Fréttablaðið - 20.09.2013, Blaðsíða 30
KYNNING − AUGLÝSINGSúkkulaðidrykkir FÖSTUDAGUR 20. SEPTEMBER 20134
GÓÐIR
SÚKKULAÐI
DRYKKIR
Í HAUSTKULDA
Lumumba er þekktur súkku-
laðidrykkur. Margir hafa mikla
trú á þessum drykk þegar þeir
fá flensu. Drykkurinn saman-
stendur af heitu súkkulaði
og vænum slurk af koníaki.
Sumir setja þeyttan rjóma á
toppinn, eins og gert er með
Irish Coffee. Í stað koníaks má
nota romm. Þetta er uppskrift
fyrir einn.
1 plata dökkt súkkulaði
½ dl vatn
6 dl mjólk
½ dl koníak
Látið suðuna koma upp í vatn-
inu og setjið súkkulaðibita út í.
Því næst er mjólkinni bætt við
og allt hitað upp. Setjið koníak
í hátt glas og hellið súkkulaði-
drykknum
yfir.
SÚKKULAÐI
DRYKKUR
MEÐ CHILIPIPAR
Til að breyta til er gott að
setja chili-pipar út í súkku-
laðidrykkinn. Chili-
pipar og súkkulaði
fara nefnilega
einstaklega vel
saman. Best er
að nota dökkt,
70% súkkul-
aði í drykkinn.
Uppskriftin
ætti að duga
fyrir tvo.
1 vanillu-
stöng
4 dl mjólk
1 tsk. rauður chili-pipar
0,5 dl hunang
3 msk. kakó
150 g dökkt súkkulaði
Skerið vanillustöngina í tvennt
og takið fræin frá. Skerið chili-
piparinn í tvennt, fræhreinsið
og skerið mjög smátt. Setjið
vanillustöngina, vanillufræin,
mjólk, kakó, chili-pipar og
hunang í pott og hitið upp.
Þegar mjólkin er orðin heit er
súkkulaðinu bætt út í. Hrærið
á meðan súkkulaðið bráðnar.
Berið fram með þeyttum
rjóma.
Súkkulaðidrykkir þurfa ekki að vera óhollir.
Hægt er að búa til bragðgóða og flauels mjúka
súkkulaðidrykki úr grænmeti, ávöxtum og
lífrænu kakói, sem er uppfullt af andoxunar-
efnum og steinefnum á borð við magnesíum
og járn.
Hér er frábær uppskrift sem bætir og kætir.
1 banani
1 lítil lárpera
1 lúka spínat
2 dl frosið mangó
½ dl kókosflögur
1 msk. sesamsmjör
1 msk. chiafræ, lögð í bleyti í tíu
mínútur, ekki þarf að hella
vatninu af
2-3 msk. lífrænt kakó
eða annað kakóduft
2-3 dl möndlumjólk
Setjið allt í blandara og blandið
mjúkt og kekkjalaust. Bætið við vatni
eða möndlumjólk ef þarf til að ná
fram góðri áferð. Hristingurinn á þó
að vera í þykkara lagi.
HEILSUSAMLEGUR SÚKKULAÐIHRISTINGUR
Síríus Konsum fléttast við íslenskt þjóðlíf á einstæðan hátt. Um áratugaskeið hefur þetta ljúffenga
gæðasúkkulaði gegnt ótrúlegustu hlutverkum, bæði á hátíðarstundum og í daglegu lífi; í bakstrinum
þegar mikið liggur við, drukkið heitt með rjóma á köldum degi, verið nesti á ferðalögum um hálendið
og gómsætur moli með kaffinu, svo eitthvað sé nefnt. Síríus Konsum kakó er framleitt úr besta
fáanlega hráefni. Sættu þig ekki við málamiðlanir þegar kakó er annars vegar.