Fréttablaðið - 27.09.2013, Síða 18
27. september 2013 FÖSTUDAGUR| TÍMAMÓT | 18TÍMAMÓT
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð,
vináttu og hlýhug vegna andláts
ástkærs sonar okkar og unnusta,
DAVÍÐS KLEMENZSONAR
viðskiptafræðings,
Bergstaðastræti 55, Reykjavík.
Sérstakar þakkir til hinna einstöku vina hans
fyrir ómetanlega aðstoð.
Klemenz Eggertsson
Ingibjörg Jónasdóttir
Amber Engebertsson
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir,
afi, langafi og langalangafi,
SÆMUNDUR EYLAND
SIGURBJÖRNSSON
frá Stykkishólmi,
áður til heimilis að Fjarðarási 9,
Reykjavík,
lést á dvalar- og hjúkrunarheimilinu Mörk
mánudaginn 23. september. Útförin fer fram frá Árbæjarkirkju
fimmtudaginn 3. október klukkan 13.00. Jarðsett verður
í Þorlákshafnarkirkjugarði.
Lárus Sigurbjörn Sæmundsson
Birgir Rúnar Sæmundsson Cynthia V. Cruz
Grétar Már Sæmundsson
Brynjar Eyland Sæmundsson Hulda B. Magnúsdóttir
Hildur Þuríður Sæmundsdóttir Þórður Sigurvinsson
Ómar Örn Sæmundsson Ruby Gabríela Sæmundsson
Erling Viðar Sæmundsson Anna Fía Ólafsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Hjartans þakkir færum
við öllum þeim er sýndu okkur
samúð, hlýju og vinarþel við andlát
og útför móður okkar og tengdamóður,
SIGRÍÐAR MAGNÚSDÓTTUR
Hraunbæ 103,
áður Oddsparti, Þykkvabæ.
Eygló Yngvadóttir Hörður Júlíusson
Sveinn Yngvason
Magnús Yngvason Katrín Eiríksdóttir
Katrín Yngvadóttir Markús Þór Atlason
Ástkær eiginkona mín, móðir,
tengdamóðir og amma,
GUÐRÚN JÓNSDÓTTIR
forstöðukona,
Arahólum 2, Reykjavík,
sem lést á Landspítalanum mánudaginn
23. september verður jarðsungin frá Fella-
og Hólakirkju mánudaginn 30. september
kl. 13.00. Þeim sem vilja heiðra minningu hennar er bent á
Thorvaldsensfélagið.
Halldór Hlífar Árnason
Árni Halldórsson Katrín Ásta Gunnarsdóttir
og prúðmennin þrjú.
Ástkær eiginmaður minn,
faðir okkar, tengdafaðir og afi,
ÁRNI JÓHANN FINNBOGASON
Krókavaði 4, Reykjavík,
lést á Landspítalanum miðvikudaginn
18. september. Útförin hefur farið fram
í kyrrþey. Þökkum auðsýnda samúð og
hlýhug. Sérstakar þakkir til Höllu Skúladóttur, starfsfólks
krabbameinssviðs Landspítalans og Karitas.
Margrét Bjarnadóttir
Finnbogi M. Árnason
Sigurbjörn Á. Árnason Margrét Ósk Viðarsdóttir
Þröstur Árnason Hulda Lilja Guðmundsdóttir
Ína Björg Árnadóttir Satpal Hans
og barnabörn.
Elskulegur bróðir okkar,
BRYNJAR BALDVINSSON
frá Sælandi á Árskógssandi,
sem lést á Dalbæ Dalvík fimmtudaginn
19. september, verður jarðsunginn
frá Árskógskirkju laugardaginn 28. september kl. 14.00.
Systkini hins látna
Elsku bróðir, mágur, vinur og frændi,
KÁRI BRAGI JÓNSSON
prentari,
lést laugardaginn 14. september á
Hjúkrunarheimilinu Skjóli. Útförin hefur farið
fram í kyrrþey að ósk hins látna. Þeim sem
vildu minnast hans er bent á Hjartavernd.
Fyrir hönd aðstandenda,
Brynhildur Jónsdóttir
Yndisleg móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
ERLA SIGURÐARDÓTTIR
ljósmóðir,
Sóltúni 7, Reykjavík,
sem lést á Landspítalanum fimmtudaginn
19. september, verður jarðsungin
frá Háteigskirkju þriðjudaginn 1. október kl. 15.00.
Inga Dóra Sigfúsdóttir Símon Sigvaldason
Jón Sigfússon Unnur Jónsdóttir
Hildur, Hulda, Erla María, Erla, Sonja, Alanta og
Sigrún María
„Góðgresi er samstarf mitt og vinar
míns Bjarka Þórs Sólmundssonar og
við köllum þetta listrænt matvinnslu-
verkefni,“ segir Viktor Pétur Hann-
esson myndlistarmaður beðinn að
útskýra hvað felist í nafninu Góðgresi.
„Við erum að nýta jurtir í íslenskri
náttúru sem kannski hafa ekki verið
mikið notaðar til matargerðar áður.
Allt frá njóla og hvönn yfir í birki,
kerfil og bláklukku, svo eitthvað sé
nefnt. Hugsunin er að fólk líti í kring-
um sig og nýti það sem vex í nágrenn-
inu til matargerðar.“
Þeir Viktor og Bjarki eru báðir
myndlistarmenntaðir og kynntust ein-
mitt í náminu við LHÍ. „Bjarki var
reyndar búinn að læra kokkinn áður
en hann fór í Listaháskólann og hefur
mikið verið að vinna við matargerð
í sinni myndlist. Við höfum verið að
þróa þessa hugmynd og ákváðum að
tengja þetta verkefni hinu stöðuga
samtali á milli listarinnar og lífsins.“
Lystarinnar með ypsiloni kannski? „Já,
jafnvel. Slagorðið gæti þá verið „listin
fyrir lystina“,“ segir Viktor og skellir
upp úr.
Þeir félagar höfðu bækistöð á
Stöðvar firði í sumar þar sem þeir
söfnuðu jurtum og þróuðu upp skriftir.
Hvers vegna varð Stöðvarfjörður fyrir
valinu? „Ég er alinn upp fyrir austan
og við kærastan mín eigum hús þar,“
útskýrir Viktor. „Þar er líka mikil
menningarleg uppbygging núna. Það
er verið að breyta frystihúsinu í sköp-
unarmiðstöð og við höfum tekið þátt í
því. Það þróaðist síðan þannig að við
skipulögðum hátíðina Pólar í sumar og
hún leiddist út í nokkurs konar matar-
hátíð hjá okkur. Við fengum gefins fullt
af mat og tíndum jurtir uppi í brekk-
unni, grilluðum góðgætið í holu og
buðum upp á svaka matarveislu fyrir
200 manns.“
Viktor og Bjarki héldu líka reglu-
lega markað með vörum frá Góð-
gresi á Stöðvarfirði. „Þar buðum við
upp á vörurnar sem við erum að þróa
gegn frjálsum framlögum, svona til
að kynna framleiðslu okkar og koma
þessu öllu í gang. Við vildum sjá við-
brögðin áður en við færum að setja
vörurnar í reglulega framleiðslu.“
Gestum í kaffisamsætinu á morgun
býðst að bragða á ýmsum vörum Góð-
gresis, eins og sírópi með íslenskum
jurtum, krækiberjasaft og kræki-
berjahlaupi sem unnið er úr hratinu af
berjunum „eins og amma gerði“. Líki
gestum það sem þeir smakka er hægt
að festa kaup á vörunum gegn vægu
gjaldi, að sögn Viktors. Samsætið hefst
klukkan 16 og stendur eitthvað fram
eftir. fridrikab@frettabladid.is
Eins og amma gerði
Góðgresi efnir til haustfagnaðar á Loft hosteli á morgun. Þar verður boðið upp á afurðir
unnar úr íslenskum jurtum. Viktor Pétur Hannesson er annar þeirra sem standa á bak við
Góðgresi. Hann segir slagorðið „listin fyrir lystina“ lýsa starfseminni vel.
GÓÐGRESI Viktor og Bjarki vilja viðhalda samtalinu milli lífsins og listarinnar, meðal annars með því að nýta það sem vex í nágrenninu til
matargerðar. Þeir bjóða til haustfagnaðar á morgun þar sem gestir fá að bragða á uppskerunni. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
„Ég tel ekki kominn hálfleik því ég
stefni að 120 ára aldri,“ segir Friðrik
Kingó Andersen tæknimaður hress
þegar hann er minntur á hálfrar aldar
afmælið sem er í dag. Margir kannast
við kappann því hann er víða búinn að
vinna sem hljóðmaður og tölvufræð-
ingur, síðustu sex ár hefur hann verið
tæknimaður í myndavéladeild Öryggis-
miðstöðvarinnar.
Friðrik Kingó er fæddur í Danaveldi
enda er hann hálfur Dani. „Ég var
skírður Friðrik í höfuðið á kónginum,“
segir hann en kveðst þó aðallega gegna
millinafninu Kingó.
Kingó hefur komið nálægt fram-
leiðslu og leik í nokkrum íslenskum
kvikmyndum, svo sem Bjólfskviðu,
Ikingut, 101 Reykjavík og Í faðmi hafs-
ins, einnig í fáeinum tónlistarmynd-
böndum. Nokkrir geisladiskar geyma
líka röddina hans. - gun
Telur ekki kominn hálfl eik
Friðrik Kingó er fi mmtugur í dag og fagnar því með fj ölskyldunni um helgina.
FRIÐRIK
KINGÓ Var
skírður Frið-
rik í höfuðið
á Danakóngi.