Fréttablaðið - 20.09.2013, Blaðsíða 27
SÚKKULAÐIDRYKKIR
FÖSTUDAGUR 20. SEPTEMBER 2013 Kynningarblað Swiss Miss, kakóbaunir, kaldir, heitir og hollir drykkir.
Einfalt er að útbúa swiss
mocha með Swiss Miss.
Einungis þarf að bæta
kaffi út í og ekki er verra
að setja smá rjóma efst
og strá smá Swiss Miss
yfir.
Til að blanda Swiss Miss þarf ein-ungis heitt vatn, sem getur oft verið kostur. Swiss Miss inniheld-
ur þó mjólk og þar af leiðandi kalk en það
er gert úr mjólkurdufti sem blandað er
saman við kakóduft.
Swiss Miss-kakó er hægt að fá með
sykurpúðum og án, hitaeiningasnautt,
í dósum og í bréfum og nú nýlega komu
á markað vörur úr Indulgent-línu Swiss
Miss fyrir þá sem vilja gera vel við sig.
Swiss Miss er frábært eitt og sér í rjúk-
andi bolla. Það má þó einnig nota í ýmsa
aðra rétti. Hér eru tvær skemmtilegar
hugmyndir:
Einfalt er að útbúa swiss-mocha með
Swiss Miss. Einungis þarf að bæta kaffi
út í og ekki er verra að setja smá rjóma
efst og strá smá Swiss Miss yfir.
HINDBERJASÚKKULAÐIMOUSSE
4 bréf af Swiss Miss Indulgent Dark
Chocolate Sensation
2 dl kalt vatn
1 blað Torsleff-matarlím
1 bolli rjómi
170 g hrein jógúrt
1 tsk. vanillusykur
2 bollar fersk hindber
Sprauturjómi
Setjið Swiss Miss-kakóduftið í gler-
skál. Leggið matarlímið í bleyti í
kalt vatn. Hitið vatnið og leysið upp
matarlímið. Hellið heitu matarlíms-
vatni yfir kakóduftið og hrærið vel
þar til kakóið er vel leyst upp. Leggið
til hliðar. Takið einn bolla af hind-
berjunum og maukið í matvinnslu-
vél eða með töfrasprota. Þeytið
saman rjómann, jógúrtina, van-
illusykurinn og maukuðu hindberin
þar til blandan er orðin nokkuð
þykk. Blandið kakóblöndunni
varlega út í og hrærið á milli. Setjið
plast yfir skálina og geymið í ísskáp
í tvær klst. Þeytið blönduna þar til
hún er orðin mjúk og létt og skiptið
í glösin. Skreytið með sprauturjóma
og ferskum hindberjum.
Swiss Miss við hin ýmsu tækifæri
Swiss Miss heitt kakó er frábær drykkur við hin ýmsu tækifæri, bæði á ferðalaginu, á vinnustaðnum og síðast en ekki síst þegar
maður vill hafa það notalegt heima. Á köldum vetrarkvöldum er fátt huggulegra en heitur bolli af Swiss Miss á meðan fjölskyldan
lætur líða úr sér. Fjölmargir Íslendingar eiga æskuminningar um Swiss Miss enda á merkið sér bæði langa og farsæla sögu.
LÖNG OG
FARSÆL SAGA
Fjölmargir Íslendingar eiga æsku-
minningar um Swiss Miss enda hefur
þetta bragðgóða kakóduft verið selt
hér á landi í áratugi. Swiss Miss er
bandarískt merki sem upphaflega var
framleitt af Sanna Dairies í Wisconsin
á sjötta áratugnum fyrir farþega í flug-
vélum. Það var ekki fyrr en vinsældir
drykkjarins voru orðnar talsverðar að
farið var að selja duftið í verslunum
snemma á sjöunda áratugnum undir
nafninu Swiss Miss Instant Cocoa Mix.
Beatrice Foods keyptu Sanna Dairies
fljótlega eftir þetta. Merki Swiss Miss,
bláir stafir með Alpana í baksýn, var
búið til árið 1986 og breyttist lítið til
ársins 2006 þegar merkið varð svipað
því og við þekkjum í dag.
Nýlega komu á
markað vörur úr
Indulgent-línu
Swiss Miss fyrir
þá sem vilja gera
vel við sig.