Fréttablaðið - 27.08.2013, Blaðsíða 19

Fréttablaðið - 27.08.2013, Blaðsíða 19
ÞRIÐJUDAGUR 27. ÁGÚST 2013 BÍLAR S tyttast fer í árlegt kjör á bíl ársins hérlendis en það er Bandalag íslenskra bílablaða- manna (BÍBB) sem stendur að kjörinu. Nú er ljóst hvaða bílar það eru sem koma til greina í kjörinu. Þeir eru tuttugu talsins og eiga það allir sammerkt að vera nýrrar gerðrar eða af nýrri kynslóð og hafa komið til landsins eftir síðasta kjör. Bílarnir falla í þrjá flokka; smábílar og minni millistærð, fjölskyldubílar og loks jeppar og jepplingar. Söluhæsti flokkurinn Í flokki smábíla og minni millistærðar bíla eru Renault Clio, VW Golf, VW Golf GTi, Ford B-Max, Skoda Rapid, Toyota Auris TS og Toyota Corolla. Stutt er síðan sölu- hæsti einstaki bíll heims, Toyota Corolla, kom til landsins. Það á einnig við Golf GTi en lengra er síðan hinir bílarnir komu til landsins. VW Golf var valinn bíll ársins í Evrópu og heiminum öllum í síðasta kjöri en hann var ekki kominn til Íslands áður en kjör á bíl ársins í fyrra fór fram. Í þessum flokki eru söluhæstu bílar lands- ins og á það einnig við í heiminum öllum. Sterkur flokkur  ölskyldubíla Í flokki fjölskyldubíla koma til greina bíl- arnir Mercedes Benz CLA, Kia Carens, Mazda 6, Skoda Octavia, og Lexus IS300h. Stutt er síðan Mercedes Benz CLA var kynntur til leiks hérlendis og á það einnig við Lexus IS300h, sem fékk mjög góða dóma hjá reynsluökumanni Fréttablaðsins hér fyrir skömmu. Öllum hinum bílunum hefur verið reynsluekið af blaðinu og flestir þeirra fengið góða dóma, svo hörð barátta verður greinilega í þessum flokki bíla. Margir í jeppa- og jepplingaflokki Flokkur jeppa og jepplinga er mjög fjöl- mennur að þessu sinni og átta bílar sem fylla þann flokk. Það eru Mercedes Benz GL, Honda CR-V, Subaru Forester, Isuzu D-Max, Ford Kuga, Mazda CX-5, Mitsubishi Outlander og Toyota RAV. Það er ef til vill ekkert skrítið að þessi flokkur sé stór hér- lendis, en þessir bílar henta einstaklega vel íslenskum aðstæðum. Í flokknum eru sex jepplingar en aðeins tveir jeppar, þ.e. Mercedes Benz GL og Isuzu D-Max. Er það til marks um þá áherslu sem bílafram- leiðendur hafa lagt á jepplinga undanfarið. Prófanir standa yfi r Valinn verður sigurvegari í hverjum þessara flokka og einn þeirra mun standa uppi sem bíll ársins á Íslandi þetta árið. Prófanir á þeim bílum sem ekki hefur verið reynsluekið fara nú fram og tilkynnt verður um val á bíl ársins seint í september. Afhending verðlaunanna verður í höndum Bílgreinasambandsins og BÍBB. Bandalag íslenskra bílablaða- manna eru samtök blaðamanna sem sjá um umfjöllun um bíla í íslenskum fjöl miðlum, auk þess sem í félaginu eru sjálfstætt starfandi bílablaðamenn. Flott uppfærsla Merceders Bens E-Class er gjörbreyttur Dýrt spaug Nýr bíllykill getur kostað fúlgur fjár BÍLL ÁRSINS KJÖRINN Í SEPTEMBER Tuttugu bílar koma til greina og eiga þeir það sammerkt að vera nýrrar gerðar eða af nýrri kynslóð.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.