Fréttablaðið - 23.09.2013, Page 6
23. september 2013 MÁNUDAGUR| FRÉTTIR | 6
1. Hver tók verðlaunamynd Frétta-
blaðsins, Tófan og marhnúturin n?
2. Hver leikur titilhlutverkið í Jeppa á
Fjalli í Borgarleikhúsinu?
3. Í hversu mörgum eintökum hefur
diskurinn My Head is an Animal með
Of Monsters and Men selst í,í Banda-
ríkjunum?
SVÖR
1.Elma Rún Benediktsdóttir. 2.Ingvar E.
Sigurðsson. 3. 900.000 eintökum.
STJÓRNSÝSLA Lyfjastofnun segir
að álit stjórnskipunar- og eftir-
litsnefndar Alþingis um skýrslur
Ríkisendurskoðunar sem snerta
starfsemi Lyfjastofnunar gefi
ranga mynd af rekstri hennar.
Staðhæft sé að reksturinn
hafi ítrekað verið umfram fjár-
heimildir. Láðst hafi að geta þess
að Ríkisendurskoðun komist að
þeirri niðurstöðu að fjárhagsstað-
an skýrist stórum af því hvernig
stofnunin er fjármögnuð og hvern-
ig tekjur og gjöld bókfærð. - jme
Þingnefnd gagnrýnd:
Röng mynd af
Lyfjastofnun
- snjallar lausnir
Wise býður fjölbreyttar
viðskiptalausnir fyrir fólk
með mismunandi hlutverk.
Gold Enterprise Resource Planning
Silver ndependent Software Vendor ( SV)
Borgartún 26, Reykjavík » Hafnarstræti 102, Akureyri
sími: 545 3200 » wise@wise.is » www.wise.is
FERÐAÞJÓNUSTA Ferðaþjónustan
fær einn hundraðasta hluta af
opinberu rannsóknafé atvinnu-
veganna. Árið 2007 runnu 70 millj-
ónir til rannsókna í ferðaþjónustu,
en þær eru rétt um 100 milljónir
í dag.
Edward H. Huijbens, forstöðu-
maður Rannsóknarmiðstöðvar
ferðamála, segir fjármagn sem
rennur til rannsókna á ferðamál-
um ótrúlega lágt miðað við það
sem rennur til rannsókna innan
annarra atvinnugreina. „Eitthvað
í kringum 1% af öllu því fé sem
rennur til rannsókna á atvinnu-
vegum fer í ferðamálin. Þar sem
greinin er orðin okkar helsta leið
til gjaldeyrisöflunar skýtur þetta
skökku við,“ segir Edward.
Gjaldeyristekjur í ferðaþjónustu
hafa aukist mikið síðustu árin eins
og kunnugt er, og voru árið 2012
alls 238 milljarðar, samkvæmt
Hagstofu Íslands. Það gerir 23,5%
af gjaldeyristekjum þjóðarbúsins.
Tölur ársins 2013 verða enn hærri
en fjölgun ferðamanna til landsins
var 22% í lok ágúst.
Í þingsályktunartillögu um
stefnumörkun í ferðamálum frá
2011 kemur fram að til rannsókna
í iðnaði árið 2007 fóru tæp 55%
af heildarframlögum til atvinnu-
vegarannsókna. Til rannsókna í
fiskiðnaði og landbúnaði runnu
34,9%. Alls voru rannsóknir í
þessum greinum styrktar fyrir
um 11,2 milljarða króna. Rann-
sóknir á orkuframleiðslu og dreif-
ingu fengu 1,3 milljarða, eða tæp
10% af því rannsóknafé sem var
í boði. Ferðaþjónustan fékk þetta
ár um 70 milljónir en þær eru rétt
um 100 milljónir
í dag, að því
er næst verð-
ur komist. Nýja
greiningu á hlut-
föllum á milli
atvinnuveganna
er hins vegar
ekki að finna.
Edward segir
að efling fag-
mennsku og þekkingar meðal
þeirra sem starfa í ferðaþjónustu
sé undirstaða arðsemi í greininni.
„Gæði þjónustu munu skera úr um
gæði upplifunar gesta og þannig
orðspor landsins sem ferðamanna-
lands.“
Árni Gunnarsson, formaður
Samtaka ferðaþjónustunnar, hefur
gert þetta að umtalsefni, meðal
annars á aðalfundi samtakanna í
fyrra. Hann sagði að lítil þekking
á ferðaþjónustunni og fátækleg-
ar grunnrannsóknir væru grein-
inni hættulegar og í engu sam-
hengi við þá áherslu sem lögð er á
ferðaþjónustuna sem vaxtarbrodd
í íslensku samfélagi.
Hér má vísa til nýlegrar skýrslu
ráðgjafafyrirtækisins Boston Con-
sulting Group, sem kynnt var í
Hörpu fyrir fáum dögum. Í skýrsl-
unni er víða vitnað til mikilvæg-
is rannsókna, og þá sem einnar
undir stöðu þess að greinin vaxi
og dafni eins og vonir standa til.
svavar@frettabladid.is
Ferðaþjónustan fær
1% af rannsóknafénu
Um 100 milljónir króna renna til ferðaþjónustunnar af opinberu rannsóknafé. Árið
2012 voru gjaldeyristekjur af greininni hins vegar 236 milljarðar króna. Árið 2007 fóru
12,7 milljarðar til rannsókna atvinnuveganna; 70 milljónir til ferðaþjónustunnar.
EDWARD H.
HUIJBENS
LANDMANNALAUGAR Sama er við hvern er talað, allir eru sammála um að rann-
sóknir á ferðaþjónustunni sárvanti. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
FRAKKLAND Stærsti eiturlyfja-
fundur í sögu Frakklands átt sér
stað þegar upp komst um smygl á
yfir einu tonni af kókaíni, Kóka-
ínið fannst í flugvél Air France
á flugvellinum í París en vélin
hafði verið að koma frá Karakas,
höfuðborg Venesúela. Smyglar-
arnir komu efninu fyrir í þrjá-
tíu ferðatöskum og er verðgildi
þess talið vera um 21 milljarður
króna.
Lögreglan í Frakk-
landi hafði unnið
með kollegum
sínum frá
Spáni,
Hol-
landi og
Bretlandi
vegna gruns
um yfirvof-
andi smygl frá
Suður-Ameríku. Rannsókn
er hafin í Venesúela á því
hvernig smyglurunum tókst að
koma töskunum um borð í flugvél
Air France. - áo
Smygluðu tonni af kókaíni:
Stærsta smygl-
mál Frakklands
BANDARÍKIN, AP Tölvubúnaður
bilaði í Cygnus, glænýju vöru-
flutningageimskipi, í gær. Skipið,
sem er mannlaust, var á ferð með
nokkur hundruð kíló af mat og
klæðnaði innanborðs. Cygnus var
á leið til áhafnarinnar í Alþjóð-
legu geimstöðinni, þegar það bil-
aði með þeim afleiðingum að því
seinkar um að minnsta kosti tvo
sólahringa.
Geimskipið er í reynsluferð
og því ekki um alvarlegan skaða
að ræða. Um borð í alþjóðlegu
geimstöðinni eru geimfarar frá
Bandaríkjunum, Ítalíu og Rúss-
landi. Unnið er nú að því að koma
tölvubúnaði skipsins í lag. - áo
Bilun varð í tölvubúnaði:
Geimskipið
Cygnus tefst
STJÓRNMÁL Besti flokkurinn
mælist með 35 prósenta fylgi
samkvæmt nýrri könnun Cap-
acent Gallup
fyrir RÚV. Sjálf-
stæðisflokk-
urinn mældist
með 31 prósents
fylgi. Fylgi Sam-
fylkingarinnar
mældist 15 pró-
sent og fylgi við
Vinstri græn 11
prósent. Framsóknarflokkurinn
mældist með fjögurra prósenta
fylgi.
Besti flokkurinn fengi sex
borgarfulltrúa yrði þetta niður-
staða kosninganna, Sjálfstæðis-
flokkurinn fimm og Samfylk-
ing og Vinstri græn tvo. Könnun
Gallup var gerð dagana 15. ágúst
til 14. september. - jme
Reykjavíkurborg:
Besti flokkur-
inn stærstur
JÓN GNARR
HEILBRIGÐISMÁL Íslendingar nota
ekki bestu lyf sem völ er á. Lyf
hér á landi eru flest komin af
einkaleyfum
og eru einhvers
staðar á milli
15 til 20 ára
gömul. Þetta
kom fram í máli
Kára Stefáns-
sonar, forstjóra
Íslenskrar
erfðagreiningar,
í útvarpsþætt-
inum Á Sprengisandi á Bylgjunni
í gærmorgun.
Kári telur að stjórnvöld hafi
sofið á verðinum þegar kom að
heilbrigðiskerfinu. „Við vorum
búin að sofa á verðinum í að
minnsta kosti áratug áður en
hrunið átti sér stað,“ segir hann.
Heilbrigðiskerfið langt á eftir:
Erum ekki að
nota bestu lyfin
KÁRI
STEFÁNSSON
ALÞINGI Skilin á skýrslu rannsókn-
arnefndar Alþingis um sparisjóðina
hafa aldrei verið tímasett og því er
villandi að tala um að þeim hafi
verið frestað á fundi með forsætis-
nefnd Alþingis í þarsíðustu viku.
Þetta segir Hrannar Már S. Haf-
berg, formaður nefndarinnar.
Á fundinum kom fram að nefndin
hygðist skila skýrslu sinni í kring-
um mánaðamótin nóvember-des-
ember. Í frétt Fréttablaðsins af
málinu í síðustu viku kom fram að
skilunum hefði ítrekað verið frestað,
og bent á að upphaflega hafi nefnd-
inni verið markaðir níu mánuðir til
verksins. Í nóvemberlok muni hún
hins vegar hafa starfað í 27 mánuði.
Hrannar áréttar það sem fram
kom hjá þingforsetanum Einari
K. Guðfinnssyni að verkefnið hafi
undið mjög upp á sig og reynst mun
viðameira en að var stefnt í upphafi.
Þá hafði það einnig áhrif að skipt
var um formann í nefndinni í miðju
kafi fyrir réttu ári.
Hrannar segir rannsóknarvinn-
una sjálfa meira og minna búna og
því hafi nefndin treyst sér til að
segja nokkurn veginn til um hve-
nær skýrsluskrifum gæti lokið. - sh
Formaður rannsóknarnefndar um sparisjóðina segir vinnuna langt komna:
Skýrsluskilin aldrei tímasett
STÓR SKÝRSLA Skýrslan verður svipuð
að vöxtum og skýrsla rannsóknarnefnd-
ar Alþingis um stóru bankana þrjá.
VEISTU SVARIÐ?