Þau hjónin flugu síðan áfram norður og austur um land og fóru frá Eskifirði til Færeyja 23. ágúst. Tilgangur Lindberghs var að kanna flug- leiðina yfir Atlantshaf fyrir flugfélagið Pan-American sem hafði hug á að hefja flugrekstur á þessari leið. Charles varð heimsfrægur yfir nótt árið 1927 þegar hann flaug viðstöðulaust og einn yfir Atlantshafið, frá New York til Parísar. Síðar komst Lindbergh einnig í fréttirnar þegar ungum syni þeirra hjóna var rænt og hann myrtur. Heimild: Wikipedia og Ísland í aldanna rás. ÞETTA GERÐIST: 15. ÁGÚST 1933 Lindbergh kemur til Íslands MERKISATBURÐIR 1945 Síðari heimsstyrjöldinni lauk með því að Japanir gáfust upp. 1967 Svifnökkvi kom til Íslands og voru gerðar tilraunir með hann á milli Vestmannaeyja og lands og Reykjavíkur og Akra- ness. Einnig var hann reyndur á Ölfusá. 1969 Tónlistarhátíðin kennd við Woodstock var fyrst haldin 15. ágúst árið 1969 og stóð í þrjá daga. Hátíðin var skipulögð af félögunum Michael Lang, John Roberts, Joel Rosenman og Artie Kornfeld. Hún fór fram á túni við mjólkurbú í hinum afskekkta bæ Bethel í New York í Banda- ríkjunum. 1971 Minnisvarði var afhjúpaður um Stefán Ólafsson skáld (1619- 1688) í Vallanesi í Suður-Múla- sýslu, þar sem hann þjónaði sem prestur. Næstkomandi föstudag, 16. ágúst, verður Kirkjulistahátíð í Hallgríms- kirkju sett með hátíðardagskrá í kirkjunni. Við setninguna kemur fram hópur listafólks sem tekur þátt í tónleikum á hátíðinni, auk þess sem frumflutt verður dansverk Sigríðar Soffíu Níelsdóttur og opnuð sýningin Vatn, sem Guðrún Kristjánsdóttir hefur gert sérstaklega fyrir Kirkju- listahátíð 2013. Á Kirkjulistahátíð verður boðið upp á átta tónleika, myndlistarsýningu, listasmiðju barnanna, fyrirlestur og hátíðlegt helgihald. Um 400 lista- menn koma fram og búist er við að alls 4.000 manns muni sækja dagskrá hátíðarinnar í þá tíu daga sem hún stendur. Þetta er í þrettánda sinn sem Kirkjulistahátíðin er haldin en segja má að hún sé dótturfyrirtæki Listvina- félags Hallgrímskirkju. Umfangsmestu tónleikarnir eru kór- og hljómsveitartónleikar með verkum eftir eistneska tónskáldið Arvo Pärt, þar sem kammerkórinn Schola cantorum og stór strengjasveit flytja dagskrá með verkum þessa heimsfræga tónskálds. Einsöngvarar á tónleikunum eru hin eistneska Tui Hirv sópran og Fjölnir Ólafsson barítón, sem bæði eru að hefja sinn feril sem einsöngvarar. Auk nokkurra smærri verka verða flutt verkin Agaþon ábóti og Harmagrátur Adams, en síðarnefnda verkið er alveg nýtt og hefur þegar vakið mikla athygli víða um heim. Nánari upplýsingar má finna á kirkjulistahatid.is. Dansverk frumfl utt á opnun Kirkjulistahátíð verður sett í Hallgrímskirkju á morgun. HALLGRÍMSKIRKJA Kirkjulistahátíð verður sett á morgun. Ragnar Þórisson opnar einkasýningu á nýjum málverkum í Kling & Bang gallerí næstkomandi laugardag, 17. ágúst, klukkan 17. Málverkin á sýningunni bera höfundareinkenni Ragnars; dempaða litapallettu, óræðar mannsmyndir og álút en sterk form. Litatónarnir stillast fínlega af og strigarnir hafa stækkað, sem opnar fyrir aukið frelsi og annað flæði. Ragnar útskrifaðist úr myndlistardeild Listaháskólans vorið 2010 og hefur unnið að list sinni æ síðan. Ragnar Þórisson í Kling og Bang Stærri strigar og aukið frelsi á sýningu á nýjum myndum listamannsins. EINKASÝNING Ragnar Þórisson opnar sýningu í Kling og Bang á laugardag. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.