Fréttablaðið - 27.08.2013, Qupperneq 38
27. ágúst 2013 ÞRIÐJUDAGUR| MENNING | 30
BESTI BITINN
Í BÆNUM
EDDA SIF GUÐBRANDSDÓTTIR
Hárgreiðslukona.
„Ég elska Sushi train og fer þangað reglulega
með vinkonu minni. Á laugardögum fer ég
mjög oft með fjölskyldunni minni á Gráa
köttinn og fæ mér trukkinn.“
„Við erum mjög ánægðir með
þetta. Maður semur alltaf lag í
þeim tilgangi að það verði gert
að smáskífu,“ segir Ásgeir Orri
Ásgeirsson, sem skipar upptöku-
teymið Stop Wait Go ásamt Pálma
Ragnari Ásgeirssyni og Sæþóri
Kristjánssyni. Myndband við lagið
Disco Love, sem þeir sömdu og
sungið er af bresku stúlknasveit-
inni The Saturdays, er nú aðgengi-
legt á Youtube.
Lagið var innblásið af dans-
smellinum I Wanna Dance With
Somebody sem Whitney Houston
gerði vinsælt árið 1986. „Við
sömdum lagið ekki fyrir neinn
sérstakan en sendum það út til
umboðsskrifstofu okkar. Fyrst var
samið um að lagið yrði tekið upp
af The Saturdays en þá var ekki
víst að það færi neitt lengra. Svo
fengum við að vita að lagið yrði á
næstu plötu sveitarinnar og síðan
var okkur sagt að lagið yrði að
smáskífu. Að slíkt takist í fyrstu
tilraun er eitthvað sem við megum
vera stoltir af,“ útskýrir Ásgeir.
„Nú er verið að skoða fleiri lög
frá okkur, bæði fyrir þær og aðra
listamenn.“
Stop Wait Go-liðar eru með
samning við bandaríska umboðs-
skrifstofu og fá reglulega sendan
lista af listamönnum sem eru í leit
að nýjum lögum. „Við fáum lista
með nöfnum listamannanna og
tóndæmi eða aðrar lýsingar frá
plötuútgefendum. Svo hefst maður
bara handa,“ segir Ásgeir. Þre-
menningarnir eru allir sjálflærðir
tónlistar menn og vinna tónlistina í
þar til gerðum tölvuforritum. Þeir
dvöldu í Los Angeles í sex mánuði
fyrir jól en hafa verið heima á
Íslandi í sumar.
Aðspurður kveðst Ásgeir
ánægður með myndbandið við
lagið og vonast eftir áframhald-
andi góðu gengi lagsins. „Ég er
mjög ánægður með myndbandið.
Það verður spennandi að sjá
hversu vel laginu mun ganga í
framtíðinni og hvort það nái inn
á vinsældarlista,“ segir hann að
lokum. sara@frettabladid.is
Mega vera stoltir
Lagið Disco Love, sem upptökuteymið Stop Wait Go samdi fyrir bresku stúlkna-
sveitina The Saturdays, hefur vakið lukku. Áframhaldandi samstarf er í skoðun.
TOPPURINN
Ásgeir Orri
Ásgeirsson,
Pálmi Ragnar
Ásgeirsson og
Sæþór Krist-
jánsson skipa
upptökuteymið
Stop Wait Go.
Lag sem þeir
sömdu fyrir
The Saturdays
hefur notið
vinsælda.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
➜ Lagið What About
Us með The Saturdays
flaug beint á topp breska
vinsældar listans í byrjun árs.
Þetta var tólfta lag sveitar-
innar til að ná inn á topp 10.
„Við ætlum að efna til fyrsta samflotsins
þann 2. september. Við fáum þá hluta
laugar innar til að fljóta og njóta,“ segir
Guðrún Kristjánsdóttir hjá Systra-
samlaginu. Verslunin, sem Guðrún rekur
ásamt Jóhönnu systur sinni, hefur tekið
höndum saman við vöruhönnuðinn Unni
Valdísi Kristjánsdóttur og Sundlaug Sel-
tjarnarness og skipulagt sérstök flotkvöld
sem munu fara fram í lauginni í vetur.
„Framkvæmdastjóri laugarinnar stakk
svo upp á því að fá Stjörnuskoðunarfélag
Seltjarnarness til liðs við okkur síðar í
vetur, mér fannst það stórkostleg hug-
mynd. Það er líklega fátt yndislegra en
að fljóta um og horfa upp í stjörnubjartan
himinn.“
Að sögn Guðrúnar er notast við flothettu
og fótaflot sem eru hönnuð á þann hátt að
fólk flýtur en líkaminn er þó ávallt undir
vatni. Laugin rúmar um fimmtán manns í
fyrstu flotstundinni en rými er til að taka
við fleirum sé aðsókn mikil. „Til að byrja
með höfum við pláss fyrir um fimmtán
manns, en við ættum að geta stækkað við
okkur eftir þörfum. Ég vona að þetta verði
til þess að innleiða nýja og skemmtilega
siði í baðmenningu þjóðarinnar,“ segir
Guðrún að lokum.
- sm
Samfl ot í Sundlaug Seltjarnarness í vetur
Nokkrir aðilar standa að svokölluðu samfl oti í vetur. Þá hittist fólk í lauginni og fl ýtur saman.
SKIPULEGGJA SAMFLOT Systurnar Guðrún og Jóhanna
Kristjánsdætur hjá Systrasamlaginu eru á meðal þeirra er
standa að samfloti í Sundlaug Seltjarnarness. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
„Við erum á fullu að mála og undirbúa rýmið fyrir
opnunina,“ segir myndlistarkonan Helga Óskarsdóttir,
sem ásamt Helenu Hansdóttir Aspelund stefnir að því
að opna nýtt listagallerí í byrjun október.
Galleríið, sem hefur fengið nafnið Týsgallerí,
verður með fjölbreytta og líflega starfsemi og segir
Helga að það bráðvanti myndlistargallerí í Reykjavík.
„Við höfum verið að brasa ýmislegt gegnum tíðina og
okkur langar að tvinna saman myndlistargallerí og
aðra starfsemi. Ég er núna að vinna að vefsíðugerð
fyrir myndlistarmenn og Helena rekur einnig ferða-
þjónustuna Helena Travel Iceland, þar sem hún býður
upp á ferðir til staða eins og Gullfoss og Geysis.“
Aðspurð segir Helga að aðaláherslan verði þó lögð
á sýningarrýmið þar sem þær ætla að velja þá mynd-
listarmenn sem þær vilja að sýni í galleríinu. „Við
viljum vera með í að breiða út það fagnaðarerindi að
góð myndlist er gulli betri. Við erum nokkuð vissar
um að sýnendurnir hjá okkur falla í þann flokk.“ Að
sögn Helgu eru listamennirnir blanda af starfandi
listamönnum með mikla reynslu og listamönnum
sem eru óþekktari. „Við erum líka á því að þó að góð
myndlist kosti sitt þá er hún langt frá því bara fyrir
milljónamæringa. Fólk með miðlungsinnkomu á
alveg að geta keypt sér myndlist ef það hefur áhuga á
henni,“ segir Helga að lokum. - áo
Opna nýtt listagallerí á Týsgötu
Myndlistarkonurnar Helga Óskarsdóttir og Helena Hansdóttir Aspelund
undirbúa nú opnun Týsgallerís sem þær vonast til að verði klárt í október.
OPNA SAMAN LISTAGALLERÍ Myndlistarkonurnar Helga
Óskarsdóttir og Helena Hansdóttir Aspelund verða með fjöl-
breytta starfsemi í Týsgallerí. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
Fissler pottar, pönnur og önnur
búsáhöld í miklu úrvali.
Einnig vandaðir hraðsuðupottar
sem gera matseldina hraðari
og hollari. Þýsk hágæðavara.
Fissler hefur framleitt hágæða potta
og pönnur í Þýskalandi í 167 ár.
ÚTSÖLUSTAÐIR:
ht.is
SUÐURLANDSBRAUT 26 - REYKJAVÍK - SÍMI 569 1500
Umboðsmenn um land allt
LAUGAVEGI 178. Sími: 568 9955.