Fréttablaðið - 24.08.2013, Síða 53
| ATVINNA |
-- Aðstoðarkona óskast --
Líkamlega og andlega hraust kona, hjartahlý, skilningsrík og
róleg á aldrinum 30 – 60 ára óskast til að aðstoða langveika
34 ára gamla konu. Vinnan felst í að fara út í búð, fara út að
ganga með hund, þrifum, keyrslu og öðru sem til fellur.
Einnig er óskað eftir tilfinningalegum stuðningi. Vinnutími
yrði óreglulegur og gæti hentað heimavinnandi konu eða
konu sem er í námi. Viðkomandi þarf að hafa frjálsan tíma til
að geta komið með frekar stuttum fyrirvara. Engu að síður
yrði gert vinnuskipulag eins og hægt er. Mjög gott væri ef
viðkomandi hefði reynslu úr heilbrigðisgeiranum. Unnið
verður eftir hugmyndinni um notendastýrða persónulega
aðstoð. Áhugasamir geta sent umsóknir á netfangið
adstodarkona@gmail.com.
OPUS lögmenn leita að móttökuritara
í framtíðarstarf.
Um er að ræða 100% starfshlutfall,
vinnutíminn er frá kl. 9.00 til 17.00.
Starfið felst í símvörslu, móttöku
viðskiptavina, ýmsum verkefnum fyrir
lögmenn stofunnar, sem og umsjón
með kaffiaðstöðu og tengdum þáttum.
Við leitum að einstaklingi sem hefur
að bera ríka þjónustulund, hæfileika til
mannlegra samskipta, vilja til að takast
á við fjölbreytt verkefni, er úrræðagóður,
sem og jákvæður og líflegur í fasi.
Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst.
Móttökuritari á lögmannsstofu
Umsóknarfrestur er til
og með 29. ágúst 2013.
Umsóknir merktar „Móttaka“,
ásamt ferilskrá skulu sendast á
opus@opus.is
Austurstræti 17 / 101 Reykjavík
Stálorka óskar eftir
Stálorka óskar eftir að ráða menn til framtíðarstarfa vana
smíði úr ryðfríu stáli og áli. Aðalstarfsvið er smíði á búnaði
í skip og báta. Hægt er að senda inn umsóknir á
stalorka@simnet.is eða hafa samband við Benedikt
í síma 8927687 á virkum dögum milli 8 og 18.
LAUGARDAGUR 24. ágúst 2013 11