Fréttablaðið - 23.09.2013, Page 2

Fréttablaðið - 23.09.2013, Page 2
23. september 2013 MÁNUDAGUR| FRÉTTIR | 2 SVEITARSTJÓRNIR „Þessi tengsl eiga sérstaklega djúpar rætur í hugum Frakkanna,“ segir Alda Hlín Karlsdóttir, menningarfulltrúi Grundarfjarðar, um nýlega heim- sókn sendinefndar franska vina- bæjarins Paimpol. Grundarfjörður og Paimpol tóku upp vinabæjarsamband fyrir tíu árum en tengsl þeirra ná hins vegar allt aftur til átjándu aldar er sjómenn frá Paimpol sigldu til þorskveiða við Íslandsstrend- ur. Talið er að allt að þrjú þúsund menn frá Paimpol hafi týnt lífi í þessum ábata- sömu en áhættu- sömu leiðöngr- um. „Franski bær- inn byggist upp á auði héðan úr Grundarfirði. Þeir eru miklu meðvitaðri um tengsl bæjanna og vináttan er þeim afar dýrmæt. Þetta ætlum við að styrkja enn frekar og efla,“ segir Alda Hlín. Sendinefnd úr Grundarfirði fór utan í mars þar sem Alda Hlín kveður höfðinglegar móttökur hafi beðið Íslendinganna. Nú um síðustu helgi endurguldu Frakk- arnir heimsóknina. Auk þess sem formlegt vinabæjarsamband hefur verið með bæjunum í tíu ár, sem nú var haldið sérstaklega upp á, er sjálfstætt starfandi vinafélag milli íbúa í bæjunum, Grundapol. Bæjarstjóri Paimpol, Jean-Yves de Chaisemartin, fór fyrir Frökk- unum sem heimsóttu Grundar- fjörð. Þeir hlýddu meðal annars á sinfóníutónleika frönsk-íslensku vinabæjarhljómsveitarinnar FIFO á sunnudag og farið var í hringferð um Snæfellsnes. „Þegar við komum akandi til baka og sást í Grundarfjörð þá klökknaði franski bæjarstjórinn er honum varð hugsað til sögunnar sem tengir bæina saman. Íslands- ferðirnar voru gríðarleg blóðtaka fyrir Paimpol en byggðu jafnframt upp bæinn á þeim tíma.“ Auk þess sem Eldfjallasafnið var heimsótt og bragðað á hákarli í Bjarnarhöfn var bæjarstjóran- um gefin eftirmynd af franskri fallbyssu sem fannst við Kirkju- fell. Síðast en ekki síst fékk gatan Hrannarstígur undirnafnið Rue de Paimpol í virðingarskyni við gestina. Í Paimpol er reyndar gata sem ber heitið Rue des Islandais Grundarfjörður. gar@frettabladid.is Bæjarstjóri klökknaði er sást í Grundarfjörð Vinabæjartengsl við Grundarfjörð eru í miklum metum í franska bænum Paimpol sem byggðist upp á auði sem sjómenn þaðan sóttu til Íslands. Nýleg heimsókn franska bæjarstjórans þótti vel heppnuð. Götu í bænum var gefið franskt nafn. ALDA HLÍN KARLSDÓTTIR Menningarfulltrúi Grundarfjarðar við skiltið með franska undirnafninu á Hrannarstíg. MYND/ TÓMAS FREYR KRISTJÁNSSON JEAN-YVES DE CHAISEMARTIN SKIPULAGSMÁL Taka á upp viðræður við tvö félög sem áhuga hafa á iðnaðarlóðum á Grundartanga. Umleitan þriðja félagsins er hins vegar synjað. Stjórn Faxaflóahafna tók málin fyrir á síð- asta fundi. Þar var hafnarstjóra falið að ræða við Quantum ehf. um aðstöðu á Grundartanga fyrir framleiðslu á viðarkubbum. Áskilið er að unnin verði umhverfisskýrsla sem nýta megi sem fyrirspurn um matsskyldu til Skipulagsstofnunar áður en ákvörðun er tekin. Þá er hafnarstjóranum einnig falið að ræða við Atlantic Green Energy ehf. um úthlutun lóðar undir aðstöðu til framleiðslu á biodiesel. Erindi TS Shipping um viljayfirlýsingu um aðstöðu til niðurrifs á skipum fékk ekki hljómgrunn. „Ljóst er að verkefnið kallar á umfangsmiklar lóðaframkvæmdir, breytingar á aðal- og deiliskipulagi og ekki liggur nægj- anlega fyrir hver umhverfisáhrif af starfsem- inni verða. Því telur hafnarstjórn ekki for- sendu til frekari viðræðna nema að fyrir liggi af hálfu TS Shipping umhverfisskýrsla sem gefi tilefni til frekari viðræðna og geti orðið grundvöllur matsfyrirspurnar til Skipulags- stofnunar og umsagnar Hvalfjarðar sveitar,“ segir hafnarstjórnin. - gar Framleiðendur biodiesel og viðarkubba í viðræður um lóðir á Grundartanga: Umsókn um lóð undir skipaniðurrif synjað GRUNDARTANGI Áhugi margvíslegra iðnfyrirtækja beinist nú að Grundartanga. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR SPURNING DAGSINS Þegar við komum akandi til baka og sást í Grundarfjörð þá klökkn- aði franski bæjarstjórinn. Alda Hlín Karlsdóttir, menningarfulltrúi Grundarfjarðar FRAMKVÆMDIR „Það stenst ekkert sem þeir segja,“ segir Pálmi Berg- mann, eigandi farahreinsunarinnar Úðafoss á Vitastíg, afar ósáttur við vinnubrögð Reykjavíkurborgar í kringum framkvæmdir sem nú standa yfir á Hverfisgötu þar sem verið er að endurnýja götuna frá grunni á kaflanum milli Klapparstígs og Vitastígs. Allt yfirborð götu og gang- stétta verður endurnýjað, ásamt þeim lögnum sem komnar eru á tíma, hjólareinar malbikaðar, gatnamót steinlögð og snjóbræðsla sett í göngu- leiðir. Ófyrirsjáanlegar tafir hafa orðið á frágangi og opnun Vitastígs sökum holræsavanda sem verið er að leysa að sögn Reykjavíkurborgar. „Í byrjun júlí tilkynna þeir að framkvæmdum eigi að ljúka fyrsta september. Það var því vitað frá upphafi að það var ekki að fara standast,“ segir Pálmi. „Núna síðast heyrði ég að framkvæmdum ætti að ljúka fyrsta október en ég sé ekki fram á að það muni standast.“ - áo Atvinnurekandi ósáttur við framkvæmdir á Hverfisgötu: „Það stenst ekkert sem þeir segja“ MIKLAR FRAMKVÆMDIR Hverfisgatan er sundurgrafin um þessar mundir og verður á næstunni. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA SAMKEPPNI Útivist er annað þemað í ljósmynda- keppni Fréttablaðsins sem hefst í dag. Valdar verða bestu myndirnar frá sumrinu og haustinu í þremur flokkum og var náttúran þema fyrstu keppninnar, en úrslit úr henni voru kunngjörð í blaðinu á laugardag. Í verðlaun fyrir bestu myndina er glæsileg Nikon 10,1 milljóna pixla myndavél með 10-27 mm linsu. Þátttakendur hlaða upp myndum sínum á ljos- myndakeppni.visir.is. Innsendar myndir birtast á Vísi.is og á Facebook-síðu Fréttablaðsins og lesend- ur geta kosið bestu myndina. Niðurstaðan í kosning- unni gildir helming á móti áliti dómnefndar blaðsins. Bestu myndirnar verða birtar í Fréttablaðinu. Hver þátttakandi skal senda inn eina mynd og skal hún hafa verið tekin nú í sumar eða haust. Óheimilt er að senda inn eða eigna sér ljósmyndir sem aðrir en sendandi hafa tekið. Myndinni þarf að fylgja nafn höfundar og upplýsingar um heimilisfang, netfang og símanúmer. Annar hluti keppninnar stendur frá deginum í dag, 23. september, fram að miðnætti miðvikudag- inn 2. október. Tilkynnt verður um úrslit í helgar- blaði Fréttablaðsins laugardaginn 6. október. Allar nánari upplýsingar um keppnina er að finna á ljosmyndakeppni.visir.is. - kg Útivist er þemað í annarri ljósmyndasamkeppni Fréttablaðsins: Lesendur velja bestu myndina ÚTIVIST Ljósmynd Tinnu Stefánsdóttur var sigurmynd ljós- myndasamkeppni Fréttablaðsins á síðasta ári, þar sem þemað var útivist. MYND/TINNA STEFÁNSDÓTTIR Bergur, eru íbúar Norðurþings ekki í takt við tímann? „Nei, við erum alltaf skrefi á undan.“ Bergur Elías Ágústsson, sveitarstjóri Norður- þings, varð eins og flestir íbúar á Norðaustur- landi var við rafmagnsbilun sem olli því að rafknúnar klukkur fóru að flýta sér um nokkrar mínútur. KIRKJAN Almenn prestkosning verður um embætti sóknarprests í Staðarprestakalli á sunnan- verðu Snæfellsnesi í haust. Þetta kemur fram á vef RÚV. Á fjórða hundrað atkvæðis- bærra sóknarbarna er í presta- kallinu og safnað var undirskrift- um um prestskosningar. Guðjón Skarphéðinsson, sókn- arprestur á Staðastað er að láta af störfum fyrir aldurs sakir og nýr prestur tekur við 1. desemb- er. - jme Breyting í Staðarprestakalli: 400 sóknarbörn kjósa um prest LÖGREGLA Bifreið var ekið á ljósa- staur á gatnamótum Frakkastígs og Bergþórugötu um klukkan hálfeitt aðfaranótt sunndags, með þeim afleiðingum að ljósastaur- inn féll. Þegar lögregla kom á vettvang var ökumaður bifreiðar- innar að reyna aka af vettvangi en bifreiðin sat föst á staurnum. Ökumaðurinn, kona á þrítugs- aldri, var mjög ölvaður og var handtekinn. Konan reyndist einn- ig hafa ekið á kyrrstæðan bíl og skemmt skömmu áður. - jme Ölvunarakstur í Reykjavík: Ók á ljósastaur og reyndi flýja

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.