Fréttablaðið - 15.08.2013, Side 46
15. ágúst 2013 FIMMTUDAGUR| SPORT | 36
Sigurður Ragnar Eyjólfsson, landsliðsþjálfari kvenna í knattspyrnu,
hefur ekki enn ákveðið sig hvort hann ætli sér að halda áfram
þjálfun liðsins. Hann hefur komið liðinu á stórmót í tvígang.
„Hann hefur lagt höfuðið í bleyti og ætlar að hugsa málið
næstu daga,“ sagði Þórir Hákonarson, framkvæmdarstjóri KSÍ.
„Við gáfum honum einhvern tíma til umhugsunar en það
má helst ekki vera of langt. Sigurður [Ragnar Eyjólfsson] er
núna staddur í sumarfríi erlendis og ætlar að svara okkur
von bráðar.“
„Þetta kemur vonandi í ljós í lok þessara viku eða
byrjun þeirra næstu.“
Íslenska kvennalandsliðið komst alla leið í 8-liða úrslit
á Evrópumótinu sem fram fór í Svíþjóð í júlí. Sigurður
Ragnar hefur verið með liðið síðan í desember árið
2006 og hefur því verið með liðið í tæplega sjö ár. Von
er á ákvörðun frá honum á næstu dögum. - sáp
Von er á ákvörðun um framhaldið
VINÁTTULEIKIR
ÍSLAND - FÆREYJAR 1-0
1-0 Birkir Bjarnason (65.)
SVÍÞJÓÐ - NOREGUR 4-2
Zlatan Ibrahimovic 3, Anders Svensson -
Mohammed Abdellaoue, Stefan Johansen.
BOSNÍA/HERSEG. - BANDARÍKIN 3-4
Edin Dzeko 2, Vedad Ibisevic - Eddie Johnson,
Jozy Altidore 3.
SVISS - BRASILÍA 1-0
Dani Alves, sjm.
PÓLLAND - DANMÖRK 3-2
Mateusz Klich, Waldemar Sobota, Piotr Zielinski
- Christian Eriksen, M. Braithwaite.
ÞÝSKALAND - PARAGVÆ 3-3
Ilkay Gundogan, Thomas Müller, Lars Bender -
Jose Nunez, Wilson Pittoni, Miguel Samudio.
WALES - ÍRLAND 0-0
ÍTALÍA - ARGENTÍNA 1-2
Lorenzo Insigne - Gonzalo Higuain, Ever Banega.
BELGÍA - FRAKKLAND 0-0
ENGLAND - SKOTLAND 3-2
Theo Walcott, Danny Welbeck, Rickie Lambert -
James Morrison, Kenny Miller.
PORTÚGAL - HOLLAND 1-1
Cristiano Ronaldo - Kevin Strootman.
FÓTBOLTI Emil Atlason fór á
kostum með íslenska U-21
árs liðinu í kvöld er liðið
vann öruggan sigur, 4-1, á
Hvít-Rússum í undankeppni EM.
Emil er þar með búinn að skora
sex mörk í fyrstu þremur leikjum
íslenska liðsins. Allir leikirnir
hafa unnist og er Ísland í efsta
sæti riðilsins.
Jón Daði Böðvarsson skoraði
einnig mark og lagði upp eitt.
Hörður Björgvin Magnússon
lagði upp þrjú mörk. - hbg
Emil skoraði
þrennu
HEITUR Emil (nr. 10) skorar og skorar
fyrir U-21 árs liðið. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
Aron spilaði fyrir Bandaríkin
Það varð endanlega ljóst í gær að Aron Jóhannsson mun
aldrei spila A-landsleik fyrir Ísland. Þá spilaði hann
sinn fyrsta landsleik fyrir Bandaríkin og má því ekki
spila fyrir Ísland.
Aron spilaði í 27 mínútur í 4-2 sigri Banda-
ríkjanna á Bosníu-Hersegóvínu. Staðan í leiknum
var 2-2 þegar Aron kom af bekknum.
Hann lét nokkuð til sín taka en náði ekki
að skora. Fyrrum félagi Arons hjá AZ Alkmaar,
Jozy Altidore, skoraði þrennu fyrir Bandaríkin.
Hann er nýbúinn að semja við enska úrvals-
deildarfélagið Sunderland.
FÓTBOLTI Ísland bætti enn einum
sigrinum á litlu frændum okkar
Færeyingum þegar þjóðirnar
mættust í vináttulandsleik í
Laugar dalnum í gærkvöldi en þeir
hafa flestir verið skemmtilegri
og meira sannfærandi en leikur
liðanna í gær.
Birkir Bjarnason skoraði eina
mark leiksins á 65. mínútu en
íslenska liðið þarf að spila mun
betur í komandi leikjum í undan-
keppni HM ætli strákarnir að
komast á HM í Brasilíu næsta
sumar.
Íslenska liðið lék án Gylfa Þórs
Sigurðssonar og það leyndist ekki
fyrir neinum að í íslenska liðið
vantaði mann til að brjóta upp
leikinn og koma hlutunum á hreyf-
ingu.
Lars Lagerbäck átti hins vegar
ás upp í erminni því allt annað var
að sjá liðið eftir að Eiður Smári
Guðjohnsen kom inn á í hálf-
leik. Það voru meistarataktar frá
markahæsti leikmanni landsliðs-
ins sem gerðu útslagið en sigur-
mark Birkis kom eftir frábæran
undirbúning frá Eiði Smára.
Fyrri hálfleikurinn var ekki
mikið fyrir augað. Leikur íslenska
liðsins hreif ekki marga á vellinum
enda oftast hugmyndalítill og
alltof hægur.
Alfreð Finnbogason fékk bestu
færi íslenska liðsins og hefði
vel getað verið búinn að skora í
fyrri hálfleiknum. Miðjan, með
þá Helga Val Daníelsson og Emil
Hallfreðsson í fararbroddi, hægði
á öllu spili íslenska liðsins og
einnar snertingar-boltinn sást lítið
í fyrri hálfleiknum.
Eiður Smári breytti eins og
áður sagði miklu í seinni hálf-
leiknum og þá átti Arnór Smára-
son flotta innkomu undir lok leiks-
ins. Seinni hálfleikurinn var mun
betri og oft vantaði ekki mikið upp
á að íslenska liðið næði inn fleiri
mörkum.
Kolbeinn Sigþórsson og Alfreð
Finnbogason voru saman í fram-
línunni í þessum leik, en sama
hvort væntingarnar eru of miklar
eða ekki, þá virðast þeir sjaldan
vera í takt hvor við annan.
Alfreð fékk vissulega færin
til að skora fernu í leiknum en
lítið kom út úr samvinnu þeirra
tveggja.
Kolbeinn vann hins vegar vel
fyrir liðið en þurfi að sætta sig
við fjórða markalausa landsleik-
inn í röð. Kolbeinn og Arnór náðu
sem dæmi mun betur saman og
Kolbeinn fékk sín bestu færi eftir
að Arnór var kominn inn fyrir
Alfreð.
Fram undan eru fjórir leikir í
undankeppni HM þar sem íslenska
liðið á von um að komast á HM. Þá
þarf mun betri frammistöðu en í
gær.
Gylfi Þór Sigurðsson verður
vonandi með í þeim leikjum og
það er líka full ástæða til að gefa
Eiði Smára Guðjohnsen tækifæri í
byrjunarliðinu. Hann gjörbreytti
liðinu í gær.
Tók tíma að þreyta þá
„Færeyingar eru gríðarlega skipu-
lagðir og það má sjá á úrslitum
þeirra í riðlakeppninni. Það tekur
tíma að þreyta þá,“ sagði Lars Lag-
erbäck landsliðsþjálfari við RÚV
eftir leikinn.
„Það verður að bera virðingu
fyrir Færeyingum. Það er allt-
af erfitt að spila gegn liði sem er
með mikið af mönnum í vörn. Við
sköpuðum samt færi og hefðum átt
að skora fleiri mörk.“
Lars viðurkenndi að þetta hefði
ekki verið besti leikur Íslands
undir hans stjórn en hann var
samt ánægður að fá leik.
„Þetta var fínn undirbúningur.
Það verður eðlilega allt annað að
fara til Sviss og spila þar. Það var
því gott að koma saman og hefja
undirbúning fyrir mikilvægan leik
þar sem mikið verður undir.“
ooj@frettabladid.is
Eiður Smári kom til bjargar
Íslenska fótboltalandsliðið vann 1-0 sigur á Færeyjum í vináttulandsleik á Laugardalsvellinum í gærkvöldi.
Eft ir hugmyndasnauðan og hundleiðinlegan fyrri hálfl eik hleypti Eiður Smári Guðjohnsen smá lífi í íslenska
liðið í þeim seinni. Íslenska liðið var þó ekki fj arri því að fá á sig jöfnunarmark undir lok leiksins.
BREYTTI LEIKNUM Eiður Smári Guðjohnsen kom inn af bekknum í hálfleik. Hann
breytti gangi leiksins og lagði upp sigurmarkið. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
SPORT
KÖRFUBOLTI Jón Arnór Stefánsson sýndi
mátt sinn og megin á móti Búlgörum í
Laugardalshöllinni í undankeppni EM 2015
í fyrrakvöld en það varð ekki til sigurs. Jón
Arnór jafnaði stigametið í Laugardalshöllinni í
þessum leik en svo skemmtilega vill til að Jón
setti metið sjálfur í síðasta leik sínum í Höll-
inni, sem var á móti Svartfellingum í fyrra.
„Jón Arnór Stefánsson átti eina mögnuð-
ustu frammistöðu sem ég hef séð á körfu-
boltavelli með berum augum,“ skrifaði hinn
margreyndi þjálfari Benedikt Guðmundsson
á fésbókarsíðu sína eftir leik og ekki að
ástæðulausu.
„Krafturinn, viljinn, yfirferðin, einstaklings-
vörnin, hjálparvörnin, staðsetningar og fleira
undirstrikaði að hann er einn af okkar bestu
íþróttamönnum allra tíma. Allt þetta hálf-
meiddur og ekki nálægt sínu besta formi,“
bætti Benedikt við. Stigin voru 32 talsins og
Jón Arnór hefur því skorað 32 stig í síðustu
tveimur leikjum sínum í Laugardalshöllinni.
Jón Arnór gerði samt betur en á móti Svart-
fjallalandi í fyrra þar sem hann hitti „bara“
úr 8 af 19 skotum sínum. Þá fékk hann 14
vítaskot (hitti úr 13) en í fyrrakvöld fékk þessi
frábæri leikmaður lítið sem ekkert frá dóm-
urum leiksins. Jón Arnór fékk aðeins tvö víti
allan leikinn á móti Búlgörum en hann hitti úr
13 af 21 skoti sínu (62 prósent) í leiknum, þar
af fimm af sex fyrir utan þriggja stiga línuna.
- óój
Búinn að eiga tvo 32 stiga leiki í röð í Höllinni
JÓN ARNÓR STEFÁNS-
SON FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
+ + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + +
+
+
+
+
+
+
+
+
+
+
+
+
+
+
+
+
+
+
+
+
+
+
+
+
+
+
+
+
+
+
+
+
+
+
+
+
+
+
+
+
+
+
+
+
+
+
+
+
+
+
+
+
+
+
+
++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++
H
V
ÍT
A
H
Ú
SI
Ð
/
S
ÍA
Dala-Brie er kominn i nýjar umbúðir
og er enn jafngóður a agðið. L júfur og mildur
hvítmygluostur sem hentar við öll tækifæri.
Flour úr
Dölunum