Fréttablaðið - 20.09.2013, Síða 6

Fréttablaðið - 20.09.2013, Síða 6
20. september 2013 FÖSTUDAGUR| FRÉTTIR | 6 Það er margt líkt með íslensku og norsku samfélagi. Íslendingar skilja að þeir verða að láta til sín taka og að menn geti ekki vænst þess að samfélagið geri allt fyrir þá Hallgeir Jenssen, fulltrúi norsku Vinnumálastofnunarinnar og EURES-samstarfsins 1. Hvað heitir bóndinn á Felli, síðasta bænum í Finnafi rði, sem er ósáttur við áform um stórskipahöfn þar? 2. Hve lengi hefur Arthur Bogason verið formaður Landssambands smá- bátaeigenda? 3. Hvað heitir helsti keppinautur Ang- elu Merkel um kanslaraembætti Þýska- lands í kosningum um næstu helgi? SVÖR: 1. Reimar Sigurjónsson. 2. 28 ár. 3. Peer Steinbrück. MÖGULEIKAR SKOÐAÐIR Stöðugur straumur fólks var á starfakynningu Norð- manna á Grand Hóteli í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA SAMGÖNGUR Byggðaráð Skaga- fjarðar segir mikil vonbrigði að innanríkisráðuneytið hafni því að styrkja áætlunarflug til og frá Sauðárkróki. „Ef þessi flugleið leggst af verður Norðurland vestra eini landshlutinn utan áhrifasvæðis höfuðborgarinnar sem ekki nýtur almenningsflugsamgangna. Slíkt er óásættanlegt með öllu og skerðir verulega samkeppnis- hæfni svæðisins,“ segir byggða- ráðið. - gar Flug til Sauðárkróks: Vonsvikin að fá ekki ríkisstyrk ATVINNA „Það er stöðug eftir- spurn í Noregi eftir fólki með sérfræðikunnáttu í öllum geir- um atvinnulífsins. Við höfum hins vegar nóg af ófaglærðum starfskrafti. Margt ungt fólk sem hefur flosnað upp úr námi vantar vinnu og einnig ófaglærða útlend- inga sem búsettir eru í Noregi,“ sagði Hallgeir Jenssen, fulltrúi norsku Vinnumálastofnunar- innar og EURES-samstarfsins, við Fréttablaðið á starfakynn- ingu á Grand Hóteli í Reykjavík í gær. Þar kynntu EURES, sam- starf um vinnumiðlun á evrópska efnahagssvæðinu, og norsk fyr- irtæki starfsmöguleika í Noregi. Leitað er meðal annars að iðn- aðarmönnum, heilbrigðisstarfs- fólki, verkfræðingum og starfs- mönnum úr veitingageiranum og sjávar útvegi. Norðmenn eru ánægðir með vinnusiðferði Íslendinga og meðal annars þess vegna hafi norsk fyrirtæki áhuga á að fá Íslend- inga í vinnu, að sögn Jenssen. „Það er margt líkt með íslensku og norsku samfélagi. Íslendingar skilja að þeir verða að láta til sín taka og að menn geti ekki vænst þess að samfélagið geri allt fyrir þá,“ sagði hann. Þröng var á þingi á kynning- unni í gær og biðu menn í röðum eftir því að fá að ræða við fulltrúa þeirra níu fyrirtækja og vinnu- miðlana sem voru á staðnum. Sumir Íslendinganna, sem voru á öllum aldri, virtust eftirvænt- ingarfullir en aðrir frekar þung- ir á brún. Starfakynningin í gær VEISTU SVARIÐ? var sú sjöunda sem EURES hefur staðið fyrir hér á landi, að sögn Jenssen. „Það hafa komið um 300 manns á hverja af þessum stuttu kynningum hjá okkur,“ greindi hann frá en kynningin í gær stóð yfir í sex klukkustundir. Í fyrra fluttu 1.395 íslenskir ríkisborgarar til Noregs en 1.539 árið 2011. ibs@frettabladid.is Chevrolet Aveo Árgerð 2012 Beinskiptur | bensín Verð kr. 1.990 þús. Chevrolet Cruze Árgerð 2012 Beinskiptur | bensín Verð kr. 2.190 þús. VERK SMIÐJU ÁBYRGÐ Chevrolet Spark Árgerð 2012 Beinskiptur | bensín Verð kr. 1.590 þús. VERK SMIÐJU ÁBYRGÐ VERK SMIÐJU ÁBYRGÐ Chevrolet Captiva Árgerð 2012 Sjálfskiptur | dísel Verð 4.990 þús. kr. VERK SMIÐJU ÁBYRGÐ Láttu sölufulltrúa okkar reikna dæmið sérstaklega fyrir þig Bílar í ábyrgð Opið alla helgina VEÐUR „Þetta er slæmt,“ segir Hallgrímur Þórhallsson, gangna- foringi frá Brekku í Fljótsdal. Hann er nú á hálendinu ásamt öðrum bændum á Jökuldal og í Fljótsdal að leita að sauðfé eftir óveður síðustu daga. Að sögn Hall- gríms er eitthvað af fénu dautt. Meðal annars fann hann tvö lömb úti í á og var tófan komin í þau. „En þetta gengur ágætlega,“ segir hann. Búið er að smala um 600 kindum en talið er að sauðféð sé á þriðja þúsund. Aðalsteinn Jónsson, bóndi í Klausturseli, sagðist hafa rekist á innan við tíu dauðar kindur á ferð sinni um Klausturselsheiði. Spurð- ur hvort hann telji skaðann mik- inn svarar hann því til að það sé ómögulegt að spá um það á þess- ari stundu. „Þetta skýrist á næstu dögum,“ bætir hann við. Hann segir ellefu menn vera að aðstoða sig við að smala og að allir hafi fundið eitthvað dautt fé. Hann seg- ist þó bjartsýnn á að færra fé sé dautt en óttast var. - vg Bændur í Fljótsdal og á Jökuldal búnir að finna nokkuð af dauðu fé: Allnokkuð af sauðfénu dautt ENDURTEKNIG FRÁ Í FYRRA Þessi mynd var tekin við Mývatn í fyrra. MYND/EGILL AÐALSTEINSSON Fjöldi á starfakynn- ingu Norðmanna Stöðug eftirspurn er í Noregi eftir starfskrafti með sérfræðiþekkingu. Leita að starfsmönnum í öllum geirum atvinnulífsins. Norskir atvinnurekendur eru ánægðir með vinnusiðferði Íslendinga. Þúsundir Íslendinga hafa flutt til Noregs. Albert Ísleifsson, sem er 21 árs, missti vinnuna í þessari viku og dreif sig þess vegna á starfakynn- ingu Norðmanna. „Það er ekki björt fram- tíð hér. Ég er kominn á götuna.“ Albert hefur starfað við hellulagn- ingar frá því að hann var 14 ára og vonast til þess að fá starf í Noregi. „Þeir eru að auglýsa eftir hellulagn- ingarmönnum,“ segir hann. ➜ Framtíðin er ekki björt á Íslandi Andri Friðjónsson, varaformað- ur ungliðadeildar Sjúkraliðafélags Íslands, fór á starfakynningu Norðmanna til þess að kynna sér atvinnu- möguleika og kjör. „Ég hef heyrt að norska ríkið greiði sjúkraliðum tvöfalt hærri laun en íslenska ríkið og að einkageirinn í Noregi borgi tvöfalt hærri laun en norska ríkið.“ Andri, sem er á námskeiði hjá Endurmenntunarstofnun í hagnýtri norsku fyrir heilbrigðis- starfsmenn, getur hugsað sér að búa hvar sem er í Noregi fyrst um sinn. „Seinna myndi ég vilja vera nálægt Haugesund þar sem systir mín býr. Hún elti ástina þangað.“ ➜ Skoðar kjör og atvinnumöguleika Jórunn Sóley Björnsdóttir sjúkraliði stefnir að því að flytja til Noregs og starfa þar við sitt fag. Hún var á meðal fjölmargra heilbrigðis- starfsmanna sem sóttu kynningu norskra vinnu- miðlana og fyrirtækja á Grand Hóteli í Reykjavík í gær. „Ég sækist eftir betri launum. Þar er líka hugsað betur um starfsmenn. En ég er að vísu sátt á hjúkrunarheimilinu Sóltúni þar sem ég vinn.“ Jórunn Sóley gæti hugsað sér að búa og starfa í Álasundi. „Pabbi minn býr þar. Hann er rafvirki og flutti til Noregs vegna betri kjara.“ ➜ Ætlar að flytja til að fá betri laun

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.