Fréttablaðið - 20.09.2013, Blaðsíða 2
20. september 2013 FÖSTUDAGUR| FRÉTTIR | 2
Arthur, ertu að gefa félagana
upp á smábátinn?
„Nei, laxmaður, svo mikill þorskur er
ég nú ekki.“
Arthur Bogason gefur ekki kost á sér áfram
sem formaður Landssambands smábáta-
eigenda eftir 28 ár í embætti. Hann hyggst
meðal annars skrifa bók um laxveiði.
FÓLK „Það fyrsta sem allir segja
er að þessi Kjartan þegi að
minnsta kosti,“ segir Elísabet
Jean Skúladóttir, eigandi veitinga-
staðarins og fiskverslunarinnar
Sægreifans, þar sem afsteypa af
stofnanda fyrirtækisins prýðir nú
sali.
Kjartan Halldórsson setti fisk-
verslunina Sægreifann á fót er
hann hætti sjómennsku árið
2002. Síðar bættist veitingasala
við starfsemina, sem Elísabet
keypti af Kjart-
ani fyrir tveim-
ur árum.
„Ég fékk hug-
myndina þegar
ég var að skoða
vaxmyndir á
Sögusafninu,“
lýsir Elísabet
tildrögum þess
að afsteypa var
gerð af Kjart-
ani. Hún segir kvikmyndargerð-
armann sem vinnur að heimild-
armynd um Kjartan hafa stungið
upp á því sama. Kjartan sjálfur
hafi tekið vel í hugmyndina.
„Kjartan er bæði sál og andlit
Sægreifans og fólk sækist eftir að
sjá hann og láta mynda sig með
honum. Nýi Kjartan léttir því tals-
verðu álagi af Kjartani sjálfum,“
segir Elísabet í léttum dúr.
Eftirmyndin af Kjartani er
gerð af Ernst J. Backman, sem
gert hefur fjölda slíkra verka
fyrir Sögusafn sitt og önnur söfn.
„Kjartan sægreifi er hins vegar
fyrsta og eina sérpöntun svona
verkefnis fyrir veitingahús,“
er haft eftir Ernst á heimasíðu
Sægreifans.
Gerð afsteypunnar tók nokkuð
á Kjartan, sem beið eftir að kom-
ast í erfiða hjartaaðgerð á þeim
tíma. Kjartan segir að fyrir utan
svima hafi hann náð sér býsna
vel. Afsteypan er hins vegar enn
hálflasleg. Kjartan kveðst kunna
ágætlega við tvífarann og koma
reglulega með föt á hann til skipt-
anna.
„Hann er bara nokkuð líkur
mér,“ segir Sægreifinn. Þegar
undir hann eru borin orð nýja
eigandans um að mikill munur sé
á mælsku þeirra félaga kemur í
ljós að hann hefur áætlun um að
breyta því.
„Mig langar til að koma fyrir
hnappi svo hann geti talað; til
dæmis sagt góðan daginn eða
drottinn blessi heimilið. Það má
ekki vera neitt dónalegt því þá
myndi Elísabet henda mér strax
út,“ segir Kjartan hlæjandi, sem
enn ver drjúgum hluta tíma síns
á Sægreifanum og spjallar þar við
gesti og gangandi.
gar@frettabladid.is
Afsteypan þegir ólíkt
frumgerð sægreifans
Veitingastaðurinn Sægreifinn hefur látið gera afsteypu af stofnanda fyrirtækisins,
„sál og andliti“, Kjartani Halldórssyni sjómanni. Tvífarinn situr öllum stundum á
Sægreifanum. „Hann þegir að minnsta kosti,“ segir nýr eigandi flesta hafa á orði.
KJARTAN OG EFTIRMYNDIN Kjartan sægreifi segist sáttur við að þegar hann einn
daginn hverfur af sjónarsviðinu verði tvífarinn þar áfram. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
ELÍSABET JEAN
SKÚLADÓTTIR
PÁFAGARÐUR, AP Frans páfi segir
kaþólsku kirkjuna ekki þurfa að
festa sig í kreddum um fóstur-
eyðingar, hjónabönd samkyn-
hneigðra og getnaðarvarnir. Þar
með gengur hann gegn stefnu
forvera sinna, sem lögðu mikla
áherslu á að víkja hvergi í þess-
um efnum.
„Kirkjan hefur stundum læst
sig í smáatriðin, í smásálarlegar
reglur,“ segir páfi í löngu viðtali
við tímarit ítalskra jesúíta.
Hann segir þetta engu breyta
um kenningar kirkjunnar, „en
það þarf ekki að tala um þessi
mál alltaf.“ - gb
Frans páfi fer nýjar leiðir:
Vill ekki festa
sig í kreddum
VÍSINDI Alþjóðlega lyfjafyrir tækið
Alvogen ætlar að fjárfesta fyrir
25 milljarða króna hér á landi.
Borgarráð hefur úthlutað Háskóla
Íslands sjö þúsund fermetra lóð
við Sæmundargötu. Á henni ætlar
Alvogen að byggja ellefu þúsund
fermetra hús og þar verður starf-
rækt Hátæknisetur í samvinnu
við Vísindagarða Háskóla Íslands.
Hátæknisetrið á í framtíðinni að
hýsa alþjóðlegar skrifstofur Alvo-
gen en þar á líka að fara fram
þróun og framleiðsla líftækni-
lyfja. Áætlanir gera ráð fyrir að
um 200 starfsmenn Alvogen starfi
í Hátæknisetrinu.
Þar er fyrirhugað að þróa og
framleiða samheitalyfjaútgáfur
líftæknilyfja sem eru nú þegar
á markaði og markaðssetja þau
þegar einkaleyfi þeirra renna út.
Lyfin eru öll í hópi söluhæstu lyfja í
heiminum. Byggingaframkvæmdir
á lóðinni við Sæmundargötu eiga að
hefjast innan skamms og áætlanir
gera ráð fyrir að þeim ljúki innan
tveggja ára. - jme
Stærsta fjárfesting einkafyrirtækis hér landi frá hruni:
Lyfjarisi fjárfestir fyrir milljarða
HÁTÆKNI Svona er áætlað að verði
umhorfs inni í höfuðstöðvunum.
SKÓLAMÁL Stýrihópur um
spurningakeppni framhaldsskól-
anna, Gettu betur, hefur ákveðið
að kynjakvóti verði í keppninni
vorin 2015 og 2016. Frá þessu
var greint á mbl.is. Ákvörðunin
felur í sér að í þriggja manna liði
skólanna mega ekki vera fleiri en
tveir þátttakendur af sama kyni.
Í stýrihópnum sitja fulltrúar
þeirra fjögurra menntaskóla sem
komust í undanúrslit í síðustu
keppni ásamt fulltrúum Ríkisút-
varpsins. - hg
Breytt fyrirkomulag ákveðið:
Kynjakvóti í
Gettu betur
SPURNING DAGSINS
Mig langar til að
koma fyrir hnappi svo
hann geti talað; til dæmis
sagt góðan daginn eða
drottinn blessi heimilið.
Kjartan Halldórsson sægreifi.
LEIKTÆKNISKÓLI
Michael Chekhov tækni
Textagreining
kama og raddar
k
... og margt fleira
Mag t
Nýtt námskeið frá 8. október til 12. nóvember 2013
Kennsla fer fram öll þriðjudagskvöld frá kl. 19.30 til 23.00
Skr r r leiktaekniskolinn@gmail.com. A takmar ra.
Magnús og Þorsteinn eru meðal reyndustu leikara sinnar kynslóðar
með áratuga reynslu af vinnu við leikhús, kvikmyndir og sjónvarp.
Námskeið í hagnýtri og skapandi leiklist
BRUNI Tugmilljóna tjón varð í eldsvoðan-
um í Trésmiðju Akraness í fyrrakvöld.
Tilkynnt var um eldinn skömmu eftir
klukkan níu á miðvikudagskvöld. Tré-
smiðjan var alelda þegar slökkvilið Akra-
ness kom á staðinn en fljótlega varð ljóst
að enginn var í húsinu.
Liðsmenn slökkviliðs Akraness og
Hvalfjarðarsveitar tóku ákvörðun um að
rífa trésmiðjuna til að tryggja að eldur-
inn bærist ekki í nærliggjandi bílaverk-
stæði og vélsmiðju.
Málið er að sögn lögreglunnar á Akra-
nesi enn í rannsókn og því ekki hægt
að segja til um eldsupptök. Starfsmenn
tæknideildar lögreglunnar á höfuðborg-
arsvæðinu aðstoða lögregluna á Akranesi
við rannsókn málsins.
Kristján Einarsson, eigandi trésmiðj-
unnar, vildi ekki tjá sig um eldsvoð-
ann þegar blaðamaður ræddi við hann í
gærkvöldi. Hann sagðist vilja bíða eftir
niður stöðum rannsóknarinnar. - hg
Trésmiðja Akraness er gjörónýt eftir eldsvoðann á miðvikudagskvöld:
Rannsaka upptök eldsvoðans
RÚSTIR EINAR Ákveðið var að rífa trésmiðjuna svo eldurinn bærist ekki í
nærliggjandi fyrirtæki. MYND/SKESSUHORN
SAMFÉLAGSMÁL „Börnin eiga eftir að kunna vel að meta þetta. Hér er
mikilvægt að hafa eitthvað til að dreifa huganum og stytta börnum og
fullorðnum stundirnar,“ segir Ragnar Bjarnason, yfirlæknir barna-
lækninga á barna- og kvennasviði Landspítalans, en hann tók við
atta Ipad-spjaldtölvum fra 365 miðlum í gær fyrir hönd Barnaspítala
Hringsins. Spjaldtölvurnar eru allar með Oz-appinu en það veitir ótak-
markaðan aðgang að Stöð 2 og fleiri stöðvum 365 miðla og upptök-
umöguleika. Á Barnaspítalanum er veitt sérhæfð heilbrigðisþjónusta
fyrir börn og unglinga að 18 ára aldri. - hg
Yfirlæknir á Barnaspítalanum segir gjöfina nýtast vel:
Fengu átta spjaldtölvur að gjöf
Á BARNASPÍTALANUM Freyr Einarsson, sjónvarpsstjóri 365 miðla, afhenti Ragnari
Bjarnasyni, yfirlækni barnalækninga á barna- og kvennasviði Landspítalans, gjöfina.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
EFNAHAGSMÁL Bjarni Benedikts-
son, fjármála- og efnahagsráð-
herra, vill selja eignarhluti ríkis-
ins í Íslandsbanka og Arion banka
og skrá Landsbankann á markað.
Hann segir æskilegt að ríkissjóð-
ur haldi 30 til 40 prósenta hlut í
bankanum eftir skráningu.
Þetta kom fram í ávarpi Bjarna
á fundi Landsbankans í gær.
„Fyrir Landsbankann þá sé ég
fyrir mér að við getum á næstu
árum skráð þann banka þegar
endurfjármögnun hans er tryggð
og að ríkið trappi síðan í róleg-
heitum niður sinn eignarhlut,“
sagði Bjarni. - þþ
Framtíðarsýn ráðherra:
Ríkið haldi hlut
í Landsbanka