Fréttablaðið - 27.08.2013, Qupperneq 4
27. ágúst 2013 ÞRIÐJUDAGUR| FRÉTTIR | 4
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS– AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@365.is, Laila Awad laila@365.is, Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is,
Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Bryndís Hauksdóttir bryndis@365.is, Ívar Örn Hansen ivarorn@365.is, Kolbeinn Kolbeinsson kolli@365.is, Sigurður Helgi Grímsson sigurdurhg@365.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrirbs@365.is
FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is
SVONA ERUM VIÐ
TENNIS
er skemmtileg hreyfing
Nú er rétti tíminn til að
panta fastan tíma í tennis.
Eigum nokkra tíma lausa.
Skemmtilegu byrjendanámskeiðin
fyrir fullorðna eru að hefjast.
Skráning og upplýsingar í síma 564 4030 eða á tennishollin.is
FERÐAMENNSKA Vestfirðingar
hafa getað höfðað til ferðamanna
sem vilja njóta ósnortinnar nátt-
úru í óbyggðum
en nú verða þeir
að fara að skipu-
leggja ferðaiðn-
aðinn áður en
það verður of
seint. Þetta segja
Ásgerður Þor-
leifsdóttir, einn
eigenda fyrir-
tækisins Borea,
og Daníel Jakobsson, bæjarstjóri
Ísafjarðarbæjar.
Borea er með skútuferðir til
Jökulfjarða en þar fara ferða-
menn í land, bregða undir sig
skíðum og renna sér svo í fjöllun-
um fjarri öllum skarkala. Síðast-
liðið vor brann svo við að franskri
skútu var lagt við hlið skútu
Borea-manna og síðan hélt hópur
franskra ferðamanna til skíða-
ferðar við hlið hinna.
„Auðvitað er ekki hægt að
banna neinum að koma þangað
sem við erum en það er vissu-
lega bagalegt ef þú ert að auglýsa
skíðaferðir í óbyggðum og svo
kemur traffík á svæðið,“ segir
Ásgerður.
„Reyndar var lausnin borð-
leggjandi í þessu tilfelli,“ heldur
Ásgerður áfram. „Við einfaldlega
útskýrðum málið fyrir viðkom-
andi og báðum þau vinsamlegast
að fara í næsta fjörð og það var
auðsótt mál. En hins vegar er það
bara spurning hvenær en ekki
hvort umferðin fer að vera slík að
staðurinn stendur vart undir því
sem verið er að auglýsa. Við Vest-
firðingar þurfum því að ákveða
hvernig við viljum standa að þessu
áður en það verður of seint.“
Félagið Varpland, sem er í eigu
sænska timburframleiðandans
John Harald Örneberg, á um
tuttugu þúsund hektara land við
botn Ísafjarðardjúps. Gunnar Sól-
nes, stjórnarformaður Varplands,
hefur sent Ísafjarðarbæ kynningu
á áformum félagsins um þyrlu-
flutninga á landi sínu með skíða-
og snjóbrettafólk.
Eins og kunnugt er hefur ferða-
þjónustufyrirtækið Bergmenn
ehf. fengið einkaleyfi fyrir slíka
flutninga á vissu svæði í Dalvíkur-
byggð. Hefur sú ákvörðun verið
nokkuð umdeild.
Daníel segist ekki hrifin af
hugmyndum um að veita einka-
leyfi, reyndar hefur ekki verið
óskað formlega eftir því, en segir
að hins vegar verði Vestfirðingar
að skipuleggja ferðamennskuna.
„Það er vissulega mjög óheppi-
legt að fyrirtæki er búið að eyða
miklum fjármunum í markaðs-
setningu og svo þegar eitthvað
fer loks að ganga fá þeir einhvern
annan á sömu báruna,“ segir
bæjar stjórinn. jse@frettabladid.is
Bagalegt að fá umferð
í auglýstar óbyggðir
Ákvörðun yfirvalda í Dalvík um að veita einkaleyfi á þyrluferðum á ákveðnu
svæði er umdeild. Bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar hefur fengið álíka umleitan. Bæjar-
stjóri segist ekki hrifinn af einkaleyfi en að skipulagning í geiranum sé brýn.
SKÍÐAÐ Í ÓBYGGÐUM Það er óneitanlega hrífandi að skíða í óbyggðum en blærinn
verður vissulega annar þegar umferð ferðamanna er skollin þar á. MYND/COLIN SAMUELS
DANÍEL
JAKOBSSON
430.000 manns munu
byggja Ísland árið 2060 sam-
kvæmt mannfjöldaspá Hag-
stofunnar, eða 110.000 fleiri en
í dag.
Lífslíkur karla munu þá hafa
hækkað úr 80,8 árum upp í 86,8 ár
og lífslíkur kvenna úr 83,9 árum í
88,2 ár. Heimild: Hagstofa Íslands
FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
FÉLAGSMÁL Krakkar í ungmenna-
ráði Hafnarfjarðar segja oft ekki
tekið nógu vel á einelti í skólum.
Ekki dugi að tala bara við viðkom-
andi krakka.
„Þegar einelti kemur upp ætti
fyrst og fremst að fá fund með for-
eldrum fórnarlambs og foreldrum
gerenda eða gerendur og fá krakk-
ana til að mæta líka. Ekki byrja á
því að tala við krakkana eina. Það
gerir oftast bara verra því eftir
þennan „fund“ fara krakkarnir
oftast að tala saman og byrja „Af
hverju sagðir þú þetta?“ og svo
framvegis,“ segir í fundargerð. - gar
Krakkar í Hafnarfirði:
Þarf að taka
betur á einelti
RÚSSLAND, AP Sergei Sobjanín,
borgarstjóri í Moskvu, þykir
nokkuð öruggur með endurkjör 8.
september. Alexei Navalní hefur
þó tekist með framboði sínu að
hrista upp í kosningabaráttunni.
Navalní var dæmdur í fimm
ára fangelsi í síðasta mánuði
fyrir fjárdrátt en látinn laus dag-
inn eftir að dómur féll, að því er
virðist til að koma í veg fyrir að
fangavist hans varpi skugga á
væntanlegt endurkjör Sobjaníns.
Navalní, sem er lögfræðingur og
þekktur bloggari, hefur hins vegar
notað tímann til að afla sér fylgis
og er nú spáð 10 eða jafnvel hátt í
20 prósentum atkvæða. - gb
Navalní vekur enn athygli:
Hristir upp
í baráttunni
ALEXEI NAVALNÍ Ávarpaði mannfjölda
í Moskvu á sunnudag, var handtekinn
strax á eftir en látinn laus fljótlega.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
RAFORKA Rannsóknarverkefnið
GARPUR hefur hlotið 1,2
milljarða króna styrk frá Evrópu-
sambandinu. Verkefnið gengur
út á að bylta gildandi aðferðar-
fræði við áreiðanleikaútreikninga
raforkukerfa og þróa ný, hag-
kvæmari viðmið.
Að verkefninu standa Landsnet
og Háskólinn í Reykjavík ásamt 17
evrópskum háskólum, rannsóknar-
stofnunum og raforkuflutninga-
fyrirtækjum.
Íris Baldursdóttir, deildarstjóri
Kerfisstjórnar og markaðar hjá
Landsneti, segir þau vilja að Ísland
sé áfram framarlega á þessu sviði.
„Við erum í dag með þeim fremstu
í heiminum í rauntímastýringu á
raforkukerfinu. Við höfum komið
okkur upp hágæðamælum sem
við nýtum til að greina rauntíma-
stöðugleika í kerfinu,“ segir Íris.
Íris segir að það reyni stöðugt
meira á kerfin og í nútímasam-
félagi séu gerðar miklar kröfur
til þess að rafmagn sé afhent þótt
eitthvað komi fyrir kerfið. - hrs
Raforkuverkefni fær 1,2 milljarða króna styrk frá Evrópusambandinu:
Landið áfram fremst í flokki
RANNSÓKNARVERKEFNIÐ GARPUR
Verkefnið fær styrk til að þróa ný
viðmið fyrir raforkukerfi.
LÝÐHEILSA „Æskilegt er að lands-
menn borði meira af grófum heil-
korna brauðum og öðrum heil-
korna vörum til að stuðla að bættri
heilsu,“ segir í frétt Landlæknis.
Íslendingar borði aðeins hálfa
brauðsneið á dag að meðaltali.
„Rannsóknir benda til að neysla
á grófu kornmeti dragi úr líkunum
á hjarta- og æðasjúkdómum og
sykursýki af tegund 2,“ segir
Landlæknir. Þá hafi trefjaríkar
vörur góð áhrif á meltinguna og
rannsóknir bendi til að neysla
trefjaríkra vara úr jurtaríkinu
dragi úr líkum á ristilkrabba - gar
Ábending landlæknis:
Fólk á að borða
heilkorna brauð
HEILKORNABRAUÐ Dregur úr sjúk-
dómahættu. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Ingibjörg Karlsdóttir
veðurfréttamaður
Veðurspá
Fimmtudagur
Strekkingur með SA-ströndinni annars
hægari.
FYRSTA HAUSTLÆGÐIN gengur yfir landið um helgina og eru líkur á vonskuveðri
um norðanvert landið, hvassviðri eða stormur um tíma með mikilli rigningu og slyddu
eða snjókomu til fjalla. Ég hvet fólk til þessa að fylgjast vel með spám næstu daga.
10°
5
m/s
9°
6
m/s
11°
6
m/s
10°
9
m/s
Á morgun
Strekkingur með S-ströndinni annars
fremur hægur vindur.
Gildistími korta er um hádegi
9°
8°
9°
12°
9°
Alicante
Aþena
Basel
29°
35°
24°
Berlín
Billund
Frankfurt
23°
22°
23°
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
20°
22°
22°
Las Palmas
London
Mallorca
27°
22°
29°
New York
Orlando
Ósló
30°
31°
21°
París
San Francisco
Stokkhólmur
24°
21°
22°
12°
7
m/s
13°
6
m/s
13°
8
m/s
9°
7
m/s
12°
6
m/s
10°
7
m/s
7°
6
m/s
11°
10°
9°
13°
13°
LÖGREGLAN Lögreglan á Suður-
nesjum stöðvaði um helgina
konu sem var á leið um flugstöð
Leifs Eiríkssonar á stolnum skil-
ríkjum.
Konan var á leið til Toronto í
Kanada og vaknaði grunur um að
ekki væri allt með felldu við hefð-
bundna vegabréfaskoðun.
Í yfirheyrslum kom í ljós að
konan var rúmlega þrítug en ekki
tæplega tvítug, eins og eigandi
vegabréfsins, sem gefið var út í
Þýskalandi. - hrs
Lögreglan á Suðurnesjum:
Stöðvuð með
stolin skilríki
HÚSNÆÐISMÁL Ferilnefnd
Öryrkjabandalags Íslands skorar
á stjórnvöld að breyta ekki nýrri
byggingarreglugerð.
Með nýjum lögum og reglu-
gerð um mannvirki hafi verið
stigið stórt skref í átt að aðgengi
allra að samfélaginu. Mótmælt er
umræðu undanfarið um að snúa
eigi aftur til aðskilnaðarstefnu og
byggja sérstakar byggingar fyrir
fatlað fólk. - hrs
ÖBÍ er á móti sérlausnum:
Ný reglugerð á
að fá að standa