Fréttablaðið - 27.09.2013, Page 16
27. september 2013 FÖSTUDAGUR| SKOÐUN | 16
Næstkomandi sunnudag, 29.
september 2013, fer fram svo-
kallað Globeathon sem er alþjóð-
legt átak meira en 80 landa sem
hafa sameinast um að efla vitund,
þekkingu og rannsóknir tengdar
krabbameinum í kvenlíffærum.
Um er að ræða göngu/hlaup sem
fer fram um alla jörðina á sama
degi. Íslendingar taka þátt í þessu
átaki og hefst gangan/hlaupið kl.
13.00 fyrir utan Kvennadeild
Landspítalans.
Af þessu tilefni viljum við
vekja athygli á krabbameinum
í kvenlíffærum á Íslandi. Hér
greinast um sextíu konur ár hvert
og árið 2011 voru tæplega 1.000
konur á lífi með krabbamein í
kvenlíffærum.
Leghálskrabbamein eru í dag
um 2,4% allra krabbameina hjá
konum á Íslandi og er meðalaldur
við greiningu 45 ár. Vegna skipu-
lagðrar leghálskrabbameins-
leitar hefur nýgengi sjúkdómsins
lækkað á Vesturlöndum. Leg-
hálskrabbameinsleit hefst við 20
ára aldur og er konan svo boðuð
í hópleit með reglulegu milli-
bili. Tekið er frumustrok frá leg-
hálsi og gefur það möguleika á að
greina forstigsbreytingar, áður en
krabbamein hefur náð að þróast.
Leghálskrabbamein orsakast af
vissum tegundum HPV-veiru sem
smitast við kynmök. Þróað hefur
verið bóluefni gegn HPV-veirum
16 og 18 en þessar veirur valda
um 70% allra leghálskrabba-
meina. Stúlkur eru bólusettar
hérlendis við 12 ára aldur.
Reglubundin skoðun
Leghálskrabbamein eru oftast
einkennalaus en algengustu ein-
kennin eru blæðingar og verkir
við samfarir. Á Vesturlöndum
greinast flest meinin við legháls-
krabbameinsleit og eru þá á byrj-
unarstigi og batahorfur góðar.
Konur sem greinast með langt
genginn sjúkdóm hafa yfirleitt
ekki mætt reglulega í krabba-
meinsleit. Ólíkt öðrum teg undum
krabbameina má koma í veg fyrir
flest leghálskrabbamein, með
reglubundinni skoðun og þátttöku
í hópleitinni.
Krabbamein í leggöngum og
ytri kynfærum kvenna eru mjög
sjaldgæf og eru innan við 1%
greindra krabbameina hjá konum
á Íslandi. Þessi krabbamein eru
hægt vaxandi og einkenni byrja
oft sem kláði á kynfærunum, roði,
litabreytingar eða sár. Horfur eru
yfirleitt góðar ef krabbameinið er
staðbundið.
Krabbamein í legbol eru tæp
4% allra krabbameina sem grein-
ast hjá íslenskum konum. Krabba-
mein í legbol eiga oftast upptök
sín í slímhúðinni innan í leginu.
Aukið magn estrógens veldur
ofvexti á slímhúðinni í leginu,
sem getur leitt til krabbameins.
Helstu áhættuþættir eru offita,
inntaka estrógen-hormóna án
mótframlags prógesteróns, ungur
aldur við fyrstu blæðingar og
seinkomin tíðahvörf.
Helstu einkenni legbolskrabba-
meins eru yfirleitt óeðlilegar
blæðingar og blæðingar eftir
tíðahvörf. Horfur sjúklinga sem
greinast með legbolskrabbamein
eru yfirleitt góðar því að það
greinist oftast á frumstigum þar
sem krabbameinið hefur ekki náð
að dreifa sér út fyrir legið.
Eggjastokkakrabbamein eru
um 2,3% allra illkynja æxla hjá
konum hérlendis. Þessi mein eru
algengust hjá konum eftir fimm-
tugt. Orsakir eggjastokkakrabba-
meins eru í flestum tilvikum
óþekktar, en þekktir eru þættir
sem auka eða minnka líkur á að
fá sjúkdóminn. Í fáum tilfellum er
sjúkdómurinn arfgengur.
Einkenni eggjastokkakrabba-
meins eru lítil í upphafi og flestar
konur greinast ekki fyrr en æxlið
hefur náð að dreifa sér. Horfur
eru mismunandi eftir því hve
útbreiddur sjúkdómurinn er.
Ábyrgð á eigin heilsu
Um þriðjungur Íslendinga fær
krabbamein á lífsleiðinni. Krabba-
mein í kvenlíffærum eru tæp 10%
af öllum krabbameinum kvenna
hér á landi. Það er mikilvægt að
taka ábyrgð á eigin heilsu, vera
vakandi fyrir einkennum og
mæta reglulega í krabbameinsleit.
Með Globeathon-göngunni viljum
við hvetja til aukinnar vitundar,
styðja konurnar okkar sem eru að
berjast við sjúkdóminn, konurnar
sem hafa læknast og standa uppi
sem sigurvegarar, fjölskyld urnar
sem standa við bakið á þeim og
fólkið sem tekur þátt í baráttunni
með rannsóknum, hjúkrun og
lækningu. Við óskum eftir þínum
stuðningi og hvatningu. Skráning
er á hlaup.is. Við göngum til að
ráða niðurlögum krabbameins í
kvenlíffærum!
Upplýsingar um krabbamein á
Íslandi eru fengnar úr krabba-
meinsskrá, www.krabbameins-
skra.is.
Vitundarvakning um
krabbamein í kvenlíff ærum
Í síðustu viku fór fram
umræða á Alþingi sem
vakti athygli mína. Þar
var rætt um launamun
kynjanna og nytsemi
hinna ýmsu aðferða til
að afnema hann. Tilefnið
var birting launakannana
stéttarfélaganna undan-
farnar vikur sem enn og
aftur sýna kynbundinn
launamun, ekki síst hjá
ríkinu. Í umræðunni var
m.a. rætt um aðferðir á
borð við jafnlaunastaðal
og jafnlaunapotta.
Jafnlaunastaðallinn er nýr
og því enn í mótun. Hann getur
væntanlega virkað vel á hinum
almenna markaði. Hins vegar
er vandséð að hann muni virka á
einstökum stofnunum ríkisins þar
sem meirihluti starfsmanna er
konur. Ef það ætti að vera mögu-
legt verður að skoða ríkið sem
einn vinnustað.
Fjármálaráðherra efaðist um
það í málflutningi sínum að jafn-
launapottar skiluðu í reynd launa-
jafnrétti. Hann sagði reynsluna
vera þá að ef einn hópur væri
hækkaður umfram aðra, þá eltu
hinir. Það er óskiljanlegt hvernig
fjármálaráðherra ætlar að jafna
laun kynjanna án þess að hækka
laun kvenna. Náms- og atvinnu-
val er oft nefnt sem ein ástæða
launamunar, en þurfum við ekki
að spyrja okkur að því hvers
vegna laun í þeim störfum sem
konur velja eru lægri? Þar liggur
stærsti vandinn að okkar mati.
SFR-félagar eru fjölbreyttur
hópur, þar eru konur 70% félags-
manna og margar vinna
fyrir lægstu launin.
Samkvæmt upplýs-
ingum úr nýjustu launa-
könnun SFR eru lægst
launuðu hóparnir að
hækka minnst á milli
ára. Bilið er því að aukast
og konurnar sitja eftir.
Við hjá SFR stéttarfélagi
höfum góða reynslu af
jafnlaunapottum sem við
viljum gjarnan deila með
ráðherranum. Við minnum
á að niðurstöður launa-
könnunar SFR nú í ár sýna
mestan árangur í baráttunni gegn
launamun kynjanna. Við þökkum
það m.a. launapottum.
Tími til að opna augun
Í kjarasamningum 2011 var samið
um sértækar hækkanir til tiltek-
inna faghópa á heilbrigðisstofn-
unum. Þetta eru störf lækna- og
heilbrigðisritara ásamt lyfja- og
matartækna, allt störf sem konur
hafa svo til eingöngu unnið.
Samið var um launapott og hann
notaður til þriggja launaflokka
hækkunar til þessara starfs-
stétta í stofnanasamningi, sem
kom til framkvæmda í október
2011. Hækkunin skilaði þessum
hópi mælanlega betri kjörum.
Það sýna launakannanir og gögn
frá ríkinu. Það er því auðvelt að
sýna fram á að launapottar í formi
sértækra hækkana lyfta kvenna-
stéttum og jafna laun þeirra til
samanburðar við aðrar starfs-
stéttir. Aðrir hópar hafa ekki elt
og til samanburðar má geta þess
að önnur kvennastétt, fulltrúar
og skrifstofufólk á LSH sem ekki
fékk sértækar launahækkanir,
sat eftir og náði ekki meðaltals-
hækkun.
Launakannanir SFR sýna okkur
að mikil þörf er á sértækum
aðgerðum af þessu tagi þar sem
bæði grunn- og heildarlaun hinna
svokölluðu kvennastétta (konur
75% starfsmanna eða meira) eru
í nánast öllum tilfellum undir
meðal tali launa SFR-félags-
manna. Við erum sannarlega sam-
mála fjármálaráðherra um það að
kynbundinn launamunur sé óþol-
andi en biðin eftir raunhæfum að-
gerðum til að afnema hann er þó
enn meira óþolandi.
Í næstu kjarasamningum mun
SFR því leggja mikla áherslu á
sérstakar ráðstafanir til að leið-
rétta launamun, m.a. í formi jafn-
launapotta, því við höfum séð að
þeir virka. Ef fjármálaráðherra
vill rýna betur í gögnin er hann
velkominn til SFR hvenær sem er.
Það er nefnilega ekki lengur nóg
fyrir stjórnmálamenn að vísa til
þess að það þurfi að gera kann-
anir og safna gögnum. Gögnin
eru til staðar og tími til kominn
að opna augun.
Biðin er óþolandi!
KJARAMÁL
Árni Stefán
Jónsson
formaður SFR
stéttarfélags í
almannaþjónustu
➜ Náms- og atvinnuval er
oft nefnt sem ein ástæða
launamunar, en þurfum
við ekki að spyrja okkur að
því hvers vegna laun í þeim
störfum sem konur velja eru
lægri?
HEILBRIGÐISMÁL
Katrín Kristjánsdóttir
Ásgeir Thoroddsen
Karl Ólafsson
Anna Þ. Salvarsdóttir
Höfundar eru fæðinga- og
kvensjúkdómalæknar með sérhæfi ngu
í krabbameinslækningum kvenna
➜ Það er mikilvægt að taka
ábyrgð á eigin heilsu, vera
vakandi fyrir einkennum
og mæta reglulega í krabba-
meinsleit.
Mjódd l Salavegur l Hverafold l Grandi l Akureyri l Höfn
Grindavík l Reykjanesbær l Borgarnes l Egilsstaðir l Selfoss
Nicotinell fæst núna í öllum verslunum Nettó
1.199kr/pk - Fruit 799 kr/pk
Nýtt í Nettó!
NÝTT