Fréttablaðið - 27.08.2013, Blaðsíða 10

Fréttablaðið - 27.08.2013, Blaðsíða 10
27. ágúst 2013 ÞRIÐJUDAGUR| FRÉTTIR | 10 MENNING Myndlistarmaðurinn Steingr ímur Eyfjörð fann skúlptúrinn Grýlu í vor eftir að hafa leitað að því í fimm ár. Nú segir hann að listaverkasafnarinn Gunnar Dungal, oftast kenndur við Pennann, vilji ekki standa við gerða samninga um kaup á listaverkinu sem gerðir voru árið 2007. „Ég fann ekki verkið fyrr en í vor,“ útskýrir Steingrímur en Grýla var til sýnis í galleríinu Max Pro- tetch í New York í Bandaríkjunum árið 2008. Eigandi gallerísins seldi starfsemina til annars aðila og hætti störfum í kjölfarið. Verkið hvarf og Steingrímur seg- ist hafa leitað til bandaríska sendi- ráðsins um aðstoð sem aftur benti á utanríkisráðuneytið. Ekkert gekk í þeim leiðangri og úr varð að hann fékk lögfræðing til þess að finna fyrir sig verkið. Sá hafði samband við einkaspæjara í Bandaríkjunum. „Þá fór þetta að ganga,“ segir Steingrímur en einkaspæjarinn fann verkið skömmu síðar. Það reyndist vera í vöruskemmu skammt fyrir utan borgina. Steingrímur segir að hann hafi samið við Gunnar Dungal árið 2007 um að selja honum þrjú lista- verk. Gunnar fékk afhent og borg- aði fyrir tvö verk. Steingrímur segir Gunnar ekki vilja standa við gerða samninga um kaup á Grýlu, sem kostar þrjár milljónir króna, eftir að verkið var endurheimt. „Mér finnst mjög sérkennilegt að hann hafi ekki viljað koma til móts við mig á neinn hátt,“ segir Stein- grímur. „Það eru sex ár síðan ég átti að fá þessa styttu steypta í brons og sam- kvæmt öllum okkar samskiptum, sem eru til í tölvupósti, er algjör- lega skýrt að Steingrímur átti að sjá um þá hlið málsins,“ segir Gunnar Dungal. Gunnar bætir við að hann átti sig ekki á því að vera dreginn inn í málið, það snúi að Steingrími, en ekki honum sjálfum. „Ég hafna þessum ásök- unum alfarið,“ segir Gunnar um meintar vanefndir. Steingrímur segir að það hafi verið í farvatninu að finna ódýra leið til þess að gera afsteypu af verkinu. Hann hafnar því að einhvers konar samkomulag hafi náðst þar u m. H a n n segir að það hafi verið dýrari lausn en að kaupa frum- myndina. „Og ef það hefði gengið eftir, þá hefði Gunnar þurft að greiða fyrirfram fram- leiðslukostnaðinn,“ segir Steingrímur, sem íhugar að fara með málið fyrir dómstóla. - vg UMDEILD GRÝLA Steingrímur Eyfjörð með listaverkið Grýlu. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Einkaspæjari fann Grýlu í New York í Bandaríkjunum Steingrímur Eyfjörð myndlistarmaður endurheimti listaverkið Grýlu, sem hvarf í Bandaríkjunum, eftir fimm ára leit. Hann segist hafa samið við safnara um kaup á verkinu áður en það hvarf. Því vísar kaupandinn á bug. GUNNAR DUNGAL segir það rangt að hann sé skuld bundinn til þess að kaupa Grýlu. Steingrímur Eyfjörð er einn þekktasti myndlistarmaður Íslendinga, en hann sýndi meðal annars á Feneyjatvíæringnum árið 2007. Þá fékk hann Sjón- listarverðlaunin árið 2008 fyrir verk sitt Lóan er komin, auk þess sem hann hefur verið tilnefndur til Carnegie Art verðlaunanna. ➜ Þekktur myndlistarmaður NORÐURLÖND Norskur lax selst illa í Kína 1 NOREGUR Norskir fiskútflytjendur merkja ekki yfirlýstan vilja norskra og kín- verskra yfirvalda til þess að bæta sam- skipti landanna, sem hafa verið stirð frá því að Liu Xiaobo fékk friðarverðlaun Nóbels fyrir tæpum þremur árum. Norskur lax selst ekki vel á fiskmark- aðnum í Sjanghæ. Samkvæmt frétt Dagens Næringsliv selja Færeyingar nú meira magn af laxi til Kína en Norðmenn. Norski laxinn er sagður geymdur á lager á landamærum Kína í allt að þrjá daga. Þannig sé lax frá Skotlandi eða Færeyjum ekki meðhöndlaður. Skólakrakkar björguðu þyrluáhöfn 2 SVÍÞJÓÐ Nemar í 9. bekk grunnskóla í Stokkhólmi björguðu tveimur mönnum þegar þyrla hrapaði við Tyresö fyrir utan Stokkhólm í gær- morgun. Í fréttum sænskra fjölmiðla segir að flugmanni þyrlunnar hafi tekist að sveigja frá nemunum áður en þyrlan hrapaði. Skólabörnin, sem reru með mennina að landi, höfðu það eftir flugmanninum að þyrlan hefði verið við mælingar og flogið of nálægt hafsfletinum. Danir vilja læra reiðistjórnun 3 DANMÖRK Dönum sem leita sér aðstoðar til þess að ná stjórn á reiði sinni fjölgar stöðugt, að því er segir í frétt á vef Kristilega dagblaðsins. Þar er þess getið að til dæmis sé um að ræða reiði í garð vinnufélaga, rifrildi innan fjölskyldunnar eða stjórnlausa bræði í umferðinni. Ekki eru til heildartölur yfir þann fjölda sem vill læra reiðistjórnun en sífellt fleiri sálfræðingar, dávaldar og ráðgjafar bjóða slíka meðferð. islandsbanki.is | Sími 440 4000 Við bjóðum góða þjónustu Frumkvöðlasjóður Íslandsbanka auglýsir eftir umsóknum um styrki Frumkvöðlasjóður Íslandsbanka styrkir verkefni á sviði umhverfismála með sérstakri áherslu á endurnýjanlega orku, sjálfbæran sjávarútveg og verndun hafsvæða. Markmið sjóðsins er að hvetja til nýsköpunar og þróunar á þessum sviðum. Heildarupphæð úthlutunar er allt að fimm milljónum króna. Nánari upplýsingar um sjóðinn og úthlutunarreglur hans má finna á vef Íslandsbanka. Úthlutunardagur er 8. október 2013 Sækja skal um á vef bankans til og með 25. september 2013: www.islandsbanki.is/frumkvodlasjodur Umsóknum skal fylgja, eftir því sem við á: · Greinargóð lýsing á verkefninu · Verk- og tímaáætlun · Ítarleg fjárhagsáætlun · Upplýsingar um aðra fjármögnun verkefnis · Ársreikningur · Upplýsingar um eignarhald og rekstrarform Styrkþegar Frumkvöðlasjóðs Íslandsbanka vorið 2013: Pólar og togbúnaður, Veðurstofa Íslands, Norðursigling, GeoSilica og IceWind 1 2 3 SVÍÞJÓÐ Sænski rithöfundurinn og blaðamaðurinn Jan Guillou hvetur menntamálaráðherra Svíþjóðar, Jan Björklund, til þess að loka heimavistar- skólanum Lundsberg þar sem tveir nemendur hlutu brunasár við busun um helgina. Guillou segir skólann ekki þjóna sam- félaginu, heldur eingöngu þjálfa yfirstéttina. Rithöfundur- inn var sjálfur í heimavistar- skóla og honum er vel kunnugt um hvernig nemendur eru niður- lægðir, að því er kemur fram á vef Aftonbladet. Hann segir mögulega einn slíkan skóla eiga rétt á sér fyrir börn foreldra sem starfa utan Svíþjóðar. - ibs Rithöfundurinn Jan Guillou: Loka verður heimavistum JAN GUILLOU STJÓRNSÝSLA Ráðherra fundar Menntamálaráðherra átti fund með fulltrúa frá kínverskri stofnun um alþjóðasamskipti á sviði menntamála. Fulltrúarnir sem voru staddir hér á landi kynntu ráðherranum m.a. áform sín um samstarf við önnur ríki og um frekari möguleika á stúdentaskiptum milli Íslands og Kína. Rafræn auðkenning Embætti ríkisskattstjóra hvetur til aukinnar notkunar rafrænna skilríkja, bæði að þau verði notuð í auknum mæli til auðkenningar og til undir- ritunar. Í skýrslu frá ráðgjafafyrirtækinu Admon eru skilríkin öruggasta rafræna auðkenningin sem í boði er á Íslandi.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.