Fréttablaðið - 27.09.2013, Síða 10
27. september 2013 FÖSTUDAGUR| FRÉTTIR | 10
hdl. og löggiltur fasteignasali
Verð: 35,9 millj.
Nánari upplýsingar veitir
Jórunn Skúladóttir, Sölufulltrúi
jorunn@miklaborg.is sími: 845 8958
Glæsileg hæð við
Snekkjuvog
• Hæð með bílskúr
• Þríbýli, í enda botnlanga
• Mikið endurnýjað
104 Reykjavík
OPIÐ HÚS
Föstudag 27. sept. 15:30 - 16:00
TAXFREE
TILBOÐSVERÐ
69.900
FULLTVERÐ KR.
89.900
TAXFREE
TILBOÐSVERÐ
69.900
FULLTVERÐ KR.
89.900
TAXFREE
TILBOÐSVERÐ
95.538
FULLTVERÐ KR.
119.900
BRETLAND, AP Alþjóðalögreglan Int-
erpol hefur lýst eftir „hvítu ekkj-
unni“, Samönthu Lewthwaite, sem
grunuð er um aðild að gíslatökunni
í verslunarmiðstöð í Naíróbí um síð-
ustu helgi. Lewthwaite er talin hafa
komist undan áður en her og lög-
regla í Kenía réðst til atlögu gegn
gíslatökumönnunum fyrr í vikunni.
Hún er 29 ára, fædd á Norður-
Írlandi og ekkja eins sjálfsvígs-
árásarmannanna sem gerðu
sprengjuárásir í samgöngukerfi
Lundúnaborgar 7. júlí árið 2005.
Þær árásir kostuðu 52 lífið og
særðu hundruð manna.
Interpol lýsir eftir henni að ósk
stjórnvalda í Kenía. Í tilkynningu
Interpol er þó ekkert minnst á árás-
ina á verslunarmiðstöðina í Naí-
róbí heldur er hennar leitað vegna
ákæru um að hafa haft sprengiefni
í fórum sínum, auk þess sem hún er
sökuð um aðild að áformum um að
gera sprengjuárás á ferðamanna-
stað í Kenía árið 2011. Hún er talin
hafa flúið til Sómalíu stuttu eftir að
upp komst um þau áform. - gb
Alþjóðalögreglan lýsir eftir „hvítu ekkjunni“ að beiðni Keníastjórnar:
Grunuð um aðild að gíslatöku
SAMANTHA LEWTHWAITE Norðurírsk
ekkja sjálfsvígsárásarmanns. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
FRAKKLAND Fjallgöngumaður fann
skrín fullt af skartgripum við
rætur fjallsins Mont Blanc ný-
verið. Dýrgripirnir eru metnir á
um 40 milljónir króna. Talið er
fullvíst að skrínið hafi verið í ind-
verskri flugvél sem fórst á þessum
slóðum fyrir 47 árum.
Fjallgöngumaðurinn, sem er
franskur en vill ekki láta nafns
síns getið, hefði getað hirt góssið
en ákvað að afhenda það lög-
reglunni í Bourg-Saint-Maurice.
- gb
Heppinn fjallgöngumaður:
Fann fjársjóð
frá Indlandi
EVRÓPUMÁL Alþýðusamband
Íslands, Samtök atvinnulífsins
og Viðskiptaráð Íslands „telja öll
æskilegt að aðildarviðræðum við
ESB verði lokið og að besti fáan-
legur samningur um aðild verði
borinn upp í þjóðaratkvæða-
greiðslu,“ eins og segir í bréfi for-
svarsmanna samtakanna til for-
sætisráðherra. Samtökin vilja
samstarf við ríkisstjórnina um
úttekt á stöðu aðildarviðræðn-
anna, eins og Fréttablaðið greindi
frá í gær.
Í bréfinu, sem Bjarni Benedikts-
son fjármálaráðherra og Gunnar
Bragi Sveinsson utanríkisráðherra
fengu afrit af, segir að samtökin
þrenn hyggist standa fyrir úttekt á
aðildarviðræðum við Evrópusam-
bandið, þróun ESB og valkostum
í efnahagsmálum. Samtökin telja
meðal annars mikilvægt að meta
hvaða áhrif hléið sem ríkis stjórnin
hefur gert á viðræðunum hafi á
framvindu þeirra. Í fylgiskjali
með bréfinu segir að skoða þurfi
með hvaða hætti viðræður yrðu
teknar upp að nýju ef vilji stæði
til þess og svara spurningum eins
og þeirri hvort aðildarviðræðum
yrði haldið áfram þar sem frá var
horfið eða hvort taka þyrfti upp að
nýju mál sem þegar hefur verið
lokið.
„Liður í úttektinni verði einnig
að kanna kosti og galla þeirra leiða
sem koma til greina til að tryggja
hér á landi til langframa stöðug-
leika í gengis- og peningamálum,
verðlagi og festu í stjórn efna-
hagsmála og um leið hvernig unnt
sé að skapa umgjörð fyrir öflugt
atvinnulíf og búa heimilunum lífs-
kjör í fremstu röð,“ segir í fylgi-
skjalinu.
Samtökin telja að úttektin á
stöðu viðræðnanna og þróun
mála í ESB, sem stjórnarsátt-
málinn kveður á um, og úttekt
þeirra geti farið vel saman og
bjóða ríkisstjórninni samstarf.
„Telji stjórnvöld ekki ávinning af
slíku samstarfi munu samtökin
engu að síður standa fyrir úttekt
á þessum málum,“ segir í bréfinu
sem Gylfi Arnbjörnsson, forseti
ASÍ, Þorsteinn Víglundsson, fram-
kvæmdastjóri SA, og Hreggviður
Jónsson, formaður Viðskiptaráðs,
undirrita.
karen@frettabladid.is
Vilja klára aðildar-
viðræður og kjósa
Vinnumarkaðssamtök gera eigin úttekt á stöðu viðræðna við ESB ef ríkisstjórnin
vill ekki samstarf. Tala ekki fyrir hönd allra félagsmanna, segir forsætisráðherra.
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra segir að ríkisstjórnin
hafi ekki haft tækifæri til að ræða bréf vinnumarkaðssamtakanna. „Þetta
er væntanlega liður í því að kynna ákveðin sjónarmið sem forystumenn
þessara samtaka hafa staðið fyrir alllengi þótt það sé ekki
endilega í samræmi við afstöðu allra félagsmanna þeirra.
En það kemur reyndar fram í bréfinu hvaða niðurstöðu þeir
vilja fá og þá er spurning hvort þeir hafi einhverja þörf fyrir
aðkomu ríkisstjórnarinnar,“ segir Sigmundur.
Hann segir að ætlunin sé að gera faglega úttekt á vegum
ríkisstjórnarinnar, sem varpi ljósi á staðreyndir málsins. Þá
liggi afstaða stjórnarinnar í ESB-málum fyrir. „Það liggur
fyrir að hún er ólík afstöðu þessara þriggja manna eða
hversu stór sem þessi hópur er. Það er hins vegar ekkert að
því að skoða öll erindin sem berast frá þeim og við gerum
það af opnum hug. En áhersla okkar verður á þessa hlutlausu og faglegu
úttekt til þess að umræðan geti byggst á staðreyndum en ekki skjali sem er
ætlað að ná fram ákveðinni fyrir fram mótaðri afstöðu.“
Afstaða þriggja manna
SIGMUNDUR D.
GUNNLAUGSSON
SEÐLABANKI
EVRÓPU „Sér-
stakri athygli
verði beint að
gjaldmiðils-
samstarfinu og
þróun þess í
ljósi efnahags-
örðugleika
undanfarinna
ára,“ segja
vinnumarkaðs-
samtök um
úttektina sem
þau vilja gera.
SAMEINUÐU ÞJÓÐIRNAR Við ræður
Írana við sex ríki, þar á meðal
Bandaríkin, skiluðu í gær þeim
árangri að samningafundir um
kjarnorkuáætlun Írans hefjast um
miðjan október.
„Þetta er hluti af því að við erum
að kanna hve mikil alvara býr að
baki því sem Íranar segja, en þeir
eru greinilega að fara nýjar leiðir
og sýna nýjan áhuga á að reyna að
leysa þetta alvarlega mál,“ hafði AP
fréttastofan eftir Jay Carney, tals-
manni Hvíta hússins, um viðræðu-
fundinn í gær.
Bandaríkin og fleiri Vesturlönd hafa ekki lagt trúnað á yfirlýs ingar
Írana um að þeir ætli sér ekki að koma sér upp kjarnorkuvopnum, heldur
einungis nota kjarnorku í friðsamlegum tilgangi. - gb
Utanríkisráðherrar Írans og Bandaríkjanna ræðast við:
Kanna hvort alvara býr að baki
HASSAN RÚHANÍ ÍRANSFORSETI Á
gangi í höfuðstöðvum Sameinuðu þjóð-
anna í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
MEXÍKÓ, AP Lögreglan í Mexíkó
fann í gær þrjú afskorin höfuð í
litlu þorpi, þar sem sjálfskipaðir
verðir hafa átt í hörðum átökum
við fíkniefnasmyglara.
Skotsár voru á öllum höfðunum
þremur og miði fannst hjá þeim
með skilaboðum, en lögregla
hefur ekki viljað skýra frá inn-
taki þeirra.
Víða í landinu hafa hópar tekið
sig saman um að verja þorp sín
gegn fíkniefnaklíkum, sem ráða
þar lögum og lofum. - gb
Fíkniefnastríð í Mexíkó:
Lögregla fann
þrjú höfuð