Fréttablaðið - 27.08.2013, Blaðsíða 28
27. ágúst 2013 ÞRIÐJUDAGUR| MENNING | 20
TÓNLEIKAR ★★★★ ★
Stephen Burns og
Douglas Cleveland
Efnisskrá á Kirkjulistahátíð í
Hallgrímskirkju.
FIMMTUDAGINN 22. ÁGÚST
Að hlusta á einleiks-
trompet í návígi í mikl-
um hljómburði er eins
og að vera með öskrandi
páfagauk á öxlinni.
Það var upplifun mín á
fjórða bekk í Hallgríms-
kirkju á Kirkjulistahá-
tíð á fimmtudagskvöld-
ið. Trompet er skærasta
málmblásturshljóðfær-
ið. Endur ómunin í kirkj-
unni tífaldaði hljóminn
í honum. Það hefði verið
gott að vera með eyrna-
tappa.
En þrátt fyrir að
trompetblástur inn hefði
verið sársaukafullur
áheyrnar var ekki hægt
að neita því að hann var
einstaklega glæsileg-
ur. Stephen Burns, frá
Chicago, spilaði fyrst
Sónötu í D-dúr eftir
Tele mann. Hann gerði
það af gríðar legri fag-
mennsku. Þetta er létt
og leikandi verk, hátíð-
legt eins og flest frá bar-
okktímabilinu, en einnig
glaðlegt. Túlkun Burns
var kraftmikil og lifandi,
nákvæm og öguð – allt í
senn.
Orgelleikurinn var ekki
heldur af verri endanum.
Douglas Cleveland frá
Seattle spilaði af öryggi
og festu. Hraðar nótnar-
unur voru tærar og jafn-
ar, heildarhljómurinn lit-
ríkur og voldugur.
Cleveland átti flott-
an einleikssprett síðar á
dagskránni er hann flutti
prelúdíu í G-dúr eftir
Bruhns. Hann þurfti þar
m.a. að stíga leiftur hratt á
pedalana. Svo mjög að það
var nánast eins og hann
væri að dansa steppdans.
Það var skemmtilegt að
upplifa.
Eitt glæsilegasta atrið-
ið á tónleikunum var þó
ekki steppdans organist-
ans, heldur djassskotin
tónsmíð eftir samtíma-
tónskáldið Julian Wac-
hner. Hún bar nafnið
Blue, Green, Red. Þar
kom trompet leikarinn
aftur inn í kirkjuna og
spilaði af yfirburðum sem
fyrr. Það var nettur Miles
Davis-fílingur í flutningn-
um og rétt eins og Davis
galdraði Burns alls konar
blæbrigði úr trompetnum.
Allt frá fínlegum ómi yfir
í tröllaukin tónahlaup.
Tónlistin sjálf var líka
þægileg áheyrnar. Hún
var að vísu dálítið kulda-
leg og fjarlæg, en gædd
innra samræmi – hún
samsvaraði sér vel.
Svipaða sögu er að
segja um næstu tvö verk
á dagskránni. Annars
vegar Elegy for Mundy
eftir James Stephenson,
hins vegar orgeleinleiks-
verkið Grand Dialogue
í C-dúr eftir Marchand.
Þau voru bæði snilldar-
lega flutt, af vandvirkni
og viðeigandi tilfinningu.
Loks var leikinn kons-
ert í C-dúr eftir Vivaldi
þar sem annar trompet-
leikari bættist í hópinn.
Það var hinn ungi Baldvin
Oddson (f. 1994). Bald-
vin er greinilega frábær
trompetleikari, því hann
gaf Burns ekkert eftir.
Samspil þeirra var sér-
lega nákvæmt. Stundum
hljómaði það hreinlega
eins og leikið væri á eitt
fjölradda hljóðfæri. Það
var aðdáunarvert.
Jónas Sen
NIÐURSTAÐA: Afar góður
hljóð færaleikur og lífleg
efnisskrá.
Organistinn dansaði steppdans
Hollenski myndlistarmaðurinn Kees Visser hefur sett upp skúlptúr
við Leirvogshólma í nágrenni Korpúlfsstaða sem stjórnast af flóði og
fjöru. Um er að ræða endurgerð verksins Tidal skulpture – Flóð og
fjara, sem listamaðurinn setti upp á sama stað árið 1980 en sjórinn
skolaði á haf út nokkrum árum seinna.
Tilefni verksins er einkasýning Kees Visser á Listasafni Íslands
sem opnuð verður 6. september og nefnist Ups and Downs. Í tengslum
við hana gefur Crymogea út bók með sama titli. - gun
Flóð og fj ara
Skúlptúr úr rekaviði eft ir Kees Visser var afh júpaður
í gær við Leirvogshólma nærri Korpúlfsstöðum.
LISTAVERKIÐ
Kees Visser
við skúlptúr-
inn sem hann
endurgerði í
stað þess sem
hvarf í hafið.
FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
Vinsælasti bíll heims á enn betra verði
FORD FOCUS TREND EDITION
Ford Focus, söluhæsti bíll í heimi árið 2012, er nú fáanlegur í nýrri útfærslu.
16“ álfelgur eru undir bílnum og sérstakt Trend Edition áklæði á sætum.
Loftkæling, öflug aksturstölva, regnskynjari í framrúðu og blátannarbúnaður
eru einnig til staðar. Til viðbótar hefur verið hugað að fjölmörgum
praktískum atriðum, svo sem sjálfvirkri dimmingu á baksýnisspegli
og sniðugri hurðavörn. Komdu og reynsluaktu vinsælasta bíl heims.
Ford Focus Trend Edition 5 dyra, 1,0 EcoBoost bensín 125 hö. 6 gíra beinskiptur. Eldsneytisnotkun í blönduðum akstri 5,0 l/100 km. Losun koltvísýrings CO2 114 g/km., fær frítt í stæði í Reykjavík
í 90 mín. í senn. Tökum allar tegundir bíla upp í nýja. Brimborg og Ford áskilja sér rétt til að breyta verði og búnaði án fyrirvara. Útbúnaður og gerð getur verið frábrugðin mynd í auglýsingu.
ford.is
5 DYRA FRÁ
STATION FRÁ
FORD FOCUS
3.390.000 KR.
3.540.000 KR.
TREND EDITION
MENNING