Fréttablaðið - 27.08.2013, Blaðsíða 17

Fréttablaðið - 27.08.2013, Blaðsíða 17
ÞEKKING Davíð segir hug- myndina ekki síst lúta að því að virkja þá þekkingu sem verður til í Há- skólanum. „Innan veggja skólans má finna vel menntaða næringarfræðinga, sjúkraþjálfara, lækna og íþrótta- fræðinga.“ Davíð Ingi Magnússon, meistara-nemi í lögfræði, tók ákvörðun á vormánuðum um að taka sjálfan sig í gegn. Hann fór í Háskólaræktina og byrjaði að hlaupa. Eins og margir kann- ast við koma hugmyndir gjarnan fljúg- andi þegar lögð er rækt við líkamann. Davíð lét því ekki þar við sitja heldur ákvað að freista þess að koma öllum háskólanemum í form. Nú hefur hann stofnað, ásamt fríðu föruneyti, fjar þjálfun Háskólafitness, eða Háfit. Hann kynnti hugmyndina fyrir stjórn Háskóla Íslands, sem leist vel á, og ákveðið var að hefja samstarf. Davíð segir hugmyndina ekki síst lúta að því að virkja þekkinguna sem verður til í háskól- anum. „Innan veggja skólans má finna vel menntaða næringar fræðinga, sjúkra- þjálfara, lækna og íþrótta fræðinga.“ Davíð setti þá saman teymi af úrvals- fólki. „Ég vildi fá fólk sem er framúr- skarandi á sínu sviði. Ragna Baldvins- dóttir er semídúx úr íþróttafræði, Daði Reynir Kristleifsson sjúkraþjálfari er Evrópumeistari í krossfitt og Elísabet Margeirsdóttir næringarfræðingur hefur hlaupið sjö maraþon, eitt 100 km hlaup og er hvergi nærri hætt,“ segir hann og brosir. Eftir að stjórn skólans samþykkti samstarf tók Davíð að hanna og forrita vefsíðu, ásamt Rakel Tómasdóttur hönn- uði. Á vefsíðunni geta áskrifendur meðal annars nálgast myndbönd af öllum æfing- unum, sem og útskýringar á textaformi. „Sjúkraþjálfarinn okkar, Daði Reynir, útskýrir æfingarnar gaumgæfilega, enda er mikilvægt að fólk geri æfinguna rétt frá upphafi.“ Ragna íþróttafræðingur útbýr allar æfingaáætlanir og Elísabet næringar- fræðingur reiknar út orku- og næringar- þörf hvers og eins út frá markmiðum og æfingaplani. Skráning er hafin, en þeir sem skrá sig mæta í mælingu í september og í kjöl- farið er líkamsræktaráætlun útbúin, út frá markmiðum hvers og eins. „Háskóla- ræktin er ódýrasta líkamsrækt á Íslandi,“ segir Davíð. „Okkar starfsemi verður í takt við það. Við bjóðum upp á þjónustu á verði sem stúdentar ráða við.“ Hægt er að skrá sig og nálgast allar nánari upplýsingar á vefsíðu Háfit, www.hafit.is. ■ halla@365.is Í FORM Á ALLRA FÆRI FYRIR HÁSKÓLANEMA Háfit er ný fjarþjálfun sérsniðin að þörfum háskóla- nema. Að þjálfuninni stendur hópur fólks með breitt þekkingarsvið. ÚRVALSTEYMI Davíð lagði áherslu á að starfsfólk Háfit væri fólk sem væri framúr- skarandi á sínu sviði. MYND/RAKEL TÓMASDÓTTIR NÁMSKEIÐ Í UPPELDI Þroska- og hegðunarstöð heldur tvö námskeið um uppeldi barna með ADHD í haust. Það fyrra hefst 18. september og það síðara 3. október. Nánar á www.heilsugaeslan.is Stuðningsstöngin er hjálpar- og öryggistæki sem auðveldar fólki að vera virkt og athafnasamt við daglegt líf án þess að þurfa að reiða sig á aðra. Margir Iðjuþjálfarar, sjúkraþjálfarar og læknar hafa mælt með stuðningsstöngunum fyrir sína skjólstæðinga. • Auðveld í uppsetningu. • Engar skrúfur eða boltar. • Tjakkast milli lofts og gólfs. • Hægt að nota við hallandi loft, 0–45° timbur/gifsloft. Stuðningsstangirnar hafa fengið verðlaun fyrir notagildi, öryggi og hönnun á alþjóðlegum hjálpartækjasýningum. • Margir aukahlutir í boði. • Falleg og nútímanleg hönnun. • Passar allstaðar og tekur lítið pláss. • Stillanleg frá 225–307 cm lofthæð, togátak allt að 205 kg. Yfir 800 0 ánæg ðir notend ur á Ísl andi Stuðnin gs- stöngin Skipholti 29b • S. 551 0770 NÝ SENDING AF VETRARVÖRUM! SÍÐUSTU DAGAR AF RÝMINGASÖLUNNI. NÝKOMINN AFTUR Laugavegi 178 - Sími: 551 3366 Þú mætir - við mælum og aðstoðum www.misty.is Opið frá 10-18 virka daga. 10-14 laugardaga teg 11008 - blúnduhaldari í B,C skálum á kr. 5.800, - buxur í stíl á kr. 1.995,- UPPLÝSINGAR O Nýtt námskeið hefst 31. ágúst 0.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.