Fréttablaðið - 20.09.2013, Síða 32
FRÉTTABLAÐIÐ Fataskápurinn. Margrét Edda Gnarr. Götutískan. Spjörunum úr og Helgarmaturinn.
8 • LÍFIÐ 20. SEPTEMBER 2013
Rakel Ósk Þórhallsdóttir er
mikil tískudrottning og eigandi
tískuvöruverslunar-
innar Central. Rakel Ósk hefur
starfað innan fatabransans í
mörg ár. Lífið fékk að glugga
í fataskápinn hennar og skoða
fatasettin sem eru í miklu upp-
áhaldi þessa stundina.
FATASKÁPURINN
RAKEL ÓSK ÉG ER ALGJÖR
STÍGVÉLAKÖTTUR
SPORTÝ
Maður getur ekki verið án æfingagalla. Þessar æf-
ingabuxur eru þær bestu sem ég veit um, ég fékk þær
hjá Hummel.
BASIC
Leddari, rifnar gallabuxur, flat-
botnaskór og klútur, það er allt-
af „basic“.
PINNAHÆLAR
Svo elska ég allar
gallabuxur með
teygju í, svo er
svarti leðurjakk-
inn með gylltu að
koma í Central og
ég varð ástfang-
in af honum strax,
pinnahælar klikka
ekki við galla-
buxur.
BLASERINN
D&G er ég búin að eiga í mörg ár og þær eru allt-
af eins og nýjar. Ég er ein af þeim sem þarf að eiga
nokkra „blazera“ og þessi kóngablái er til núna í
Central og er klárlega í uppáhaldi.
Er algjör stígvélaköttur og þessi stígvél eru klárlega í
uppáhaldi hjá mér.
hún var að viðurkenna og segja
frá einelti sem hún upplifði sem
krakki og unglingur. Einelti var
mikið og margoft þurfti móðir
hennar að ræða við skólayfirvöld
en ekkert gerðist. Margrét Edda
segist hafa upplifað mikla þöggun
og verið mjög einmana.
Öðlaðist styrk með Taekwondo
Þú segir frá eineltinu í blogg-
færslunni. Hvernig var sú upp-
lifun? „Ég upplifði mikið einelti
þegar ég var í kringum 13-14 ára.
Ég var örlítið yfir kjörþyngd og
leið almennt illa á þessu tímabili.
Það var einn strákur sem bann-
aði mér að mæta upp í frístunda-
heimili því hann þoldi mig ekki.
Það kom tímabil þar sem átti
bara að reka mig úr skólanum því
ég var nánast hætt að mæta. Mér
leið bara svo illa þar. Mamma fór
á marga fundi með kennurum og
oftast var bara reynt að þagga
þetta niður og mér kennt um.
Eins og það væri mér að kenna
að krökkum væri illa við mig.
Svo byrjaði ég að æfa tae kwondo
og fékk meira sjálfstraust því
þar voru allir vinir og enginn að
gagnrýna mig. Þá vildi ég ekki
mæta í skólann heldur vera á tae-
kwondo-æfingum öllum stund-
um. Ég fór að æfa á tveimur stöð-
um og annar þeirra var í Hafn-
arfirði. Ef ég átti ekki pening í
strætó línuskautaði ég þangað.
Þetta var minn helgistaður.“
Hvernig tekur fjölskyldan þín
þessum lífsstíl? Er ekki pabbi
þinn stoltur af þér? „Mamma
hefur alltaf stutt mig og er al-
gjört æði. Þegar það er matar-
boð og hún eldar lambakjöt þá
gerir hún sér kjúkling fyrir mig.
Mamma og pabbi skildu þegar ég
var 11 ára en ég veit að pabbi er
líka stoltur af mér.“
Hvernig er það að vera dótt-
ir borgarstjórans? „Það er
bara eins og að eiga venjulegan
pabba.“
Hverjir eru framtíðardraum-
arnir? „Ég fer í atvinnumennsk-
una eftir áramót og byrja að
keppa sem pro á Arnold Classic
og er draumurinn að fá að keppa
á Olympía. Svo ætla ég bara að
einbeita mér að þjálfuninni.“
Þegar ég var yngri taldi ég mig þurfa
að vera öðruvísi og fann fyrir mikilli
pressu að þóknast öðrum. Áður en ég
fór í fitness fór ég í gegnum 12 spora
kerfið og fór í mikla sjálfsskoðun til að
öðlast meira sjálfstraust.
bókakaffi
Vesturgata 2a 101 Rvk.
Innskot í Fréttablaðið skilar árangri!
MEST LESNA
DAGBLAÐ Á ÍSLANDI*
Fréttablaðið er mest lesna dagblaðið landsins
með glæsilegt forskot á keppinautana.
Meðallestur Fréttablaðsins í
aldurshópnum 25-54 ára er 73%
á höfuðborgarsvæðinu.*
Við bendum auglýsendum á að notfæra
sér forskotið þegar þeir velja dreifingarleið
fyrir fjölpóst sinn. Við dreifum sex daga
vikunnar til heimila á stærsta markaðssvæði landsins.
Kannaðu dreifileiðir og verð í síma 512 5448
eða í tölvupóstfangi fjolpostur@frettabladid.is
*P
re
nt
m
ið
lak
ön
nu
n
Ca
pa
ce
nt
o
kt
ób
er
–d
es
em
be
r 2
01
2
–
hö
fu
ðb
or
ga
rs
væ
ði
2
5-
54
á
ra
HAFÐU FJÖLPÓSTINN ÞINN
Í FRÉTTABLAÐINU