Fréttablaðið - 20.09.2013, Síða 44

Fréttablaðið - 20.09.2013, Síða 44
20. september 2013 FÖSTUDAGUR Sölumaður fasteigna Allt fasteignir fasteignasala Síðumúla 29 óskar eftir að ráða sölumann fasteigna. Aðeins árangurstengd laun. Farið er með allar umsóknir sem trúnaðarmál. Umsóknir sendist á netfangið: thorbjorn@alltfasteignir.is Skaft ahlíð 24 | 105 Reykjavík | 512 5000 | Auglýsingar 512-5401 | visir.is FRÉTTABLAÐIÐ ER HELGARBLAÐIÐ Sýningar 17.00 Sýningin Lítill kall fer fram í aðalbyggingu Háskóla Íslands í dag og á morgun. Miðaverð er 2.500 krónur og 2.000 krónur fyrir nemendur og eldri borgara. Miðar fást í síma 690- 8609. Upplestur 20.00 Algjörlega tilefnislaust ljóðakvöld fer fram á Café Haiti í kvöld. Halla Mar- grét Jóhannesdóttir, Kristín Svava Tóm- asdóttir, Sigurlín Bjarney Gísladóttir og Þórdís Gísladóttir lesa ljóð sín. Tónlist 00.00 Raftónlistarmaðurinn Marc Romboy kemur fram á skemmti- staðnum Harlem í kvöld. Natalie Gunn- arsdóttir, öðru nafni DJ Yamaho, hitar upp fyrir Romboy. 12.00 Tónleikar fyrir börnin, foreldr- ana, afa og ömmur fara fram í Háteigs- kirkju í dag. Flytjendur eru Þór Breið- fjörð, Valgerður Guðnadóttir og Vignir Þór Stefánsson. Almennt miðaverð er 1.000 krónur. 20.00 Rúnar Óskarsson klarínettu- leikari og Ástríður Alda Sigurðardóttir píanóleikari leika tónlist eftir Johannes Brahms, Claude Debussy, Þorkel Sigurbjörnsson og Anders Hillborg í Hannesarholti, Grundarstíg 10. 20.00 Gunnar Guðbjörnsson tenór- söngvari og Jónas Ingimundarson píanóleikari flytja ljóðaflokkinn Schwanengesang eftir Franz Schubert í Þjóðmenningarhúsinu. 20.30 Kanadíska rokksveitin The Stanfields kemur fram á Kexi í kvöld. The Stanfields spilar þjóðlagaskotið verkamannarokk í anda The Pogues og Bruce Springsteen. Ókeypis er á tón- leikana. 23.00 Trúbadorinn Pálmi Hjaltason skemmtir á Obladíoblada, Frakkastíg 8. Fyrirlestrar 12.30 Franski listfræðingurinn Didier Semin flytur erindið Frogland. Í erindinu veltir hann upp þeirri spurningu hvort menn séu komnir af froskum en ekki öpum. Fyrirlesturinn fer fram í fyrirlestrarsal myndlistar- deildar Listaháskólans að Laugarnes- vegi 91. Aðgangur er ókeypis og allir eru velkomnir. FÖSTUDAGURHVAÐ? HVENÆR? HVAR? 20. SEPTEMBER Óskar R. Harðarson hdl. og löggiltur fasteignasali Verð: 35,9 millj. Nánari upplýsingar veitir Jórunn Skúladóttir, Sölufulltrúi jorunn@miklaborg.is sími: 845 8958 Glæsileg hæð við Snekkjuvog • Hæð með bílskúr • Þríbýli, í enda botnlanga • Mikið endurnýjað 104 Reykjavík OPIÐ HÚS Laugard. 21. sept. 15:30 - 16:00 „John Fogerty hefur verið mjög afkastamikill og haft mikil áhrif á tónlistarsöguna,“ segir Sigurgeir Sigmundsson, gítarleikari og með- limur hljómsveitarinnar Gullfoss, sem kemur fram á heiðurstónleik- um Creedence Clearwater Revival á Spot í kvöld. Creedence Clearwater Revival með John Fogerty í broddi fylk- ingar var ákaflega vinsæl hljóm- sveit á sjöunda og áttunda áratug síðustu aldar. „Fogerty á svo mikið af lögum og mörg þeirra urðu líka þekkt með öðrum listamönnum, eins og lagið Proud Mary í flutningi Tinu Turner.“ Sigurgeir og söngvari sveitar- innar, Birgir Haraldsson, hafa leikið tónlist Fogertys í fjölda ára. „Við spiluðum á áttatíu tónleikum árið 2000 með þessu efni,“ bætir Sigurgeir við. Í Gullfossi eru einnig þeir Ingi- mundur Benjamín Óskarsson, Sig- fús Óttarsson og Snorri Snorrason. Miðasala er á midi.is. - glp Hinn íslenski Fogerty Hljómsveitin Gullfoss leikur vinsælustu lög Creedence Clearwater Revival í kvöld. ÍSLENSKI FOGERTY Birgir Haraldsson er af mörgum talinn vera hinn íslenski Fogerty. FRÉTTABLAÐIÐ/ HELGARBLAÐ FRÉTTABLAÐSINS Ómissandi hluti af góðri helgi ER ENDALAUST AÐ GLÍMA VIÐ ÖGRANIR Ingvar E. Sigurðsson er leikari sem margir vilja hafa í sínu liði. Hann var dreginn á svið í Borgarnesi tvítugur að aldri og segist alltaf hafa verið prúður drengur. Fólk er hætt að vera skrýtið Björg Magnúsdóttir, rithöfundur og fréttamaður, og leikarinn og tón- listarmaðurinn Helgi Björnsson setjast á rökstóla. Beið inni í eldhúsi á meðan fjölskyldan horfði Halla Oddný Magnúsdóttir vekur athygli fyrir umfjöllun sína um tónlist í sjónvarpinu. Lesendur völdu bestu náttúru- myndirnar Úrslit tilkynnt í ljósmyndakeppni Fréttablaðsins. MENNING

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.