Fréttablaðið - 27.08.2013, Qupperneq 34
27. ágúst 2013 ÞRIÐJUDAGUR| SPORT | 26
FÓTBOLTI „Ég elska fótbolta svo mikið að mig
langar alltaf að spila aftur. Stefnan er að standa
mig það vel í endurhæfingunni að ég geti spil-
að aftur. Ef ég stefndi ekki á það væri aðgerð-
in tilgangslaus,“ segir landsliðskonan Guðný
Björk Óðinsdóttir. Miðjumaðurinn sókndjarfi
gekkst undir sína fjórðu aðgerð á ferlinum
vegna krossbandsslita í hné þrátt fyrir að vera
aðeins 24 ára gömul. Meiðslin gerðu vart við
sig á morgunæfingu liðsins eftir 3-0 tap gegn
Þýskalandi á Evrópumótinu í Svíþjóð í sumar.
„Ég bjóst ekki við því að hafa slitið en fékk
þessa tilfinningu. Þetta var ekki vont en ég
vissi líka að það væri eitthvað að inni í hnénu.
Eins og ég hefði slitið,“ segir Mosfellingurinn
uppaldi sem sleit í þriðja skipti á vinstri fæti.
Hún segir ástæðu þess að sársaukinn var lítill
líklegast vegna þess að sinin sem hún sleit var
ekki hennar eigin.
„Í fyrstu tvö skiptin sem ég sleit voru notaðar
sinar úr aftanlærisvöðvunum í aðgerðina. Það
er hins vegar bara hægt einu sinni,“ segir
Guðný Björk sem segir aðgerðina, sem fram
fór á miðvikudaginn, hafa gengið vel. Guðný
Björk var á léttri sendingaæfingu í upphitun
íslenska liðsins þegar krossbandið slitnaði,
sem er óvanalegt enda mun algengara að leik-
menn slasi sig við meiri ákefð. Hún segist hafa
æft með íslenska liðinu út Evrópumótið, að öllu
leyti nema í spili, enda ekki verið fullviss um
að krossbandið væri slitið.
Langaði strax í stuðning fjölskkyldunnar
Eftir tvær æfingar með liði sínu Kristianstad
í Svíþjóð gerði læknir henni ljóst að hún þyrfti
að fara í aðgerð.
„Það fyrsta sem ég hugsaði var að ég ætlaði
bara að flytja heim til mömmu og byrja nýtt
líf. Mann langar strax í stuðning frá fjölskyldu
fyrst þegar maður fer í gegnum þetta,“ segir
Guðný Björk. Sú hugsun hafi þó horfið jafn-
fljótt og hún kom.
„Svo hugsaði ég að ég væri búin að leggja
svo mikið á mig í fótboltanum og skólanum og
gengið vel þar. Það væri synd að henda því öllu
í ruslið og byrja á einhverju nýju heima,“ segir
Guðný sem er hálfnuð með meinatæknanám
sitt ytra. Hún hafi því ákveðið að drífa sig í
aðgerðina og klára skólann sem sé efst á for-
gangslista hennar núna.
Þótt Guðný ætli að spila fótbolta aftur viður-
kennir hún að óvíst sé á hvaða stigi það verði.
„Ég mæti ekki aftur til leiks og byrja að
æfa tíu sinnum í viku eins og áður. Hnén mín
þola það einfaldlega ekki,“ segir Guðný Björk.
Samningur hennar við Kristianstad rennur
út í lok leiktíðar í október en hún hefur ekki
áhyggjur af því. Ást hennar á íþróttinni skipti
mun meira máli en hvort hún fái samning aftur,
enda peningar algjört aukaatriði. Takmörkun
á fjölda útlendinga hjá hverju liði í sænsku
úrvalsdeildinni geri það líka að verkum að
líkur á að hún, sem slitið hefur krossbönd fjór-
um sinnum, fái samning séu minni fyrir vikið.
„Ég er að byrja mitt fimmta ár hér í Svíþjóð
svo ég get sótt um sænskan ríkisborgararétt í
janúar,“ segir Guðný Björk. Þá þyrfti hún í það
minnsta ekki að hafa áhyggjur af samkeppni
við útlendinga. Sænsku liðin reyni eðlilega að
styrkja sín lið með erlendum leikmönnum og sú
samkeppni er alltaf hörð.
Þrátt fyrir ungan aldur hefur Guðný Björk
afrekað mikið á ferli sínum. Hún varð Íslands-
meistari með Valskonum árin 2006 og 2007 og
hefur leikið fyrir hönd allra landsliða Íslands,
þar af 34 leiki með A-landsliðinu. Draumur
hennar að spila fyrir hönd Íslands á stórmóti
rættist svo í sumar.
Spilaði með öllum landsliðunum á einu ári
„Ég fékk ekkert að spila á EM í Finnlandi 2009
en ég kom inn á gegn Þýskalandi í sumar,“
segir Guðný Björk, sem sleit fyrst krossband
í hné sumarið 2004 aðeins 16 ára gömul. Ári
síðar var hún valin í U17 ára landsliðið í fyrsta
skipti og á innan við ári spilaði hún með U19
ára, U21 árs og A-landsliði Íslands. Ótrúleg
endurkoma svo ekki sé meira sagt.
„Landsliðið hefur alltaf verið draumur-
inn og gaf mér alltaf eitthvað til að stefna á,“
segir Guðný Björk, sem lagði hart að sér eftir
fyrstu slitin aðeins sextán ára gömul. „Maður
hefði getað valið að fara að drekka áfengi og
skemmta sér með vinunum. En ég hef ekki enn
þá dottið í þann pakka,“ segir vímuefnalausi
afreksmaðurinn sem hefur getið sér gott orð
fyrir harmonikkuleik sinn. Því miður getur
hljóðfærið ekki stytt henni stundir í augna-
blikinu. Guðný Björk fingurbrotnaði nefnilega
þegar hún skellti sér í vatnsrennibrautagarð
með fjölskyldu sinni á dögunum.
„Núna er ég á hækjum með gifs upp á
olnboga. Ég er algjörlega hreyfihömluð núna
og hef því ekkert getað tekið upp nikkuna,“
segir Guðný og hlær að óförum sínum. Hún
fái þó góða aðstoð og sé aðeins byrjuð að hvíla
hækjurnar.
Fjögur slit Guðnýjar Bjarkar á tíu árum
1. Sleit í leik með Aftureldingu í efstu deild kvenna sumarið 2004.
2. Sleit á skotæfingu með Val í í apríl 2008.
3. Sleit í æfingaleik með Kristianstad gegn Stjörnunni í mars 2012.
4. Sleit í upphitun á æfingu landsliðsinu á EM í Svíþjóð í júlí 2013.
Kolbeinn Tumi
Daðason
kolbeinntumi@365.is
Mörkin: 1-0 Tryggvi Sveinn Bjarnason (39.).
Stjarnan (4-4-2): *Ingvar Jónsson 7 - Jóhann
Laxdal 5, Tryggvi Bjarnason 6, Martin
Rauschenberg 5, Hörður Árnason 5 - Ólafur
Karl Finsen 5 (88., Gunnar Örn Jónsson -),
Daníel Laxdal 7, Robert Sandnes 5, Halldór Orri
Björnsson 7 - Veigar Páll Gunnarsson 6, Garðar
Jóhannsson 5.
ÍA (4-4-2): Páll Gísli Jónsson 6 – Einar Logi
Einarsson 5, Kári Ársælsson 7, Thomas Sörensen
5, Hector Bustamante 6– Joakim Wrele 5,
Jóhannes Karl Guðjónsson 6, Jón Vilhelm Ákason
7 (65., Arnar Már Guðjónsson 6), Hallur Flosason
5 (81., Andri Adolphsson - )– Ármann Smári
Björnsson 7, Eggert Kári Karlsson 6 (81., Hafþór
Ægir Vilhjálmsson -).
Skot (á mark): 14-13 (4-5) Horn: 7-5
Varin skot: Ingvar 3 - Páll Gísli 3.
1-0
Samsungvöllur
664 áhorfendur
Erlendur
Eiríksson (7)
Mörkin: 0-1 Einar Orri Einarsson (24.), 0-2
Bojan Stefán Ljubicic, víti (55.), 1-2 Viktor Bjarki
Arnarsson (61.), 1-3 Hörður Sveinsson (85.), 2-3
Haukur Baldvinsson (87.).
Fram (4-3-3): Ögmundur Kristinsson 5 - Daði
Guðmundsson 5 (73. Halldór H. Jónsson -), Alan
Lowing 4, Steffen Haugland 5, Jordan Halsman
5– Kristinn Ingi Halldórsson 6 (85. Jon Andre
Röyrane -), Viktor Bjarki Arnarsson 6, Samuel
Hewson 5– Almarr Ormarsson 5, Aron Bjarnason 4
(69. Haukur Baldvinss. -), Hólmbert Friðjónsson 6.
Keflavík (4-4-2): Ómar Jóhannsson 7 - Endre
Ove Brenne 6, Halldór Halldórsson 6, Haraldur
Guðmundsson 6 , Magnús Þórir Matthíasson
6 - Bojan Stefán Ljubicic 7 (71. Andri Fannar
Freysson 7), Einar Orri Einarsson 7, Jóhann B.
Guðmundsson 7 (71. Magnús Þorsteinsson 5), Ray
Anthony Jónsson 7 (90. Grétar Atli Grétarsson -) -
Hörður Sveinsson 8*, Frans Elvarsson 5..
Skot (á mark): 11-10 (8-6) Horn: 4-9
Varin skot: Ögmundur 2 - Ómar 6.
2-3
Laugardalsv.
558 áhorfendur
Guðmundur
Á. Guðmu. (6)
LEIÐRÉTT
Þau leiðu mistök voru gerð í blaði
gærdagsins að nafn Eiðs Smára
Guðjohnsen vantaði í upptalningu um
þá Íslendinga sem hafa skorað í ensku
úrvalsdeildinni. Er beðist velvirðingar á
þessum mistökum.
PEPSI DEILDIN 2013
STAÐAN
KR 15 12 1 2 37-17 37
FH 17 11 3 3 35-17 36
Stjarnan 16 10 4 2 25-15 34
Breiðablik 15 8 5 2 24-14 29
Valur 16 6 7 3 32-22 25
ÍBV 17 6 5 6 21-20 23
Fram 17 5 3 9 22-30 18
Fylkir 17 4 5 8 23-25 17
Keflavík 17 5 2 10 20-34 17
Þór 17 4 4 9 24-37 16
Víkingur Ó. 17 2 7 8 13-25 13
ÍA 17 2 2 13 21-41 8
NÆSTU LEIKIR
Fimmtudagur 29. ágúst: 18.00: Breiðablik -
Stjarnan, KR - Valur.
visir.is
Allt um leiki
gærkvöldsins
Fyrsta hugsun að fl ytja heim
Guðný Björk Óðinsdóttir sleit krossband í hné í fj órða sinn á Evrópumótinu í Svíþjóð. Landsliðskonan 24
ára ætlar sér endurkomu í fótboltann og gæti sótt um sænskan ríkisborgararétt í upphafi næsta árs.
AFREKSKONAN Guðný Björk á göngu í Svíþjóð á föstudaginn. MYND/AÐSEND
MARKALAUST Í MANCHESTER David Moyes, knattspyrnustjóri Manchester United,
skellti Wayne Rooney í byrjunarliðið sitt í stórleiknum á móti Chelsea á Old Trafford
í gær en það dugði þó ekki til að landa þremur stigum. Þetta var fyrsti heimaleikur
United undir stjórn Moyes og fyrsti leikur Rooney í byrjunarliðinu síðan Moyes tók
við. Hvorugt liðið var tilbúið að taka mikla áhættu í þessum mikilvæga leik og þau
sættust á endanum á markalaust jafntefli. MYND/NORDICPHOTOS/AFP
SPORT
FARIÐ VERÐUR MEÐ EINFÖLDUM HÆTTI YFIR:
Nánari upplýsingar og skráning í
síma 899 5020 eða á inga@inga.is
INGA
KRISTJÁNSDÓTTIR
Næringarþerapisti D.E.T.
kennir ykkur hve einfalt
það getur verið að bæta
mataræðið og hvaða ráð
hún hefur til þess.
Hverju er hægt að
skipta út og hvað kemur
í staðinn
Hvernig hægt er að
þekkja muninn á hollri og
skaðlegri fitu
Hvernig þú getur haldið
fullri orku allan daginn
og losnað við sykurþörf
og þreytuköst
STAÐUR OG STUND:
HEILSUHÚSIÐ
LÁGMÚLA 5,
KL. 18:30 – 21:00
ÞETTA ER EKKI FLÓKIÐ!
Inga hefur haldið yfir 80 fyrirlestra um
mataræði. Nálgunin er einföld, skýr og hentar
öllum sem hafa áhuga á breyttum lífsháttum.
4.900 kr. Ný og endurbætt 70 blaðsíðna mappa fylgir - fullt af uppskriftum og fróðleik.