Fréttablaðið - 20.09.2013, Side 54
20. september 2013 FÖSTUDAGUR| MENNING | 34
HELGIN
Hljómsveitin Lockerbie er í aðalhlutverki í nýju
auglýsingamyndbandi fyrir netið sem franska skó-
fyrirtækið Someone tók upp hér á landi.
„Franski strákurinn sem gerði hana [auglýs-
inguna] hafði komið á Airwaves og sá okkur þar.
Hann hafði samband við okkur í gegnum tölvu-
póst,“ segir söngvarinn og gítarleikarinn Þórður
Páll Pálsson, spurður út í þátttöku hljómsveitar-
innar í auglýsingunni. „Okkur fannst hann gera
þetta mjög vel. Hann gerði þetta sjálfur fyrir
engan pening og var fyndinn og skemmtilegur.
Það var gaman að fá fría skó líka.“
Lockerbie fékk enga peninga fyrir myndbandið.
„Þetta fyrirtæki er tveggja ára og er ekki byrjað
að græða neinn pening. Þetta er pínulítið fyrir-
tæki í Suður-Frakklandi og það var ekkert meira
í boði.“
Lockerbie er að leggja lokahönd á nýja plötu
sem kemur út í október. Sveitin er einnig að æfa
fyrir Airwaves-hátíðina þar sem hún stígur á svið
í fjórða sinn. - fb
Ókeypis skór fyrir auglýsingu
Hljómsveitin Lockerbie er í aðalhlutverki í nýrri, franskri skóauglýsingu.
LOCKERBIE Meðlimir Lockerbie fengu skó að launum fyrir að
koma fram í auglýsingunni.
➜ Lockerbie hefur áður átt lag í auglýsingu sem
fyrirtækin Össur og Nike gerðu í sameiningu.
Tökur á This is Sanlitun
fóru fram í felum
Róbert Ingi Douglas leikstjóri á opnunarmynd kvikmyndahátíðarinnar RIFF.
Tökur fóru fram í felum vegna skrítinnar reglu borgaryfi rvalda í Peking.
„Myndin varð eiginlega bara til.
Ég var búinn að búa nógu lengi í
Peking til að átta mig á því að vest-
rænt fólk búsett í borginni væri
gott efni í gamanmynd,“ segir
leikstjórinn Róbert Ingi Douglas
um kvikmyndina This Is Sanlitun.
Myndin er opnunarmynd RIFF-
kvikmyndahátíðarinnar og segir
frá Bretanum Gary, sem flytur
til Peking í von um frama og ríki-
dæmi.
This Is Sanlitun er gaman-
mynd og skrifaði Róbert hand-
ritið að myndinni ásamt aðalleik-
ara myndarinnar, Carlos Ottery.
Að sögn Róberts er aðalpersónan
byggð á ákveðinni staðalímynd
sem fyrirfinnst í Peking. „Vest-
ræna fólkið sem maður hittir er
allt að gera eitthvað merkilegt. Á
nafnspjöldunum þeirra stendur:
framkvæmdastjóri, framleiðandi,
ljósmyndari eða plötusnúður. Síðan
spyr maður nánar út í vinnu þeirra
og þá kemur í ljós að þau starfa
flest við enskukennslu. Ímyndin
er stærri en raunveruleikinn og
myndin fjallar um þessar týpur,“
útskýrir hann.
Inntur út í tökuferlið viður-
kennir Róbert að það hafi geng-
ið á ýmsu á meðan á tökum stóð.
„Við vorum ekki með tökuleyfi frá
borgaryfirvöldum og því þurftum
við að nota litla vél í tökurnar og
láta lítið fyrir okkur fara. Nokkr-
um dögum áður en tökur hóf-
ust höfðu yfirvöld komið á nýrri
reglu og voru heimamenn hvatt-
ir til að hringja í neyðarnúmer ef
þeir yrðu varir við að útlending-
ar hegðuðu sér á vafasaman hátt.
Útlendingarnir í tökuliðinu okkar
hættu því við að vera með og við
þurftum að setja saman nýtt lið
sem samanstóð af ófaglærðu fólki
sem vann af ástríðu. En við kom-
umst sem betur fer upp með þetta,
enginn hringdi og kvartaði,“ segir
hann og hlær.
Leikstjórinn hefur verið búsett-
ur í Peking í sex ár og kann að
eigin sögn vel við sig í borginni.
Hann verður viðstaddur frum-
sýningu myndarinnar hér heima.
„Ég hlakka mikið til að sýna hana
á Íslandi. Myndin fer svo í sýningu
í Kína í byrjun næsta árs og svo á
áframhaldandi hátíðaflakk,“ segir
hann að lokum. sara@frettabladid.is
Róbert Ingi er mikill aðdáandi fótboltaliðsins
Manchester United og hefur oft vísað til liðsins
í kvikmyndum sínum. Spurður hvort slíkt sé
einnig uppi á teningnum í This Is Sanlitun segir
Róbert svo vera. „Það er karakter í myndinni
sem er kínverskur enskunemandi. Til að hjálpa
útlendingum velja Kínverjar sér oft enskt nafn.
Þessi valdi nafnið Ferguson og gengur um í bol
merktum liðinu. Sá sem leikur þetta hlutverk var
jafnframt tökumaður okkar,“ segir Róbert.
Vísað til Manchester United
GEKK Á ÝMSU Kvikmynd Róberts Inga Douglas, This Is Sanlitun, er opnunarmynd
RIFF í ár. Að sögn leikstjórans gekk á ýmsu á meðan á tökum stóð.
Ítölsk hönnun
hágæða sófasett
Kyn
nin
gar
ver
ð
Smiðjuvegi 2 (við hliðina á Bónus)
Kópavogi · Sími 544 2121
Opið virka daga frá kl. 10-18
laugardaga kl. 11-16 · www.rumgott.is
SÉRHÆFUM OKKUR Í SMÍÐI Á HEILSURÚMUM
FAGLEG
RÁÐGJÖF OG
FRÍ LEGU-
GREINING
Komdu í heimsókn, prófaðu
legugreininguna, og fáðu
faglega ráðgjöf um val á
heilsu dýnum, án skuldbindinga!
20-
50%
AFS
LÁT
TU
R AF
ÖLL
UM
HE
ILS
UR
ÚM
UM
Frí heimsending á hjónarúmum
eða tökum gamla rúmið upp í nýtt!
LAGERHRE INSUN
Á ARINELDSTÆÐUM
EINUNGIS 3 VERÐ!
19.900,-
29.900,-
39.900,-
„Við vorum búnar að tala um það í svolítinn
tíma að gera eitthvað saman systurnar. Við
ræddum til dæmis um að stofna fyrirtæki
þar sem við gætum sameinað krafta okkar.
Svo einn daginn kom upp hugmyndin um
að framleiða vegglímmiða og þá varð ekki
aftur snúið,“ segir Lilja Björk Runólfsdóttir,
sem stofnaði fyrirtækið Vegg ásamt systr-
um sínum, þeim Kristínu og Sigrúnu Þuríði.
Vegg framleiðir vegglímmiða og er með
tvær vörulínur er nefnast Farsælda frón og
Kvak. „Í Farsælda fróni er lögð áhersla á
sögu, menningu og náttúru Íslands. Dæmi
um vörur sem hægt er að fá úr þeirri línu
eru norðurljós og ljóð eftir Einar Bene-
diktsson. Hin línan, Kvak, er unnin af
myndlistar konunni Guðrúnu Sigurðardóttur,
sem er jafnframt móðir okkar,“ segir Lilja
Björk.
Vegglímmiðar hafa notið mikilla vin-
sælda undanfarið, bæði hér á landi og úti í
heimi.
„Vegglímmiðar henta sérstaklega vel í
leiguíbúðum þar sem ekki má negla í veggi
og svo detta þeir ekki af veggjum eins og
getur komið fyrir málverk. Þetta er í raun
eins og búið sé að mála verkið á vegginn,“
bætir Lilja Björk við.
Nánari upplýsingar má finna á heimasíðu
fyrirtækisins, vegg.is.
Framleiða vegglímmiða ásamt móður sinni
Systurnar Lilja Björk, Kristín og Sigrún Þuríður reka fyrirtækið Vegg sem framleiðir vegglímmiða.
SYSTRASAMSTARF Systurnar Lilja Björk, Kristín og
Sigrún Þuríður reka saman fyrirtækið Vegg.
MYND/RUNÓLFUR BIRGIR LEIFSSON
„Ég ætla að bjóða kærustunni
minni á stefnumót og setja á mig
eins og einn eða tvo drykki úr því
að Meistaramánuður nálgast.“
Magnús Berg Magnússon er einn stofnenda
Meistaramánaðar sem byrjar þann 1. október
næstkomandi.