Fréttablaðið - 23.09.2013, Síða 8
23. september 2013 MÁNUDAGUR| FRÉTTIR | 8
Meira í leiðinniN1 VERSLANIR | N1 BÍLAÞJÓNUSTA | SÍMI 440 1100 | WWW.N1.IS
BANNER
STARTGEYMAR
Í FLESTAR GERÐIR FARARTÆKJA
Banner startgeymar í allar stærðir ökutækja
t.d. mótorhjól, fjórhjól, vélsleða, dráttarvélar,
vörubíla, vinnuvélar, jeppa og fólksbíla.
Eigum einnig til start- og neyslugeyma fyrir
báta, fellihýsi og hjólhýsi.
Banner geymar eru framleiddir í evrópu.
LOFTSLAGSMÁL Í dag hefst í Stokk-
hólmi fundur loftslagsfræðinga,
sem næstu dagana fara yfir drög
að hluta næstu áfangaskýrslu
loftslagsráðstefnu Sameinuðu
þjóðanna.
Þeim er nokkur vandi á hönd-
um, því undanfarin fimmtán
ár hefur hægt nokkuð á hlýnun
loftslags á jörðinni. Þetta stingur
í stúf við meginniðurstöður lofts-
lagsfræðinnar, sem eru að lofts-
lag fari jafnt og þétt hlýnandi og
ástæðuna megi að verulegu leyti
rekja til mannlegra athafna.
Samkvæmt drögum sem lekið
hefur verið til fjölmiðla viður-
kenna höfundar skýrslunnar að
ekki hafi tekist að skýra þetta
frávik síðustu ára.
Þeir hafa fundið fyrir vax-
andi þrýstingi frá stjórnvöld-
um, meðal annars í Bandaríkj-
unum, Þýskalandi og Belgíu, um
að í skýrslunni verði þetta mál
afgreitt með sannfærandi hætti,
enda styrki frávikið raddir efa-
semdarmanna sem telja óþarfa
að verja fjármunum til þess að
vinna gegn hlýnun jarðar.
Efasemdarmenn hafa haldið
því fram að hún sé aðeins tíma-
bundin og stafi jafnvel ekkert
sérstaklega af útblæstri gróður-
húsalofttegunda.
„Ég tel að ef ekki er tekið á
þessu muni það skapa vanda
því þá er í raun verið að fá
afneitunar sinna til að segja: Sjáið
bara, loftslagsnefnd Sameinuðu
þjóðanna þegir um þetta mál,“
segir Alden Mayer frá Samtökum
uggandi vísindamanna (Union of
Concerned Scientists), sem hafa
aðsetur í Washington.
Í skýrsludrögunum er engu
að síður að finna afdráttarlaus-
ar yfirlýsingar um að hlýnunin
haldi áfram þrátt fyrir frávik
síðustu ára.
Þá er nú fullyrt að „ákaflega
miklar líkur“ séu til þess að
hlýnunin sé af mannavöldum, en
í síðustu áfangaskýrslu frá árinu
2007 var látið nægja að segja að
líkurnar væru „mjög miklar“.
Nefndin, sem fundar í Stokk-
hólmi nú í vikunni, fer aðeins
yfir einn af þremur hlutum
næstu áfangaskýrslu, sem á að
liggja fyrir í heild á næsta ári.
Hún verður svo lögð til grund-
vallar ákvörðunum stjórnmála-
manna, sem árið 2015 þurfa að ná
samkomulagi um næstu aðgerðir
til að draga úr losun svonefndra
gróðurhúsalofttegunda.
gudsteinn@frettabladid.is
Geta erfiðlega
skýrt hægari
hlýnun jarðar
Loftslagsfræðingar eiga í vandræðum með að útskýra
af hverju hægt hefur á hlýnun jarðar. Efasemdarmenn
telja sig geta hrósað sigri þótt hlýnunin haldi áfram.
Æ betur kemur í ljós að hún er mönnum að kenna.
LOFTSLAGSBREYTINGAR HALDA ÁFRAM Vaxandi þrýstingur er á loftslagsfræð-
inga að finna góðar skýringar á því hvers vegna hægt hefur á hlýnuninni síðustu ár.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Save the Children á Íslandi
KÍNA, AP Bo Xilai, fyrrverandi viðskiptaráð-
herra Kína, var á sunnudag dæmdur í lífs-
tíðarfangelsi fyrir mútuþægni, fjárdrátt og
misnotkun valds.
Dómstóll í kínversku borginni Jinan dæmdi
Bo einnig í ævilangt bann frá þátttöku í
stjórnmálum og svipti hann eigum sínum.
Dóminn má rekja til rannsóknar sem
hófst vorið 2012 þegar Bo var sakaður um
að hindra rannsókn kínverskra yfirvalda á
glæpum eiginkonu hans, Gu Kailai. Hún var
fyrr á árinu dæmd fyrir að myrða breskan
kaupsýslumann. Við rannsókn á málum eigin-
konunnar kom í ljós að Bo hafði meðal annars
þegið um 3,3 milljónir dala í mútur.
Bo var eitt sinn talinn ein skærasta
stjarnan í kínverskum stjórnmálum og hafa
réttarhöldin yfir honum vakið mikla athygli í
landinu. Til marks um það má nefna að dóm-
stóllinn í Jinan birti reglulega upplýsingar um
framvindu málsins á kínverska samfélags-
miðlinum Sina Weibo.
Lögfræðingur, sem sagður er tengjast mál-
inu, hafði eftir Bo að að hann ætli að áfrýja
dóminum. Bo hefur tíu daga til að áfrýja. - hg
Fyrrverandi viðskiptaráðherra Kína, Bo Xilai, sagður ætla að áfrýja lífstíðardómi:
Dæmdur í lífstíðarfangelsi fyrir spillingu
Í JÁRNUM Bo Xilai við dómsupp-
kvaðninguna í Jinan. NORDICPHOTOS/AFP.
MATVÆLI Matvælastofnun hefur
í samráði við Matfugl innkallað
Ali-kjúklingalasagna frá fyrir-
tækinu. Ástæðan er að innihalds-
lýsing vörunnar er ekki rétt. Í
réttinn er notuð mjólk en þess er
ekki getið í innihaldslýsingu.
Mjólk getur valdið þeim sem
hafa óþol eða ofnæmi fyrir henni
veikindum. Ali-lasagna er hins
vegar hættulaust fyrir aðra.
Lasagnað hefur verið selt í versl-
unum Bónuss, Kosti og Fjarðar-
kaupum. - jme
Kjúklingalasagna innkallað:
Mjólkur ekki
getið í lýsingu
Ég tel að ef ekki er
tekið á þessu muni það
skapa vanda því þá er í
raun verið að fá afneitun-
arsinna til að segja: Sjáið
bara, loftslagsnefnd
Sameinuðu þjóðanna
þegir um þetta mál.
Alden Mayer
frá Samtökum uggandi vísindamanna