Fréttablaðið - 24.08.2013, Blaðsíða 94
24. ágúst 2013 LAUGARDAGUR| SPORT | 62
Laugardagur
11.45 Fulham - Arsenal
Sport 2 & HD
12.00 Formúla 1 - tímataka
Sport & HD
14.00 Newcastle - West Ham
Sport 2 & HD
14.00 Everton - WBA
Sport 3
14.00 Southampton - Sunderland
Sport 4
14.00 Stoke - Crystal Palace
Sport 5
14.00 Hull - Norwich
Sport 6
16.00 Breiðablik - Þór/KA
Sport & HD
16.30 Aston Villa - Liverpool
Sport 2 & HD
Sunnudagur
11.30 Formúla 1 - Kappakstur
Sport & HD
15.00 Tottenham - Swansea
Sport 2 & HD
15.00 Cardiff - Man. City
Sport 3
18.00 KR - FH
Sport & HD
19.00 Malaga - Barcelona
Sport 3
HANDBOLTI Arnór Þór Gunnarsson,
leikmaður Berghischer, leikur sinn
fyrsta leik í þýsku úrvalsdeildinni í
handknattleik í dag þegar lið hans
mætir þýsku meisturunum í Kiel.
Hornamaðurinn hefur verið hjá
félaginu síðan árið 2010 og nú fær
hann að etja kappi við þá bestu í
faginu.
„Þetta hefur verið erfiðasta undir-
búningstímabil sem ég hef tekið þátt
í, enda erum við komnir í efstu
deild,“ segir Arnór Þór. Auk hans
spilar landsliðsmarkvörðurinn
Björgvin Páll Gústavsson
með liðinu.
„Ég hef spilað í annarri deildinni
hér í Þýskalandi í þrjú ár og núna
er draumurinn orðin að veruleika.
Það eru algjör forréttindi að fá að
spila handbolta á sama velli og bestu
handknattleiksmenn heimsins,“ segir
landsliðsmaðurinn frá Akureyri.
Berghischer vann þýsku 2. deildina
á síðustu leiktíð og flaug upp í efstu
deild.
„Markmiðið hjá okkur er vissulega
að halda okkur í deildinni og reyna
festa okkur í sessi sem úrvals-
deildarklúbbur. Svo getur verið að við
setjum okkur fleiri markmið þegar
líður á deildina.“ - sáp
Draumur orðinn að veruleika
ÞEIR BESTU Arnór ætlar sér stóra hluti
í Þýskalandi. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
SPORT
FÓTBOLTI Stærsti leikur ársins í
kvenna knattspyrnunni er fram
undan og er allt lagt í sölurnar.
Þór/KA mætir Breiðabliki í
úrslitaleiknum um Borgunar-
bikarinn í dag klukkan fjögur á
Laugardalsvelli.
Breiðablik hefur fimmtán
sinnum komist í úrslitaleikinn
sjálfan en þetta er í fyrsta sinn
sem Akureyrarliðið fer í úrslit.
Breiðablik vann síðast til titils
í kvennaflokki árið 2005 þegar
liðið bar sigur úr býtum gegn KR
í bikarúrslitum, 4-1.
„Leikurinn leggst bara vel í
okkur, þetta er spennandi tæki-
færi fyrir stelpurnar og sýnir
um leið hversu mikill uppgangur
er í kvennaknattspyrnunni fyrir
norðan,“ segir Jóhann Kristinn
Gunnarsson, þjálfari Þór/KA, í
samtali við Fréttablaðið.
„Við komumst í undanúrslit í
þessari keppni í fyrra og duttum
úr leik á mjög svekkjandi hátt eftir
framlengdan leik gegn Stjörnunni.
Núna er liðið komið enn lengra og
við ætlum okkur alla leið í ár.“
Jóhann vill ekki breyta of mikið
út af vananum fyrir þennan leik en
viðurkennir þó að vikan hafi verið
örlítið öðruvísi en aðrar.
„Við vildum kannski vera meira
saman sem lið í vikunni og stilla
hópinn saman fyrir verkefnið.“
Þjálfarinn er ekkert smeykur
við reynsluleysi liðsins af svona
úrslitaleikjum.
„Svona heilt yfir fara ekkert
margir leikmenn oft í þennan leik
og því eru flestallir inni á vell-
inum með sams konar reynslu af
svona bikarúrslitaleikjum.“
Jóhann Kristinn vill meina að ef
liðið nær fram því framlagi sem
hann ætlast til af leikmönnum liðs-
ins eigi það að fara með sigur af
hólmi í dag.
„Þetta leggst bara mjög vel í
okkur en liðið hefur spilað mjög
vel saman í sumar og sérstaklega í
síðustu leikjum,“ segir Greta Mjöll
Samúelsdóttir, fyrirliði Breiða-
bliks.
„Vonandi náum við fram okkar
besta leik í sumar. Það eru rosa-
lega margar stelpur í okkar liði
sem hafa aldrei spilað á Laugar-
dalsvellinum og þetta er því mjög
spennandi fyrir okkur. Það eru
algjör forréttindi að fá að spila
þennan leik og vonandi náum við
að vinna þennan bikar.“
Greta Mjöll er eini leikmaður
liðsins sem hefur áður spilað
til úrslita með Breiðabliki í
bikarnum.
„Við erum í raun ekkert með
meiri reynslu en Þór/KA af svona
leikjum. Það er samt sem áður
ákveðin sigurhefð í félaginu sem
gæti hjálpað okkur töluvert.“
Stjarnan er svo gott sem búin að
tryggja sér Íslandsmeistara titilinn
í Pepsi-deild kvenna í knattspyrnu
en liðið er með fullt hús stiga í
efsta sæti deildarinnar, ellefu
stigum á undan næsta liði sem er
Breiðablik. Það má því segja að
þetta sé síðasta tækifærið fyrir lið
að krækja í titil í dag. Liðin eiga
því eflaust eftir að berjast til
síðasta blóðdropa.
„Þetta er auðvitað stórt tækifæri
til að ná í titil og það þarf mikið að
gerast hjá Stjörnunni svo þær glutri
frá sér Íslandsmeistara titlinum.
Okkar draumur er auðvitað að
vinna á Laugardalsvellinum því
það er kannski okkar eini séns á
titli í sumar.“ stefanp@frettabladid.is
Eini möguleikinn á titli í ár
Þór/KA og Breiðablik takast á í úrslitum Borgunarbikarsins í knattspyrnu kvenna á Laugardalsvellinum í dag.
Breiðablik hefur fi mmtán sinnum leikið til úrslita en Þór/KA er í fyrsta sinn í sögu félagsins að taka þátt í
leiknum. Barist verður til síðasta blóðdropa en ólíklegt er að liðin fái annað tækifæri til titils í ár.
BIKARINN Greta Mjöll Samúelsdóttir, fyrirliði Breiðabliks, og Arna Sif Ásgrímsdóttir, fyrirliði Þór/KA, leiða lið sín út á
Laugardalsvöllinn í dag. Þær setja báðar stefnuna á að klófesta þennan eftirsótta titil. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
FÓTBOLTI Rakel Hönnudóttir, leik-
maður Breiðabliks, mætir sínum
gömlu félögum í Þór/KA í úrslit-
um Borgunarbikarsins í dag.
Rakel er uppalin fyrir norðan og
lék lengi vel með Þór/KA.
„Þessi leikur leggst mjög vel í
mig, enda hef ég aldrei farið áður
í bikarúrslit,“ segir Rakel.
„Þetta verður eflaust nokkuð
sérstakt fyrir mig þar sem ég er
uppalin á Akureyri og hef spilað
nánast allan minn feril með and-
stæðingnum,“ segir landsliðs-
konan sem verður líkast til í
fremstu víglínu Blika.
Rakel yfirgaf Þór/KA fyrir
síðasta tímabil og færði sig yfir
til Blika. Þór/KA kom síðan á
óvart og varð Íslandsmeistari á
síðustu leiktíð á meðan verr gekk
hjá Kópavogsliðinu.
„Það var ekkert sérstaklega
gaman að horfa á mína gömlu
samherja hampa Íslands-
meistaratitlinum og það var í
raun mjög erfiður tími fyrir mig
persónulega. Ég stend samt sem
áður á því að þetta hafi verið rétt
ákvörðun fyrir mig og minn feril
sem knattspyrnumann.“
Rakel ætlar sér að sjálfsögðu
sigur í leiknum.
„Það að þessi leikur sé gegn
mínum gömlu félögum gerir
mig enn hungraðri til að vinna
þennan titil. Liðið er vel undir-
búið og leikmenn verulega
spenntir fyrir leiknum.“ - sáp
Ákvörðunin
var rétt
ÁKVEÐIN Rakel ætlar að vinna sína
gömlu félaga. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
FÓTBOLTI KR tekur á móti FH í
stórleik 17. umferðar Pepsi-deildar
karla á morgun. Hannes Þór Hall-
dórsson tekur út leikbann og því
kemur það í hlut hins átján ára
Rúnars Alex Rúnarssonar að
standa vaktina í marki KR.
„Ég myndi ekki segja að ég væri
stressaður heldur frekar fullur
tilhlökkunar,“ segir hinn átján
ára Rúnar Alex, sem alla jafna
er kallaður Alex. Ástæðan er sú
að þegar hann flutti til Belgíu
fimm ára gamall áttu heimamenn
í mestu vandræðum með að bera
fram nafn hans.
„Fólk sagði Runar en ekki Rúnar
og mér fannst það ekki skemmti-
legt,“ segir Alex og hlær. Millinafn-
ið festist því við hann og hlýtur
að henta vel til aðgreiningar á
heimilinu, enda Alex sonur Rúnars
Kristinssonar, þjálfara KR-liðsins.
Markvörðurinn hefur leikið með
yngri landsliðum Íslands en viður-
kennir að líklega verði leikurinn
gegn FH hans stærsti til þessa.
„Að fá að spila í Frostaskjóli
fyrir framan fullt af fólki verður
frábært,“ segir Alex. Hann spil-
aði sínar fyrstu mínútur í deild-
inni gegn ÍBV á dögunum þegar
Hannes Þór var rekinn af velli.
„Ég fékk smjörþefinn af
stemmningunni í Frostaskjóli
gegn ÍBV en ég held að KR gegn
FH sé enn stærri leikur.“
Alex hefur þó varið mark KR
í vetrarleikjum bæði í ár og í
fyrra. Hans fyrsti opinberi leikur
með meistaraflokki var einmitt
gegn FH í undanúrslitum Lengju-
bikarsins árið 2012.
„Það er mjög eftirminnilegur
leikur,“ segir Alex sem kom inn
á sem varamaður snemma í síð-
ari hálfleik fyrir Fjalar Þorgeirs-
son. Úrslitin réðust í vítaspyrnu-
keppni þegar Alex varði spyrnu
Emils Pálssonar.
„Ég hef minnt hann á þetta einu
sinni eða tvisvar í landsliðsferðum.
En við erum góðir félagar og allt á
góðum nótum.“
Alex hefur farið utan á reynslu
til erlendra félaga í vetur og
margir sem reikna með því að
hann semji við félag innan tíðar.
Hann hefur sótt dönsku félögin
Nordsjælland og AGF heim á
árinu, auk Club Brugge í Belgíu
og NEC Nijmegen í Hollandi.
„Það var mikið að gera í vetur
og ég held að ég hafi misst úr sex
vikur í skólanum vegna þessara
ferða og landsliðsverkefna,“ segir
Alex, sem er á þriðja ári í Verzló.
Hann segist ekki ætla að pæla of
mikið í leiknum og haga undir-
búningi sínum venju samkvæmt.
Leikur á morgun hefst klukkan
18 og er í beinni á Stöð 2 Sport.
Klukkutíma fyrr mætast Valur og
Þór, Fylkir og ÍBV auk leiks Vík-
ings og Breiðabliks í Ólafsvík. -ktd
Stærsti leikurinn á ferlinum til þessa
Hinn átján ára Rúnar Alex Rúnarsson ver mark KR-inga í stórleiknum gegn FH í Pepsi-deild karla á morgun.
DREIFIR HUGANUM Alex spilar FIFA
og les skólabækurnar til að dreifa
huganum fyrir leikinn. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
KÖRFUBOLTI Hörður Axel Vilhjálms-
son heldur í dag utan til æfinga með
spænska stórliðinu Bilbao Basket.
Hörður er án félags eftir að hann
keypti upp samning sinn við þýska
félagið Mitteldeutscher BC í sumar.
„Þetta er lið með mikla sögu og ég
lít á það sem mikinn heiður að fá að
æfa með þeim,“ segir Hörður Axel.
Liðið hafnaði í sjötta sæti deildar-
innar á síðustu leiktíð.
„Þeir eru að gera mér greiða og
ég þeim á móti,“ segir Hörður Axel.
Evrópukeppni landsliða er fram
undan í september og því vantar
marga fasta hlekki á æfingar liðsins
næsta mánuðinn. Landsliðsmaðurinn
fær því gott tækifæri til að halda sér
í formi og sýna sig og sanna.
„Ég fer út með því
hugarfari að ég sé
að fara að halda
mér í formi þar til
umboðsmaðurinn
finnur eitthvað. Ef
þeim líst vel á mig
væri það bara
bónus.“ - ktd
Hörður Axel æfi r með stórliði á Spáni