Fréttablaðið - 20.09.2013, Síða 47
FÖSTUDAGUR 20. september 2013 | MENNING | 27
Þrátt fyrir að Glastonbury-hátíð-
in í Englandi hefjist ekki fyrr en
þann 25. júní á næsta ári hefst
miðasala á hátíðina þann 6. októ-
ber. Aðsóknin er gífurleg á þessa
stóru tónlistarhátíð. Í fyrra seld-
ust allir 135 þúsund miðarnir upp
á mettíma eða á einni klukku-
stund og fjörtíu mínútum.
Ekki hefur enn verið tilkynnt
hverjir komi til með að koma
fram á hátíðinni en orðrómur
hefur verið uppi um að lista-
menn á borð við David Bowie,
Fleet wood Mac, Daft Punk, Foo
Fighters, Kanye West, Oasis og
Adele verði þar á meðal.
Á síðustu hátíð komu meðal
annars hljómsveitirnar Arctic
Monkeys, Rolling Stones og
Mumford & Sons fram við mikinn
fögnuð hátíðargesta.
Miðasala hafi n
ORÐAÐUR VIÐ HÁTÍÐINA Orðrómur
er um að David Bowie muni komi fram
á Glastonbury tónlistarhátíðinni.
NORDICPHOTOS/GETTY
Fyrirsætan Kate Moss ætlar að sitja nakin fyrir
í Playboy í janúar næstkomandi en í sama mán-
uði heldur fyrirsætan upp á fertugsafmæli sitt.
Enska götublaðið The Mirror greinir frá því
að tölublaðið verði tileinkað sextíu ára afmæli
tímaritsins. Með þessu fetar Moss í fótspor fyrir-
sætna á borð við Cindy Crawford, Naomi Camp-
bell og Evu Herzigova sem allar hafa setið fyrir
í tímaritinu.
„Þetta hófst með Marilyn Monroe fyrir sex-
tíu árum en hún var goðsögn á þeim tíma. Núna
höfum við Kate Moss. Hún er andlit Burberry
og vinsælasta ofurfyrirsæta heimsins,“ sagði rit-
stjórinn, Jimmy Jellinek, í viðtali við The Mirror.
Kate Moss nakin í Playboy
Fyrirsætan Kate Moss situr fyrir í Playboy í tilefni sextíu ára afmælis tímaritsins.
Í PLAYBOY
Fyrirsætan
Kate Moss
hyggst sitja
nakin fyrir
í Playboy í
janúar.
NORDICPHOTOS/
GETTY
Félagarnir Ingi Þór og Stefán Atli
kalla sig Nyxo þegar þeir búa til
danstónlist. Fyrir stuttu sendu
þeir frá sér endurhljóðblandaða
útgáfu af laginu vinsæla Rhythm
of the Night frá tíunda áratugn-
um. Rapparinn Erpur Eyvind-
arson, einnig þekktur sem Blaz
Roca, er gestasöngvari í laginu,
sem hefur verið halað oft niður á
síðunni Icecoldstudios.is. Ásamt
því að búa til danstónlist koma
strákarnir einnig fram sem
plötusnúðar og hafa þeir haldið
uppi stemmingu á hinum ýmsu
skemmtistöðum Reykjavíkur.
Nyxo starfar
með Erpi
NYXO Félagarnir Ingi Þór og Stefán Atli
kalla sig Nyxo.
Eldborg í Hörpu 11.október
Sigriður Thorclacius
Björgvin Halldórsson
Bogomil font
Sérstakir gestir: Þú getur nálgast þinn miða á:
harpa.is og midi.is
Uppselt! auka tónleikarkl. 23.00 föstudaginn 11. októkber sama dag
Stephen King segist vera stressað-
ur yfir viðbrögðunum við bókinni
Doctor Sleep, framhaldi spennu-
sögu hans The Shining, sem kemur
út í næstu viku. Bandaríski rithöf-
undurinn býst við því að 95% rit-
dómanna fyrir Doctor Sleep verði
samanburður á bókunum tveimur.
„Þessi samanburður blasir við
og maður getur ekki verið annað
en taugaóstyrkur vegna þess að
það hefur margt breyst á þessum
tíma,“ sagði hann við BBC,
King var 28 ára þegar The Shin-
ing, sem vinsæl kvikmynd var gerð
eftir, kom út. Núna er hann 65 ára.
Stressaður yfi r
viðbrögðunum
STEPHEN KING Rithöfundurinn er
stressaður yfir væntanlegum ritdómum.
NORDICPHOTOS/GETTY