Fréttablaðið - 23.09.2013, Side 17
MÁNUDAGUR 23. september 2013 | SKOÐUN | 17
Í DAG
Guðmundur Andri
Thorsson
rithöfundur
Erlendur bakrauf, Jósteinn
glenna, Ásmundur kastanrassi.
Þorsteinn göltur, Jón fjósi, Pétur
glyfsa. Þorbjörn meri, Guðmund-
ur kvíagimbill, Böðvar lítilskeita.
Óhæfu-Geir, Þorbjörn skakkur,
Þorkell rostungur. Skratta-Björn,
Koðrán skrökkur, Sighvatur
slappi, Ögmundur vandræðamág-
ur, Hámundur vorbelgur, Ólafur
tottur …
Íslensk þjóðmenning
Þetta er arfurinn. Nokkur viður-
nefni tekin af handahófi úr Sturl-
ungu – þessu hreyttu þeir hver
framan í annan milli þess sem
þeir köstuðu grjóti hver í annan
og reyndu að sarga hausinn hver
af öðrum með bitlausum vopnum.
En orðin voru ekki bitlaus. Og
svona hafa Íslendingar löngum
talað saman – þetta er arfurinn –
uppnefni og gagnkvæmur skæt-
ingur. Yfirleitt er uppnefnið tengt
meintu útlitslýti eða einhverri
sögu um viðkomandi einstak-
ling, gjarnan af neyðarlegu atviki
sem hamrað er á til að viðkom-
andi gleymi aldrei sínum verstu
stundum; haldi ekki að hann/hún
sé eitthvað. Þetta er einkenni á
kúltur þar sem fólk vill helst búa
afskekkt og í friði fyrir öðrum,
en neyðist til að búa í návígi –
og kann alls ekki vel hvert við
annað.
Svona ertni í nafngiftum getur
birst á margs konar hátt. Hún
getur líka snúist um að snúa nafni
viðkomandi einstaklings þannig
að honum sé skapraun að og þrá-
stagast síðan á þeim útúrsnúningi
í þeirri viðleitni að valda viðkom-
andi vanlíðan. Flest erum við ein-
kennilega viðkvæm fyrir nafninu
okkar: höfum allt að því smá-
smugulegar skoðanir á því hvern-
ig það skuli haft; kona sem héti
til dæmis Vilborg gæti unað því
vel að vera kölluð Villa en brugð-
ist ókvæða við því að vera nefnd
Bogga. Af hverju? Af því að í
nafninu birtist kjarni okkar. Þess
vegna er það alveg sérstök tegund
af óvirðingu hjá Davíð Oddssyni
að neita markvisst að kalla eftir-
mann sinn í stóli borgarstjóra því
nafni sem hann heitir, Jón Gnarr,
en kenna hann þess í stað ævin-
lega við föður sinn, Jón G. Krist-
insson, Jón Gunnar Kristinsson.
Með því neitar hann Jóni um þau
sjálfsögðu réttindi hvers og eins
að skilgreina sig sjálfur. Þetta
er raunar rauður þráður í sam-
skiptum Davíðs við aðra en við-
hlæjendur sína: sífelld viðleitni að
skilgreina aðra sem eitthvað sem
þeir eru ekki og vilja ekki vera.
Kannski er skríkjandi hirð
kringum ritstjórann, en almennt
held ég að flest fólk standi hjá og
sé hálf hvumsa yfir þeim van-
þroska sem svona athæfi sýnir.
Af hverju lætur maðurinn svona?
Það er af því að hann telur að
þetta sé veikasti bletturinn á Jóni
Gnarr.
Hin ágæta bók Jóns, Sjóræning-
inn, fjallar öðrum þræði um erfitt
samband Jóns við föður sinn og er
með bestu lýsingum á sambandi
sonar og föður sem ég man eftir í
bókmenntum okkar, sár og fynd-
in, mótsagnakennd, full af tilfinn-
ingum. Davíð Oddsson stendur
greinilega í þeirri trú að Jóni sé
skapraun að því að vera kenndur
við föður sinn, en eins og bókin
leiðir í ljós er samband þeirra
flóknara en svo.
Jón Gnarr er áreiðanlega mjög
erfiður pólitískur andstæðingur.
Það er erfitt að uppnefna mann
sem búinn er að uppnefna sig
sjálfur. Það er erfitt að gera grín
að manni sem sjálfur gerir grín
að sjálfum sér. Það er erfitt að
sýna fram á vanþekkingu manns
sem aldrei hefur þóst hafa öll
svör á reiðum höndum og hugsar
stundum upphátt í viðtölum án
þess að komast að niðurstöðu.
Samtök um hjóllausan lífsstíl
Því meðal þess sem hrifið hefur
margt fólk við Jón Gnarr í starfi
borgarstjóra er sjálfur ófull-
komleiki hans í starfi, einlægni
hans, glíma hans við að ná tökum
á þessu einkennilega hlutverki
sem borgarbúar hafa lyft honum
upp í – og augljós löngun hans til
að láta gott af sér leiða. Og þótt
hann kunni stundum að virðast
úti á þekju í einstökum málum er
stefnan sem mörkuð hefur verið
í núverandi borgarstjórn samt
býsna skýr í ótal málum og þar
hafa borgarfulltrúar unnið vel
saman þvert á flokkslínur; þarna
er ungt fólk sem alið er upp í
borginni og ann henni, hefur þá
sjálfsmynd að vera borgarbúar
frekar en aðkomumenn, og hefur
býsna skýrar hugmyndir um það
hvernig borgin eigi að þróast
áfram. Hlutirnir takast vissulega
misvel en borgarbúar hafa þá
mynd af núverandi borgarstjórn
– fulltrúum allra flokka – að þar
vilji fólk starfa almenningi til
heilla og dregið hafi úr því verk-
takaræði með tilheyrandi turna-
fári sem við þekkjum svo átakan-
lega vel hér á landi.
Sjálfstæðisflokkurinn þarf nú
að gera upp við sig hvort hann
ætlar að daga uppi sem nokkurs
konar stjórnmálaarmur Samtaka
um hjóllausan lífsstíl. Miklir bíl-
réttindafrömuðir hafa stigið fram
og kvartað hástöfum yfir því að
hagsmunir fólks skuli teknir fram
yfir hagsmuni bíla. Þannig hugsa
ekki hinir yngri borgarfulltrúar
Sjálfstæðismanna; þau starfa af
heilindum og eru málefnaleg. Nú
þurfa þau að verjast atlögum úr
Hádegismóum, þar sem reynt er
að gera staðsetningu flugvallar að
svipuðu æsingaefni og Davíð þyrl-
aði upp á sínum tíma þegar hann
hamaðist gegn byggð við Rauða-
vatn, þar sem hann situr nú dag-
lega við þá iðju að uppnefna Jón
Gnarr og átelja Obama fyrir að
hafa ekki ráðist inn í Sýrland til
að fá stjórnina þar til að afhenda
vopnin sem þau eru einmitt að
afhenda núna.
Arfurinn
Jón Gnarr er áreið-
anlega mjög erfiður
pólitískur andstæðingur.
Það er erfitt að uppnefna
mann sem búinn er að
uppnefna sig sjálfur.
Ég elska þig stormur!
Vísindakaffi
Prófaðu Sensodyne vörurnar og finndu muninn.
Sensodyne fyrir viðkvæmar tennur
D
Y
N
A
M
O
R
E
Y
K
JA
V
ÍK
NÝ OG BE
TRI
HÖNNUN
!
TANNBURSTAR OG
TANNKREM FYRIR
VIÐKVÆM SVÆÐI
... matreiðslunema
matreiðslumanni
uppvaskara
sushi kokki
Vegna mikilla anna
leitum við að ...
sushisamba.is
Senda skal umsóknir á
eythor@sushisamba.is
Save the Children á Íslandi