Fréttablaðið - 27.09.2013, Page 4
27. september 2013 FÖSTUDAGUR| FRÉTTIR | 4
SKIPULAGSMÁL Eigendur jarð-
arinnar Selskarðs á Álftanesi eru
ósáttir við vinnubrögð Vegagerðar-
innar vegna framkvæmda við nýjan
Álftanesveg. Landeigendur segja að
vegurinn muni kljúfa og ónýta verð-
mætt byggingarland. Þeir segja
Vegagerðina brjóta 40 ára samning
við þá og neita að ganga til nýrra
samninga. Til greina kemur að fá
lögreglu til að stöðva vegafram-
kvæmdirnar.
Á annan tug einstaklinga eru
eigendur að Selskarði. Landamerki
jarðarinnar eru frá jaðri Gálga-
hrauns, milli Lambhúsatjarnar og
Skógtjarnar og nánast að heimreið-
inni að Bessastöðum. Nýr vegur
kemur til með að kljúfa jörðina í
tvennt.
Landeigendur telja ekki augljóst
að almenn þörf krefjist þess að nýr
vegur liggi þar sem hann er skipu-
lagður og segja að ekki hafi verið
haft samráð við jarðeigendur um
aðalskipulag. Þeir hafa lagt til að
vegurinn verði færður niður í fjöru
þar sem annars ónýtist verðmætt
byggingarland, en eigendur hafa
látið skipuleggja 400 íbúða byggð
á jörðinni. Það skipulag hefur ekki
verið samþykkt af bæjaryfirvöldum
í Garðabæ en eigendur telja sig hins
vegar hafa fullan lagalegan rétt til
að skipuleggja eign sína.
Í minnisblaði sem þeir sendu
Hönnu Birnu Kristjánsdóttur
innan ríkisráðherra fyrir nokkrum
dögum segir að eigendum jarðar-
innar sé orðið nokkuð ljóst að vega-
gerðarmenn muni fara með eignir
jarðarinnar Selskarðs á ólöglegan
hátt og án leyfis nema þeir verði
skikkaðir af þar til bærum stjórn-
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS– AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@365.is, Laila Awad laila@365.is, Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is,
Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Bryndís Hauksdóttir bryndis@365.is, Ívar Örn Hansen ivarorn@365.is, Kolbeinn Kolbeinsson kolli@365.is, Sigurður Helgi Grímsson sigurdurhg@365.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrirbs@365.is
FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is
SVONA ERUM VIÐ
Gálgahraun
Skógtjörn
Bessastaðir
Selskarð
Lambhúsatjörn
SELSKARÐ
65 golfvellir eru á Íslandi sem þýðir að einn golf-
völlur er til staðar á hverja 5.000
íbúa.
Iðkendur á Íslandi eru um 17.000
talsins, en iðkendur innan ÍSÍ eru
aðeins fleiri í knattspyrnu – en þeir
eru um 20.000 talsins.
Nýr Álftanesvegur kljúfi
verðmætt byggingarland
Eigendur jarðarinnar Selskarðs segja að nýr Álftanesvegur kljúfi jörð þeirra í tvennt og valdi þeim fjárhags-
tjóni. Þeir segja Vegagerðina ekki halda gerða samninga. Vegagerðin hafnar ásökunum landeigenda.
UMDEILT LAND Álftanesvegur á að liggja um Selskarð. Landeig-
endur eru ósáttir og telja að verðmætt byggingarland ónýtist. Þeir
vilja að vegurinn verði fluttur niður í fjöru frá þeirri staðsetningu
sem gert er ráð fyrir og sést á kortinu.
Málflutningur í Héraðsdómi
Reykjavíkur vegna kröfu fjögurra
umhverfissamtaka um að leitað
verði ráðgefandi álits EFTA-dóm-
stólsins um það hvort sam-
tökin hafi lögvarða hagsmuni í
lögmannsmáli vegna lagningar
Álftanesvegar fór fram í gær.
Skúli Bjarnason, lögmaður
Hraunavina, segir að nú sé beðið
úrskurðar dómara í málinu. Hann
segist vonast til að úrskurðurinn
liggi fyrir innan skamms.
HRAUNAVINIR
Í HÉRAÐSDÓMI
VIÐSKIPTI Vatnsfyrirtæki Jóns
Ólafssonar, Icelandic Glacial
Water, hyggst hefja dreifingu
á vatnsflöskum fyrirtækisins í
Belgíu, Hollandi og Lúxemborg.
Dreifingin verður í samstarfi við
fyrirtækið M&F Liquor b.v.
Vatninu er þegar dreift í
Bandaríkjunum. Fyrirtæki Jóns
hefur verið far sælt á erlendum
mörkuðum en fyrir skömmu
ákvað Dior að nota vatnið við
framleiðslu á snyrtivörum. - vg
Hyggja á landvinninga:
Selja íslenskt
vatn í Evrópu
T-61270AC Barkalaus þurrkari
Sparneytinn 7 kílóa barkalaus eðal-
þurrkari frá AEG með fullkomnum
rakaskynjara og fjölmörgum þurrk-
kerfum, stafrænum skjá og hljóðmerki.
Hljóðlátur og vandaður í alla staði.
Fullt verð kr. 137.900.
GILDIR FÖSTUDAG
& LAUGARDAG
99.900
SPARAÐU 38.000
Verð föstudag & laugardag kr.
völdum til að afla sér heimilda hjá
löglegum eigendum.
Í minnisblaði sem sent var ráð-
herra í vikunni segir svo að eig-
endum jarðarinnar finnist lág-
mark að ráðuneytið geri þá kröfu til
Vegagerðarinnar að hún sýni fram
á eignarrétt sinn á jörðinni ef ein-
hver sé eða önnur þau réttindi sem
hún telur sig hafa til að fara í fram-
kvæmdir á jörðinni. Landeigendur
ætla að biðja ráðherra að gefa Vega-
gerðinni þau fyrirmæli að hún afli
sér fullra heimilda og leyfa fyrir
lagningu nýs þjóðvegar á landi
Selskarðs, að öðrum kosti verði
væntan legar framkvæmdir stöðv-
aðar. Jónas Snæbjörnsson, fram-
kvæmdastjóri þróunarsviðs hjá
Vegagerðinni, segir að Vegagerðin
telji sig ekki standa í neinum deilum
við landeigendur. „Vegagerðin telur
sig í fullum rétti að leggja veginn
um Selskarð þar sem ekki er verið
að breyta vegstæðinu frá því sem
samþykkt er í gildandi skipulagi,“
segir Jónas. johanna@frettabladid.is
Soff ía Sveinsdóttir
veðurfréttamaður
Veðurspá
Sunnudagur
8-13 m/s NV-til, annars hægari.
KÓLNAR Í dag verður heldur þungbúið norðan til með rigningu eða slyddu og
slyddu eða snjókomu til fjalla. Vindur verður fremur hægur en það hvessir af suðri
norðvestan- og vestanlands eftir hádegi á morgun. Kólnar heldur í veðri.
2°
5
m/s
5°
4
m/s
7°
6
m/s
9°
7
m/s
Á morgun
Hvessir NV- og V-til eft ir hádegi.
Gildistími korta er um hádegi
8°
6°
5°
5°
4°
Alicante
Aþena
Basel
29°
29°
25°
Berlín
Billund
Frankfurt
14°
15°
18°
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
24°
13°
13°
Las Palmas
London
Mallorca
28°
18°
29°
New York
Orlando
Ósló
22°
29°
13°
París
San Francisco
Stokkhólmur
25°
21°
11°
7°
2
m/s
7°
7
m/s
4°
3
m/s
4°
4
m/s
3°
3
m/s
3°
6
m/s
-1°
3
m/s
6°
4°
4°
4°
3°
LÖGREGLUMÁL Fimmtán erlendir karl-
menn voru handteknir í kjölfar
umfangsmikillar húsleitar lögreglu í
gær. Hald var lagt á þýfi, fíkniefni og
eggvopn sem talin eru brjóta í bága við
vopnalöggjöf.
Mennirnir eru flestir Albanar, þar
á meðal nokkrir sem skiluðu sér ekki í
flug heldur urðu eftir hér á landi eftir
landsleik Albana og Íslendinga í fótbolta
fyrir hálfum mánuði. Þeir eru allir með
stöðu hælisleitenda.
Fjöldi lögreglumanna tók þátt í
aðgerðinni eða um 30 talsins. Í hópnum
voru meðal annars sérsveitarmenn og
fulltrúar frá fíkniefnalögreglunni sem
komu með fíkniefnahunda á svæðið.
Nokkrum mannanna var sleppt úr
haldi strax í gær og þótti lögreglu lík-
legt að hinum yrði einnig sleppt fljót-
lega í kjölfarið. Einn þeirra játaði
eignarhald á fíkniefnunum og að sögn
lögreglu telst sá hluti málsins upplýstur.
Reykjanesbær leigir húsnæðið, sem er
í Auðbrekku í Kópavogi, fyrir hælisleit-
endur. Þar hafa fjórtán manns dvalið en
fjölgað hefur í hópnum síðustu daga.
-nej
Húsleit lögreglu leiddi í ljós ólögleg eggvopn, lítilræði af fíkniefnum og þýfi hjá hælisleitendum:
Albönunum sleppt úr haldi eftir húsleit
VARÐSTAÐA Lögreglumenn vakta húsnæðið í Auðbrekku þar
sem húsleitin var gerð. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
FJÁRMÁL Á fundi stjórnskip unar-
og eftirlitsnefndar Al þingis í
gærmorgun lagði Guðmundur
Bjarnason, fyrrverandi fram-
kvæmdastjóri Íbúðalánasjóðs,
fram greinargerð um skýrslu
Íbúða lánasjóðs. Þar segir að hann
sé sammála sumu sem fram kemur
en einnig gagnrýnir hann skýrsl-
una harðlega. Dregur Guð mundur
hæfi og hlutleysi starfsmanna
nefndarinnar í efa.
Í greinargerðinni segir meðal
annars að hann telji mikið af
röngum fullyrðingum og staðhæf-
ingum í rannsóknarskýrslunni.
Ómaklegar ásakanir og pólitískar
dylgjur sem lagðar eru til grund-
vallar við útleggingu á ýmsum
efnisatriðum nefndarinnar geri
skýrsluna ótrúverðuga. -hh
Fyrrverandi forstjóri ÍLS:
Efins um
hlutleysi skýrslu
VATNSVERKSMIÐJA Icelandic Glacial
er framleitt á Suðurlandi.
Vegagerðin telur sig í
fullum rétti að leggja
veginn um Selskarð þar
sem ekki er verið að
breyta vegstæðinu frá því
sem samþykkt er í
gildandi skipulagi.
Jónas Snæbjörnsson, framkvæmdastjóri
þróunarsviðs hjá Vegagerðinni