Fréttablaðið - 23.09.2013, Page 46
| FÓLK | 4HANNYRÐIR
Handavinna er hluti af menn-ingararfi þjóðarinnar, rétt eins og bækurnar. Því töldum við útsaum
og prjónaskap eiga vel heima í því mikla
menningarhúsi sem Mál og menning er,“
segir Hildur Guðnadóttir, eigandi Ömmu
músar handavinnuhúss sem í byrjun
september opnaði heillandi útibú í kjall-
ara Máls og menningar á Laugavegi 18.
Þrjú ár eru síðan Hildur opnaði Ömmu
mús handavinnuhús í Ármúla og segir
hún að ekki hafi verið á prjónunum að
opna útibú.
„Við ákváðum að láta slag standa og
reyna á miðbæinn þegar tækifæri gafst.
Amma mús er kærkomin viðbót við mið-
bæjarflóruna og hefur mælst afskaplega
vel fyrir að loks hafi opnað hannyrða-
verslun í miðbæ Reykjavíkur. Þeir sem
búa hér og starfa eru himinsælir að kom-
ast loks í prjónagarn og útsaum í gamla
miðbænum,“ segir Hildur sem er hin eina
sanna Amma mús.
„Ég á þrjú uppkomin börn sem köll-
uðu mig mömmu mús á þeim tímapunkti
þegar ég var orðin minnst í fjölskyld-
unni. Þegar von var á fyrsta barna-
barninu fannst þeim svo viðeigandi að
breyta viðurnefninu í amma mús og það
hentaði svona ljómandi vel á versl-
unina,“ segir Hildur brosmild.
Hún segir þess misskilnings gæta á
meðal viðskiptavina Ömmu músar að
handavinnuhúsinu í Ármúla hafi verið
lokað þegar opnað var í Máli og menn-
ingu.
„Verslunin í Ármúla verður enn á
sínum stað en í útibúinu á Laugavegi
verða aðrar áherslur. Hér bjóðum við
brot af því besta í útsaumi og prjónaskap
og gaman að segja frá því að útsaumur
eykst nú mikið. Í útsaumi bjóðum við
landsins mesta úrval og afar fín merki
og spennandi vörur. Prjónagarnið er það
sama og fæst í Ármúlanum en einnig
handlitað band úr jurtalitum frá Guð-
rúnu Bjarnadóttur og pakkningar frá
Móakoti í flottar peysur úr einbandi,“
útskýrir Hildur um fátt eitt sem býðst
handavinnufólki í Ömmu mús á Lauga-
vegi.
Þar fæst einnig fágætt, íslenskt hand-
verk sem hvergi fæst annars staðar, eins
og hálsmen úr kýr- og kindahorni frá
Kúmeni og vandaðir stofupúðar sem eru
sérsaumaðir úr fiskroði fyrir Ömmu mús.
„Nú styttist í jólin og því mikið um
jólaútsaum en einnig íslenskan útsaum
af íslenskum fuglum frá Philip Richard og
smart, danska hönnun frá Fru Zippe sem
verður að alvöru nytjahlutum að saumi
loknum.“
AMMA SAUMAR ÚT
AMMA MÚS KYNNIR Loks er komin hannyrðaverslun í miðbæ Reykjavíkur.
Þar fæst landsins mesta úrval af útsaumi og garni og fágætt íslenskt handverk.
AMMA MÚS
Hildur Guðnadóttir í
nýju og heillandi útibúi
Ömmu músar handa-
vinnuhúss í kjallara
Máls og menningar á
Laugavegi.
MYND/VALLI
Amma mús handa-
vinnuhús í Máli og
menningu er opið
frá klukkan 11 til 20
á virkum dögum og
til 17 um helgar. Sjá
nánar á Facebook
undir Amma mús.
Það er svo róandi og notalegt að prjóna. Með prjónana leiðist manni aldrei,“ segir Guðrún S. Magnúsdóttir hannyrðakona.
Hún hefur nú sent frá sér handavinnubókina
Vettlingaprjón. Þetta er þriðja bók Guðrúnar á
þremur árum en áður hafa komið út bækurnar
Sokkaprjón og Húfuprjón.
„Ætli ég hafi ekki unnið að bókinni í rétt
rúmlega ár. Þetta eru þó ekki allt nýjar upp-
skriftir, margar þeirra hef ég sjálf prjónað
margoft og einhverjar þeirra fékk ég hjá móður
minni,“ segir Guðrún en alls eru 64 uppskriftir
í bókinni, útprjón, kaðlar, gataprjón og fleira.
„Það er einnig örlítið hekl en aðallega til
skrauts,“ segir hún og bætir við að uppskrift-
irnar séu einfaldar og henti öllum. „Það ættu
allir að ráða við þetta, líka byrjendur í prjóni.
Þarna eru uppskriftir í öllum stærðum, allt frá
núll til þriggja mánaða og upp í stórar karl-
mannsstærðir. Fjölskyldan öll ætti því að geta
fundið á sig vettlinga,“ segir Guðrún.
Við vinnslu bókarinnar naut hún aðstoðar
eigin fjölskyldu, dóttir hennar braut bókina um
og sonur hennar tók allar myndirnar. „Stórfjöl-
skyldan sat fyrir á myndunum svo ég náði að
virkja alla,“ segir Guðrún. „Það voru allir alltaf
jafn kátir með að hjálpa til.“
Við vinnslu fyrri bókanna gaf Guðrún allt
sem hún prjónaði til góðgerðarmála. Sokkapör-
in gaf hún til styrktar barnaspítala Hringsins
og húfurnar fóru á uppboð til styrktar hjart-
veikum börnum. „Eitt af mínum barnabörnum
er hjartveikt svo það málefni stendur mér
nærri,“ segir Guðrún og ætlar að hafa sama
háttinn á í þetta sinn. „Ég er bara ekki búin að
ákveða málefnið enn þá en vettlingarnir fara á
góðan stað. Þetta eru 170 pör sem ég prjónaði
við gerð bókarinnar.“
Aðspurð segist hún eiga hugmyndir í margar
bækur enn. „Ég gæti gert þrjár til fjórar bækur
í viðbót en ég veit ekki hvort verður af því. Ég
er allavega ekki byrjuð á nýrri bók en það er
aldrei að vita. Ég legg aldrei frá mér prjónana
og sit með þá fyrir framan sjónvarpið. Tek þá
reyndar með mér um allt í veskinu mínu,“ segir
Guðrún hlæjandi. „Ég reyni að nota hverja
einustu stund.“ ■ heida@365.is
MEÐ PRJÓNANA
Í TÖSKUNNI
NÝ BÓK Guðrún S. Magnúsdóttir hefur sent frá sér
sína þriðju hannyrðabók á þremur árum. Nýjasta
bókin inniheldur uppskriftir að prjónavettlingum.
VETTLINGAFJALL
Guðrún S. Magnúsdóttir
prjónaði 170 vettlinga-
pör við gerð nýjustu
hannyrðabókar sinnar.
Vettlingana ætlar hún að
gefa til góðs málefnis.
MYND/VALLI
FELLUR
ALDREI
VERK ÚR
HENDI
„Ég legg aldrei frá
mér prjónana og
sit með þá fyrir
framan sjónvarpið.
Tek þá reyndar
með mér um allt í
veskinu mínu.”
■ MARÍA-HEKLBÓK
Á METSÖLULISTA
Tinna Þórudóttir Þorvaldar
gaf út bókina Þóra heklbók
árið 2011 og fylgir nú eftir með
María heklbók sem kom út í lok
ágúst. Þóra heklbók hefur selst
í yfir fimm þúsund eintökum
og Maríu-bókin situr nú í öðru
sæti á metsölulista Máls og
menningar.
Mikil hannyrðavakning hefur
verið hér á landi undanfarin ár
en Tinnu fannst vanta hand-
hægar heklbækur á markaðinn.
Þær hafa fallið í góðan jarðveg
enda var meira en hálf öld frá
því síðasta heklbók kom út
þegar Þóra kom á markað.
Bækurnar eru gefnar út af
Sölku en á heimasíðu forlags-
ins má sjá kennslumyndbönd
frá Tinnu þar sem hún sýnir
hvernig á að bera sig að við
að hekla. Þar er meðal annars
myndband sem sýnir hvernig á
að halda á heklunál, gera upp-
hafslykkju, loftlykkju, fasta-
lykkju og stuðla svo dæmi séu
nefnd en með hjálp myndband-
anna ætti hver sem er að geta
heklað.
HEKLIÐ SÆKIR
Í SIG VEÐRIÐ
Save the Children á Íslandi