Fréttablaðið - 24.08.2013, Blaðsíða 26

Fréttablaðið - 24.08.2013, Blaðsíða 26
24. ágúst 2013 LAUGARDAGUR| HELGIN | 26 Útgerðarmaðurinn er ekki heima þegar blaðamann ber að garði svalan en heið-skíran sumardag á Patreksfirði. Þá er nú ekki gott að segja hvar hann sé að finna því þótt Jón Magnús- son sé orðinn áttatíu og þriggja ára hefur hann ýmislegt fyrir stafni. Hann gæti verið niðri á höfn að verka fisk, í sundi eða þá á göngu um bæinn með hinn fer- fætta Kát. Síðar um daginn knýr blaðamaður aftur dyra en þá er Jón kominn heim og Lilja Jóns- dóttir vísar blaðasnápnum inn og kallar á mann sinn sem kemur frár sem unglingur. Þeir setjast niður í stofu og fyrr en varir er Lilja búin að hella upp á og bera kræsingar á borð. Möluðu púðrið í kaffikvörn Það veitir ekkert af nesti þegar lagt er í þá löngu leið sem spannar útgerðarferil Jóns en hann var far- inn að gera út sjálfur fimmtán ára. En sjósóknin hefst fyrr því hann var ekki hár í loftinu þegar hann ýtti Teistu úr vör. Það var skektan á bænum Hlaðseyri í Patreksfirði, æskuheimili Jóns. Úr Teistunni var síðan fugl og fiskur sóttur úr greipum Ægis. „Maður má nú ekki segja frá þessu en ætli ég hafi ekki verið um átta ára þegar ég skaut fyrst úr riffli,“ segir Jón hálf hvísl- andi. „En þó við værum bara börn þá höndluðum við þetta af meiri virðingu en margur skotveiðimað- urinn í dag. Púðrið fékk hann faðir minn í hvalveiðistöðinni í Tálkna- firði en það var þó of stórt og gróft fyrir fuglaskot svo að við möluðum þetta í kaffikvörninni,“ svo hlær Jón að endurminningunum. „Við vorum með 50 kindur sem duga nú varla til að fæða einn hund í dag svo það varð að sækja björg í sjó og það gerðum við svo sannarlega.“ Nú hefur Teistan, þessi 105 ára skekta, gengið í endurnýjun lífdaga og trónir ofan á birgðageymslu í vinnsluhúsi hans niðri við höfn. Draumur Lilju Eftir að Jón lauk námi í Sjómanna- skólanum varð hann skipstjóri á 70 ára gömlum 25 tonna spýtubát, eins og hann kallar hann. Útgerð- inni óx fiskur um hrygg á Patreks- firði svo það var nóg um að vera í Hraðfrystihúsi Patreksfjarðar. Svo ganga síldarárin í garð. „Þá vildi ég að við seldum eitthvað af þessum bátum og tækjum þátt í síldar ævintýrinu,“ rifjar hann upp. „En það féll í grýttan jarð- veg svo ég sagði bara upp og fór á bát frá Dalvík.“ Þetta var bátur- inn Hannes Hafstein sem átti held- ur betur eftir að gera það gott þau fimm ár sem Jón stóð í stafni. En þegar síldin var orðin ódæl reynd- ust hins vegar draumar Lilju Jóns- dóttur best og má segja að draumr- áðningar hennar hafi náð að teygja úr síldarárunum. „Hún var með í einum túrnum og þegar við vorum um 150 mílur norðaustur af Jan Mayen dreymir hana kálf. Hún réð drauminn svo að við myndum fá fullfermi og það gekk eftir. Við fluttum farm- inn í flutningaskip en svo var bara ekkert að hafa. Ég fer að leita og eftir tvo sólarhringa er ég kom- inn nálægt Svalbarða. Þá er hún Lilja orðin voða örugg með sig og segir mér kasta. „Hvað var þig nú að dreyma, Lilja mín,“ spyr ég. Þá hafði hana dreymt tvær gimbrar sem komnar voru að fótum fram og svo tvo hrúta. Ég kasta en fékk ekkert í fyrstu tveimur köstunum þar sem þetta voru bara síli. Þá segir hún að við séum búin með gimbrarnar, nú séu hrútarnir eftir. Og það gekk eftir. Í næsta kasti fengum við fullfermi. Ég lét hina bátana vita sem voru búnir að vera að dóla í algjöru fiski- leysi langt fyrir sunnan okkur. Með þeim koma tóm flutninga- skip. Ég kasta aftur og það var sama sagan. Þar með voru báðir hrútarnir hennar Lilju komnir fram. Þegar flutningaskipið kom var ég með fullfermi og svo annað eins í nótinni“ Að svo kveðnu kemur Lilja með mynd þar sem sjá má Hannes Hafstein drekkhlaðinn og háseta önnum kafna við að dæla síldinni yfir í flutningaskipið meðan aðrir háfa síld úr nótinni og upp í skip. „Þetta var 1967, síðasta síldar- sumarið,“ segir Jón. „Og þarna veiddu þeir síldina þangað til hún hvarf þannig að það má segja að draumarnir hennar Lilju hafi framlengt síldarævintýrið. Svo segja þeir að köld séu kvennaráð,“ segir hann og hlær við Sveitadrengurinn slær um sig í þorpinu Þ egar Jón fór aftur t i l Patreksfjarðar vildi hann koma eigin útgerðarfyrirtæki á lagg- irnar en þá kom babb í bátinn. „Hér voru tveir bankar en hvor- ugur þeirra vildi lána mér krónu,“ segir hann og hlær við. „Samt voru þeir að lána fólki 25 þúsund krón- ur fyrir sjónvarpstækjum. Ég brá þá á það ráð að biðja um 25 þús- und en fékk þvert nei. Þá bað ég um 15 þúsund og það fór á sömu lund. En svo fékk ég lán alls staðar annars staðar svo þetta gerði ekk- ert til. Patreksfirðingarnir vildu bara ekki að fátæki sveitadreng- urinn frá Hlaðseyri væri eitthvað að slá um sig í þorpinu,“ segir hann og hlær við. Þannig var upphafið að Odda, sem í dag er langstærsti atvinnuveitandinn á Patreksfirði. Jón var sjálfur lengi framkvæmda- stjóri Odda og skipstjóri á sama tíma. „Þetta var miklu einfaldara þá,“ segir hann. „Ég man að einu sinni hringdi í mig bankastjóri frá Ísafirði sem kvartaði yfir því hvað hann sæi mig sjaldan. Ég sagði að það kæmi nú lítið inn á reikning- inn ef ég væri að eltast við hann til Ísafjarðar. „Ég skal bara senda þér mynd af mér,“ sagði ég og þar með var það útrætt.“ Nú er Sigurð- ur Viggósson framkvæmdastjóri Odda en hann er fóstursonur Jóns. „Hann er búinn að vera hjá okkur frá því hann var 13 ára svo hann skilur alveg út á hvað þetta geng- ur.“ Ástæðan fyrir þessu er sú að foreldrar Sigurðar skildu um þetta leyti. Þau áttu sex börn sem ekki var gott að koma niður á sama stað. Oddi lenti í miklum öldudal í hruninu líkt og fleiri fyrirtæki, en Jón er bjartsýnn á að Sigurður og félagar stígi ölduna. „ Blessaður vertu maður, ég er alinn upp í kreppunni og svo kemur stríðið þannig að ég hef nú séð það svart- ara,“ segir hann. Þegar ekið er áleiðis suður á leið blasið skipið Garðar við í fjörunni í borni Patreksfjarðar. Jón á einmitt það skip sem er löngu úr sér geng- ið. Eigandinn virðist hins vegar eiga nóg eftir. Skipstjórinn sem elti draumana Þegar Jón Magnússon hugðist koma útgerðarfyrirtæki sínu á laggirnar árið 1967 vildu bankarnir í heimabænum ekki veita honum lán þótt slíkt byðist fjölskyldum sem vildu festa kaup á imbakassa. En útgerðarfyrirtæki hans Oddi leit dagsins ljós og er nú stærsti atvinnurekandinn á Patreksfirði. Hann sagði Jóni Sigurði Eyjólfssyni frá því er hann veidd fisk og fugl á barnsaldri og eins frá mikilvægum draumráðningum. HJÓNAKORNIN Þau Jón Magnússon og Lilja Jónsdóttir í stofunni heima. Lilja framlengdi síldar- ævintýrið með því að trúa á draum- ráðningar sínar. FRÉTTABLAÐIÐ/JÓN SIGURÐUR Jón Sigurður Eyjólfsson jse@frettabladid.is Í botni Patreksfjarðar stendur gamall stálbátur í fjöruborðinu. Þetta er hinn 101 árs gamli Garðar BA 64, elsti stálbátur okkar Íslendinga. Garðar var í þjónustu Jóns og félaga frá árinu 1974 og þótt hann hefði þá verið kominn af léttasta skeiði var hann oft með aflahæstu bátum. Hann var fluttur, saddur lífdaga, upp í fjöru í Skápadal í Patreksfirði árið 1981. Hann var smíðaður í Noregi sem hvalbátur og var gerður út frá Larvik af Norröna Hvalfanger. Árið 1936 keypti Hvalveiðifélagsins Áir í Þórshöfn í Færeyjum bátinn. Árið 1945 var honum breytt í fiskibát og hann seldur til Siglufjarðar. Hann fékk svo nafnið Garðar GK-175 þegar hann var seldur til Skeggja hf. í Garðahreppi árið 1963. Elsti stálbátur Íslendinga
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.