Fréttablaðið


Fréttablaðið - 23.09.2013, Qupperneq 17

Fréttablaðið - 23.09.2013, Qupperneq 17
MÁNUDAGUR 23. september 2013 | SKOÐUN | 17 Í DAG Guðmundur Andri Thorsson rithöfundur Erlendur bakrauf, Jósteinn glenna, Ásmundur kastanrassi. Þorsteinn göltur, Jón fjósi, Pétur glyfsa. Þorbjörn meri, Guðmund- ur kvíagimbill, Böðvar lítilskeita. Óhæfu-Geir, Þorbjörn skakkur, Þorkell rostungur. Skratta-Björn, Koðrán skrökkur, Sighvatur slappi, Ögmundur vandræðamág- ur, Hámundur vorbelgur, Ólafur tottur … Íslensk þjóðmenning Þetta er arfurinn. Nokkur viður- nefni tekin af handahófi úr Sturl- ungu – þessu hreyttu þeir hver framan í annan milli þess sem þeir köstuðu grjóti hver í annan og reyndu að sarga hausinn hver af öðrum með bitlausum vopnum. En orðin voru ekki bitlaus. Og svona hafa Íslendingar löngum talað saman – þetta er arfurinn – uppnefni og gagnkvæmur skæt- ingur. Yfirleitt er uppnefnið tengt meintu útlitslýti eða einhverri sögu um viðkomandi einstak- ling, gjarnan af neyðarlegu atviki sem hamrað er á til að viðkom- andi gleymi aldrei sínum verstu stundum; haldi ekki að hann/hún sé eitthvað. Þetta er einkenni á kúltur þar sem fólk vill helst búa afskekkt og í friði fyrir öðrum, en neyðist til að búa í návígi – og kann alls ekki vel hvert við annað. Svona ertni í nafngiftum getur birst á margs konar hátt. Hún getur líka snúist um að snúa nafni viðkomandi einstaklings þannig að honum sé skapraun að og þrá- stagast síðan á þeim útúrsnúningi í þeirri viðleitni að valda viðkom- andi vanlíðan. Flest erum við ein- kennilega viðkvæm fyrir nafninu okkar: höfum allt að því smá- smugulegar skoðanir á því hvern- ig það skuli haft; kona sem héti til dæmis Vilborg gæti unað því vel að vera kölluð Villa en brugð- ist ókvæða við því að vera nefnd Bogga. Af hverju? Af því að í nafninu birtist kjarni okkar. Þess vegna er það alveg sérstök tegund af óvirðingu hjá Davíð Oddssyni að neita markvisst að kalla eftir- mann sinn í stóli borgarstjóra því nafni sem hann heitir, Jón Gnarr, en kenna hann þess í stað ævin- lega við föður sinn, Jón G. Krist- insson, Jón Gunnar Kristinsson. Með því neitar hann Jóni um þau sjálfsögðu réttindi hvers og eins að skilgreina sig sjálfur. Þetta er raunar rauður þráður í sam- skiptum Davíðs við aðra en við- hlæjendur sína: sífelld viðleitni að skilgreina aðra sem eitthvað sem þeir eru ekki og vilja ekki vera. Kannski er skríkjandi hirð kringum ritstjórann, en almennt held ég að flest fólk standi hjá og sé hálf hvumsa yfir þeim van- þroska sem svona athæfi sýnir. Af hverju lætur maðurinn svona? Það er af því að hann telur að þetta sé veikasti bletturinn á Jóni Gnarr. Hin ágæta bók Jóns, Sjóræning- inn, fjallar öðrum þræði um erfitt samband Jóns við föður sinn og er með bestu lýsingum á sambandi sonar og föður sem ég man eftir í bókmenntum okkar, sár og fynd- in, mótsagnakennd, full af tilfinn- ingum. Davíð Oddsson stendur greinilega í þeirri trú að Jóni sé skapraun að því að vera kenndur við föður sinn, en eins og bókin leiðir í ljós er samband þeirra flóknara en svo. Jón Gnarr er áreiðanlega mjög erfiður pólitískur andstæðingur. Það er erfitt að uppnefna mann sem búinn er að uppnefna sig sjálfur. Það er erfitt að gera grín að manni sem sjálfur gerir grín að sjálfum sér. Það er erfitt að sýna fram á vanþekkingu manns sem aldrei hefur þóst hafa öll svör á reiðum höndum og hugsar stundum upphátt í viðtölum án þess að komast að niðurstöðu. Samtök um hjóllausan lífsstíl Því meðal þess sem hrifið hefur margt fólk við Jón Gnarr í starfi borgarstjóra er sjálfur ófull- komleiki hans í starfi, einlægni hans, glíma hans við að ná tökum á þessu einkennilega hlutverki sem borgarbúar hafa lyft honum upp í – og augljós löngun hans til að láta gott af sér leiða. Og þótt hann kunni stundum að virðast úti á þekju í einstökum málum er stefnan sem mörkuð hefur verið í núverandi borgarstjórn samt býsna skýr í ótal málum og þar hafa borgarfulltrúar unnið vel saman þvert á flokkslínur; þarna er ungt fólk sem alið er upp í borginni og ann henni, hefur þá sjálfsmynd að vera borgarbúar frekar en aðkomumenn, og hefur býsna skýrar hugmyndir um það hvernig borgin eigi að þróast áfram. Hlutirnir takast vissulega misvel en borgarbúar hafa þá mynd af núverandi borgarstjórn – fulltrúum allra flokka – að þar vilji fólk starfa almenningi til heilla og dregið hafi úr því verk- takaræði með tilheyrandi turna- fári sem við þekkjum svo átakan- lega vel hér á landi. Sjálfstæðisflokkurinn þarf nú að gera upp við sig hvort hann ætlar að daga uppi sem nokkurs konar stjórnmálaarmur Samtaka um hjóllausan lífsstíl. Miklir bíl- réttindafrömuðir hafa stigið fram og kvartað hástöfum yfir því að hagsmunir fólks skuli teknir fram yfir hagsmuni bíla. Þannig hugsa ekki hinir yngri borgarfulltrúar Sjálfstæðismanna; þau starfa af heilindum og eru málefnaleg. Nú þurfa þau að verjast atlögum úr Hádegismóum, þar sem reynt er að gera staðsetningu flugvallar að svipuðu æsingaefni og Davíð þyrl- aði upp á sínum tíma þegar hann hamaðist gegn byggð við Rauða- vatn, þar sem hann situr nú dag- lega við þá iðju að uppnefna Jón Gnarr og átelja Obama fyrir að hafa ekki ráðist inn í Sýrland til að fá stjórnina þar til að afhenda vopnin sem þau eru einmitt að afhenda núna. Arfurinn Jón Gnarr er áreið- anlega mjög erfiður pólitískur andstæðingur. Það er erfitt að uppnefna mann sem búinn er að uppnefna sig sjálfur. Ég elska þig stormur! Vísindakaffi Prófaðu Sensodyne vörurnar og finndu muninn. Sensodyne fyrir viðkvæmar tennur D Y N A M O R E Y K JA V ÍK NÝ OG BE TRI HÖNNUN ! TANNBURSTAR OG TANNKREM FYRIR VIÐKVÆM SVÆÐI ... matreiðslunema matreiðslumanni uppvaskara sushi kokki Vegna mikilla anna leitum við að ... sushisamba.is Senda skal umsóknir á eythor@sushisamba.is Save the Children á Íslandi
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.