Fréttablaðið - 24.08.2013, Blaðsíða 88
24. ágúst 2013 LAUGARDAGUR| MENNING | 56
Alls hafa 35 þúsund manns séð
tónleika til heiðurs Freddie
Mercury sem hafa verið haldnir
hér á landi undanfarin ár. Fram
undan eru tvennir tónleikar í
Hofi á Akureyri sem verða báðir
5. október. Miðar seldust fljótt
upp á fyrri tónleikana og því var
aukatónleikum bætt við.
Á tónleikunum kemur fram ein-
vala lið söngvara, eða Eyþór Ingi,
Friðrik Ómar, Matti Matt, Magni
og Hulda Björk Garðarsdóttir.
Flytja þau alla helstu smelli hins
sáluga Mercury úr hljómsveitinni
Queen.
35 þúsund séð
Mercury
EYÞÓR INGI Einn þeirra sem syngja
lög Freddies Mercury er Eyþór Ingi
Gunnlaugsson. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Íslensk-suðurafríska kvikmyndin Of Good Report verður sýnd
í flokknum The Discovery Programme á alþjóðlegu kvikmynda-
hátíðinni í Toronto í Kanada.
Myndin var bönnuð af ríkisstjórn Suður-Afríku en eftir mikinn
þrýsting var hún leyfð á ný fyrr á þessu ári. Hún fjallar um ólög-
legt samband kennara og nemanda sem fer úr böndunum. Þetta
er sálfræðitryllir sem er leikstýrt af Jahmil X. T. Qubeka og er
virðingarvottur til hinna sígildu film noir-mynda með sterkum
suðurafrískum rótum.
The Discovery Programme er sá hluti Toronto-hátíðarinnar þar
sem kynntir eru nýir og efnilegir leikstjórar hvaðanæva af úr heim-
inum. Of Good Report er þriðja íslenska myndin sem er valin á
Toronto International Film Festival í ár.
Meðframleiðendur myndarinnar eru Heather Millard og Þórður
Bragi Jónsson hjá fyrirtækinu Compass Films Iceland. Eftir-
vinnslan fór fram með stuðningi Kvikmyndamiðstöðvar Íslands.
Bönnuð kvikmynd sýnd í Toronto
Íslensk-suðurafríska myndin Of Good Report sýnd á kvikmyndahátíð í Toronto í september.
QUBEKA
Leikstjóri
myndarinnar,
Jahmil X.T.
Qubeka, sem
verður sýnd í
Kanada.
MYND/INGI R
Breska hljómsveitin Coldplay, með
Chris Martin í broddi fylkingar
gaf út nýtt lag í gær. Lagið heitir
Atlas og verður notað í kvikmynd-
inni Hunger Games 2 en kemur
ekki til með að verða á næstu plötu
hljómsveitarinnar. Hunger Games
2 heitir fullu nafni Hunger Games:
Catching Fire, sem útleggst á
íslensku Hungurleikarnir: Eldar
kvikna. Texti lagsins gefur sterk-
lega til kynna að lagið hafi verið
samið sérstaklega fyrir kvik-
myndina, þar sem orðið eldur
kemur oft fyrir. Chris Martin
hefur áður gefið út opinberlega að
hann sé mikill aðdáandi Hunger
Games-bókanna.
Í fyrstu kvikmyndinni um
Hunger Games var meðal annars
tónlist eftir Taylor Swift og The
Arcade Fire.
Coldplay gefur
út nýtt lag
COLDPLAY Semur lag fyrir kvikmynd.
Sylvester Stallone er í viðræðum
um að búa til sjónvarpsþætti
byggða á kvikmyndunum um goð-
sögnina Rambo.
Stallone hefur áður komið
fram og talað um að gera fimmtu
Rambo-kvikmyndina, en hefur
opinberlega sagst vilja fá yngra
vöðvatröll til að leika Rambo.
Hann bætti því við í samtali við
Metro, sænskan fjölmiðil, að hann
vildi hafa fimmtu Rambo-kvik-
myndina talsvert frábrugðna
þeim fyrri en vildi ekkert láta
uppi um að hvaða leyti nýja
kvikmyndin yrði öðruvísi. En
nú virðist málið hafa tekið nýja
stefnu og Stallone ætlar í þátta-
gerð fyrir sjónvarp.
Slúðursíður vestanhafs segja
Stallone vera á sama máli nú og
þá og að verið sé að leita að arf-
taka Stallones til þess að leika
Rambo. Stallone mun þó koma
til með að leika í þáttunum, þó
að það verði ekki aðalhlutverk.
Hann mun einnig vera með fing-
urna í framleiðslu þáttanna. - ósk
Nýr Rambo
STALLONE Leikur kannski Rambo.
Fáðu þér áskrift | 512 5100 | stod2.is
F
ÍT
O
N
/
S
ÍA
LAUGARDAG KL. 15:30 Á STÖÐ 2 SPORT
Það er komið að úrslitum í Borgunarbikar kvenna. Kópavogsstúlkur í
Breiðablik mæta Íslandsmeisturum Þórs/KA á Laugardalsvelli í dag og það
verður ekkert gefið eftir. Fer bikarinn í Kópavog eða norður yfir heiðar?
Ekki missa af æsispennandi úrslitaleik
í Borgunarbikarnum á Stöð 2 Sport!
BREIÐABLIK–ÞÓR/KA
ÚRSLITALEIKUR Í BORGUNARBIKARNUM