Fréttablaðið - 27.08.2013, Blaðsíða 20

Fréttablaðið - 27.08.2013, Blaðsíða 20
BÍLAR FRÉTTABLAÐIÐ 2 27. ágúst 2013 ÞRIÐJUDAGUR BENZ E250 CDI 4MATIC Finnur Thorlacius reynsluekur N ýkominn er til landsins heil mikið breyttur Mercedes Benz E-Class bíll sem ekki flokkast þó sem ný kynslóð þessa bíls, en E-Class rekur ættir sínar allt til ársins 1953. Fyrir vikið er hann ekki í hópi þeirra bíla sem til greina koma sem bíll ársins hér á landi né annars staðar þrátt fyrir að einum 2.000 íhlutum í bílnum hafi verið breytt á milli árgerða. Þessar breytingar allar hafa ekki síst skilað sér í mun fallegri bíl, en forveri hans vann engar fegurðarsamkeppnir. Nú er E-Class hins vegar orðinn eftir tektarvert fallegur bíll sem nágrannarnir stara á þau fáu skipti sem ökumaður tímir að njóta hans ekki í akstri. Bíllinn er nú orðinn sláandi fallegur og beinar og rísandi hliðar- línur hans gefa honum renni- legt útlit og mjög svo breyttur framendi bílsins er líklega samt það fallegasta við hann. Það var mikil þörf á þessari útlits- breytingu bílsins og nú eru eigendur hans með bíl í höndun- um sem stendur úr fjöldanum og margur heldur að sé mun dýrari bíll. Ekki skaðar það bílinn að hann kemur á hrikalega flottum felgum. Öflug en hávær dísilvél Bíllinn sem reyndur var ber nafnið E250 CDI 4Matic og er knúinn af 2,2 lítra dísilvél og fjórhjóladrifinn. Vélin er fjög- urra strokka með tvær for- þjöppur og skilar öskrandi 500 Nm togi. Hestöflin eru 204 tals- ins, en það segir ekki allt þegar tog hennar er svo mikið og því er bíllinn afar öflugur og hreint ári gaman að gefa honum inn. Hann er ekki nema 7,8 sekúndur í hundraðið þrátt fyrir að bíllinn vegi næstum 1,9 tonn. Fátt annað en gott er hægt að segja um þessa vél nema það að í henni heyrist mun meira en við má búast og skilar það sér inn í bílinn. Þetta virðist eiga við fjögurra strokka dísilvélar Benz en hins vegar eru sex gíra dísil- vélar þeirra sérlega hljóðlátar. Upptak bílsins er ágætt og togið heldur áfram eins lengi og óskað er, en sjálfskiptingin er þannig stillt að í fyrstu sparkar hann ekki heldur líður ljúflega af stað en svo æsast leikar. Vélin er mjög sparneytin þrátt fyrir allt aflið og uppgefin eyðsla er 5,1 lítri í blönduðum akstri. Freist- andi er þó að aka bílnum á þann hátt að þeirri lágu eyðslutölu verði seint náð. Gæðaleg og mikið breytt innrétting Benz hefur oftast nær staðið fyrir gæði, en þó hefur fyrir- tækið hikstað stundum í þeim fræðunum og fyrir vikið verið oft í eltingaleik við aðra lúxus- bílaframleiðendur. Af frágangi þessa bíls, útliti, tækni og smíða- gæðum að dæma virðist Merce- des Benz vera aftur búið að ná vopnum sínum. Innrétting bíls- ins er glæsileg og til vitnis um nýja og smekklega stefnu. Það á reyndar við alla nýrri bíla Mercedes Benz sem fyrirtækið kynnir nú sem á færibandi og er bílgerðum fyrirtækisins að fjölga jafnört og kanínum á Íslandi. Þeir eiga það sammerkt með kanínunum að vera sætir og gæti því fjölgað jafn ört á göt- unum og þeim loðnu á útivistar- svæðunum. Jafn miklu hefur verið breytt að innan í E-Class og hvað annað varðar í bílnum og mjög vel hefur tekist til. Sætin eru klædd hágæða Nappa- leðri og eru rafstillanleg á alla kanta. Staðsetning stillitakkanna er mjög óvenjuleg, eða í hliðar- hurðunum, en uppsetning þeirra er afar sjónræn og töff. Mæla- borðið er kannski ekkert framúr- stefnulegt en ber vitni um fágun, einfaldleika og skilvirkni. Mörg falleg smáatriði í innréttingunni vekja gleði. Gamaldags klukkan fyrir miðju þess er nostalgísk og gullfalleg. Stór sóllúgan er glæsileg en hefur þó einn ókost. Fremsti hluti hennar er of aftar- lega að mati reynsluökumanns og mætti vera 5-10 cm fram- ar. Aftursætin eru eins flott og framsætin og þar er bæði nægt fóta- og höfuðrými. Fimur í akstri Aksturseiginleikar þessa breytta E-Class bíls komu reynsluöku- manni skemmtilega á óvart og fyrir vikið var hreint óskaplega gaman að láta reyna á getu hans. Hann svínliggur í beygjum og það hefur vissulega hjálpað að reynsluakstursbíllinn var fjór- hjóladrifinn, eða 4Matic, eins og Mercedes kallar það. Fjöðrun bílsins virðist mjög vel upp- sett fyrir þægilegan akstur, ekki of mjúk og ekki of stíf. Ójöfnur allar jafnar fjöðrunin snyrti- lega út og hraðahindranir, eins leiðinlegar og þær eru á mörgum bílum, eru teknar í forrétt. Veg- grip bílsins er einkar sannfær- andi og virkilega langt þarf að ganga til að losa grip dekkjanna við undirlagið. Eitt fannst þó und- arlegt við akstur bílsins, en það varðar stýrið. Það þyngdist og léttist í átaki eftir því hvernig farið var í beygjur. Tók nokkurn tíma að venjast þessari hegðun en stýris aðstoðin á að gera öku- VEL HEPPNUÐ UPPFÆRSLA E-CLASS Er gerbreyttur bíll sem tekið hefur miklum framförum þó svo að hann sé ekki af nýrri kynslóð. 2.000 íhlutum í bílnum hefur verið breytt á milli árgerða. Vantar bíla á skrá Við getum selt bílinn þinn! Umboðsaðilar www.bilo.is ERTU MEÐ KAUPANDA?Skjalafrágangur frá kr. 15.080 F ÍT O N / S ÍA Úr umsögn dómnefndar: „Vefurinn býður upp á margskonar afþreyingu auk gífurlegs úrvals frétta. Vefurinn er léttur og skemmtilegur auk þess sem einfalt og fljótlegt er að finna það efni sem leitað er að.“ BESTI FRÉTTA- OG AFÞREYINGARVEFURINN Minna að fletta meira að frétta Frábært úrval afþreyingar, ferskar fréttir, fjölbreytt efnisval, myndrænt viðmót og færri flettingar. Þess vegna var visir.is kosinn besti frétta- og afþreyingarvefur ársins á Íslensku vefverðlaununum 2012. www.visir.is/bilar BÍLAR Umsjón blaðsins Finnur Thorlacius finnurth@365.is Útgáfufélag 365 miðlar ehf. Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík, sími 512 5000 Auglýsingar Sverrir Birgir Sverrisson sverrirbirgir@365.is Sími 5125432 Hönnun Silja Ástþórsdóttir siljaa@frettabladid.is 2,2 L. DÍSIL, 204 HESTÖFL Fjórhjóladrif Eyðsla 5,1 l./100 km í bl. akstri Mengun 134 g/km CO2 Hröðun 7,8 sek. Hámarkshraði 232 km/klst Verð 7.790.000 kr. Umboð Askja BENZ E250 CDI 4MATIC

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.