Fréttablaðið - 27.08.2013, Síða 12
27. ágúst 2013 ÞRIÐJUDAGUR| FRÉTTIR | 12
EFNAHAGSMÁL Niðurstaða nýrrar
kjarakönnunar, sem unnin var
fyrir Bandalag háskólamanna
(BHM), sýnir að enn er langt í land
hvað varðar óútskýrðan launamun
kynjanna.
Kjarakönnunin var gerð af
fyrir tækinu Maskínu fyrir banda-
lagið og aðildarfélög þess og
fjallar um laun félagsmanna og
aðra þætti sem tengjast kjörum
og starfsumhverfi þeirra.
Samkvæmt könnuninni var
launamunur kynjanna 16,3 prósent
í febrúar á þessu ári, þegar tekin
eru mánaðarlaun fyrir aðal-
starf félagsmanna. Þegar launa-
munurinn hefur svo verið leið-
réttur með tilliti til starfshlutfalls,
vinnustunda,
aldurs, mennt-
unar, mannafor-
ráða og fjárhags-
legrar ábyrgðar
er launamunur-
inn samt sem
áður 8,4 prósent.
„Ljótasta nið-
u r s t a ð a n ú r
könnuninni var
launamunur
kynj anna, sem slær mikið,“ segir
Guðlaug Kristjánsdóttir, formaður
BHM. Hún bætir við að aldrei eigi
að ríkja óútskýrður launamunur
milli háskóla menntaðra manna.
Heildarlaun karla í félaginu voru
að meðaltali 579 þúsund krónur en
laun kvenna á sama tímabili námu
497 þúsund krónum, og munar þar
um rúmlega 80 þúsund krónum.
Launamunur kynjanna í árslaun-
um árið 2012 nam 21 prósenti, en
leiðrétti munurinn 11,9 prósentum.
Könnunin sýnir jafnframt að
konur eiga frekar á hættu að verða
fyrir launamisrétti ef þær starfa
hjá hinu opinbera en á hinum
almenna vinnumarkaði. Til að
mynda nemur launamunur hjá
Reykjavíkurborg 8,5 prósentum en
hann er 8 prósent hjá einkafyrir-
tækjum í febrúar á þessu ári. „Það
á að liggja alveg klárt fyrir hjá
ríki og sveitarfélögum að launa-
kerfin fyrirbyggi kyn bundinn
launamun, en þau eru ekki að
skora betur en aðrir atvinnurek-
endur,“ segir Guðlaug og bætir við
að munurinn sé allt of hár.
„Það sem var ánægjulegt við
könnunina er að hún sýnir að laun
hækka eftir því sem menntun
eykst og með það getum við verið
sátt,“ segir Guðlaug.
BHM er félag sem vinnur að
réttindum háskólamenntaðra
manna. Könnunin er sú fyrsta
sem kemur frá félaginu og segir
Guðlaug að vænta megi sambæri-
legrar könnunar frá félaginu á ári
hverju í framtíðinni. „Nú erum við
byrjuð að safna í gagna bankann,
sem vonandi nýtist til þess að
ná fram sem mestum jöfnuði og
bestum kjörum fyrir félagsmenn
á komandi árum. BHM mun nú
vinna að því að tækla þennan
launamun á öllum mögulegum
vígstöðum og þar á meðal í kjara-
viðræðum í haust.“
lovisa@frettabladid.is
!
"
#
$%
&
'
()*
# ,
-*
,
3 ' #
#, )4 ##
## 2
'
#
&
'
##5
6
!
7*'
# 7,"
#
82
&
#
#
,
,
%
&
# #
29 ::
4% "", ;
#,
# '
#*7 '
'2
<, ""%
,===22
VIÐSKIPTI Jón S. von Tetchner, fjár-
festir og annar stofnenda norska
hugbúnaðarfyrirtækisins Opera,
hefur keypt 23 prósenta hlut í sam-
skiptamiðlinum og frumkvöðla-
fyrirtækinu Spyr.is. Fyrirtækið
var stofnað þann 6. október árið
2012 af tólf konum sem langaði til
þess að efla gagnsæi í sam félaginu
og gefa almenningi greiðari
aðgang að upplýsingum. „Spyr.is
er bráðskemmtileg hugmynd og
eitthvað sem passar samtímanum
mjög vel. Það er mikið af góðu
efni á Spyr.is þar sem lesendur fá
að ráða ferðinni,“ segir Jón. Hann
hefur mikla trú á því að þjónusta
fyrirtækisins eigi eftir að vaxa vel
hér á landi sem og erlendis.
Spyr hefur það hlutverk að kalla
eftir upplýsingum fyrir hönd
almennings og nú þegar hafa
um fimm hundruð aðilar
svarað lesendum síðunnar.
Rakel Sveinsdóttir, fram-
kvæmdastjóri Spyr.is er
afar ánægð með nýja
hluthafann í hópnum.
„Við viljum auka
fjölbreytni í
eigendahóp fyrirtækisins og þar
skiptir miklu máli að fá öflugan
mann í hópinn, eins og Jón. Hann
er sjálfur frumkvöðull með mikla
reynslu, en notendur Opera telja
nú um 300 milljónir,“ segir Rakel,
sem sjálf á um 30 prósenta hlut
í Spyr.is.
Ásamt kaupunum stefnir
Jón nú að því að opna frum-
kvöðlasetur á Eiðistorgi með
aðstöðu fyrir sprota-
fyrirtæki og tengingu
við sams konar
setur í Noregi og
Boston, sem einnig eru á vegum
Jóns. Spyr.is mun flytja aðsetur
sitt þangað í næsta mánuði ásamt
öðrum sprotafyrirtækjum.
- le
Jón S. von Tetzchner hefur fest kaup á stórum hluta í Spyr.is og hyggst opna frumkvöðlasetur á Eiðistorgi:
Fyrsti karlmaðurinn í hluthafahópnum
Heildargreiðslur í febrúar 2013
Launamunur kynja: 16,3%
Að teknu tilliti til:
Starfshlutfalls og vinnustunda 11,0%
Aldurs og menntunar 8,9%
Mannaforráða og fjárhagslegrar ábyrgðar 8,4%
PI
PA
R\
TB
W
A
W
A
\T
BW
PA
R\
PI
PA
S
ÍASÍ
A
S
ÍA
13
24
355
24
35
13
2
Skeifunni 11B Reykjavík Sími 519 7550 promennt@promennt.is promennt.is
Námskeið sérstaklega ætlað 60 ára og eldri sem litla sem enga tölvukunnáttu
hafa. Hæg yfirferð með reglulegum upprifjunum og endurtekningum í umsjá
þolinmóðra og reyndra kennara. Tölvugrunnur, internetið og tölvupóstur.
Hefst: Kennt: (sjö skipti) frá
Verð: (Kennslubók á íslensku innifalin)
Hentar þeim sem lokið hafa byrjendanámskeiðinu eða hafa sambærilega undir-
stöðu. Byrjað er á upprifjun tölvugrunns áður en haldið er lengra í ritvinnslu.
Frekari æfingar í notkun internets (t.d. Facebook o.fl.) og í allri meðferð tölvupósts.
Hefst: Kennt: (sjö skipti) frá
Verð: (Kennslubók á íslensku innifalin)
Vinsælt og gagnlegt námskeið þar sem tekið er fyrir það helsta sem
almennir notendur þurfa að kunna um stafrænar myndavélar. Yfirfærsla
mynda í heimilistölvuna, skipulag myndasafns, einfaldar lagfæringar,
myndir prentaðar og sendar í tölvupósti.
Hefst: Kennt: (fjögur skipti) frá
Verð: (Kennsluhefti á íslensku innifalið)
ALHLIÐA
SÓTTHREINSIR
500 ml úðabrúsi
VERÐ 539 KR.
Skeifunni 11 | Sími 515 1100 www.rekstrarland.is
PVC-FILMA
45 cm x 300 m
Verð frá 1.830 kr.
FÖST SÁPA
í sjálfvirkar uppþvottavélar, 5 kg
Stóreldhús
Í Rekstrarlandi býðst fjölbreytt
úrval af þaulreyndum
stóreldhúsvörum fyrir allar
gerðir eldhúsa.
VNR. 98145
VNR. 99607
VNR. 92674
Launamunur kynja
rúmlega átta prósent
Leiðréttur launamunur kynjanna var 8,4 prósent í febrúar á þessu ári, ef marka má
nýja kjarakönnun Bandalags háskólamanna. Formaður samtakanna segir niður-
stöðuna sláandi og að hún muni setja mark sitt á komandi kjaraviðræður í haust.
JÖFNUÐI EKKI
NÁÐ Kven-
réttindadagurinn
er haldinn 19.
júní ár hvert,
þar sem fólk
kemur saman
og berst meðal
annars fyrir
jöfnuði á
atvinnu markaði.
Niðurstaða
kjarakönnunar
BHM sýnir að
enn sé langt í
land.
GUÐLAUG
KRISTJÁNS-
DÓTTIR
Merkilegt þykir að þegar reiknaður er óútskýrður launamunur kynjanna
eftir vinnuveitendum kemur í ljós að mestur er munurinn hjá Reykjavíkur-
borg. Leiðréttur launamunur hjá borginni nemur 8,5 prósentum og hjá ríki
8,3 prósentum. Munurinn er 8 prósent hjá einkafyrirtækjum.
Guðlaug Kristjánsdóttir, formaður BHM, segir að niðurstaðan komi sér
á óvart og þá sérstaklega þar sem það eigi að liggja klárt fyrir hjá ríki og
sveitarfélögum að launakerfin fyrirbyggi kynbundin launamun.
KYNBUNDINN LAUNAMUNUR
MESTUR HJÁ BORGINNI
UMFERÐ Félag íslenskra
bifreiða eigenda (FÍB) hvetur
vegfarendur til þess að senda
myndir af stöðum þar sem fólk
telur merkingum vegna gang-
brauta ábótavant.
FÍB telur ámælisvert hversu
illa gönguleiðir yfir umferðar-
götur eru merktar. Slæmar og
óljósar merkingar við skóla og í
grennd við þá telur félagið sér-
staklega varhugaverðar. „Gervi-
gangbrautir“ sem víða sjást skapi
óvissu hjá vegfarendum. - hrs
FÍB gagnrýnir gangbrautir:
Hvetur fólk til
myndatöku
Jón Stephenson von Tetzchner
hefur fjárfest í nýsköpunarfyrir-
tækjum á Íslandi. Auk Spyr.is
hefur hann meðal annars nýlega
fjárfest í fjarskiptafyrirtækinu
Hringdu, hug búnaðarfyrirtækinu
OZ og hönnunarfyrirtækinu
SmartMedia.
➜ Öflugur fjárfestir