Fréttablaðið - 27.09.2013, Page 28
Sýndarpersónur og skurðlækningar, krabbar
og kínverska, frumuræktun og furðudýr
sjávar, jarðhiti og jöklar, snjór, sprengjur og
eldgos eru meðal þess sem hægt er að kynna
sér á Vísindavöku Rannís í Háskólabíói föstu-
daginn 27. september kl. 17-22.
Vísinda- og fræðimenn á Íslandi eru upp-
fullir af hugmyndum og eldmóði því aldrei
hafa fleiri skráð sig til þátttöku á Vísinda-
vöku, sem nú er haldin í áttunda sinn og
dregur til sín um fimm þúsund gesti árlega.
Dagurinn er tileinkaður evrópskum vísinda-
mönnum og haldinn hátíðlegur þennan dag í
meira en 300 bæjum og borgum um alla Evr-
ópu undir heitinu Researchers‘ Night. Mark-
miðið með Vísindavöku er að gefa almenningi
kost á að hitta vísindafólk sem stundar rann-
sóknir og nýsköpun, kynna fólkið á bak við
rannsóknirnar og vekja athygli á fjölbreytni
og mikilvægi vísindastarfs í landinu.
Á Vísindavöku mun fræðifólk frá há-
skólum, stofnunum og fyrirtækjum kynna
viðfangsefni sín fyrir almenningi á lifandi
og skemmtilegan hátt. Gestir fá að skoða
og prófa margs konar tæki og tól sem notuð
eru við rannsóknir, skoða ýmsar afurðir og
spjalla við vísindafólkið sjálft um hvernig
er að starfa að vísindum, rannsóknum og
nýsköpun. Í ár verður lögð áhersla á rann-
sóknir á norðurslóðum, boðið verður upp
á lifandi vísindi og uppákomur á sviðinu í
stóra salnum, auk þess sem sýndir verða
vísindaþættir í sal 1. Sprengjugengið vin-
sæla mætir á sviðið, norðurljós skína og loft-
steinar fljúga. Gestir geta reynt að reka Vís-
indavefinn á gat og fræðst um kappaksturs-
bíla og tölvuhakk. Vísindakaffi hefur verið
í gangi alla vikuna og aðsókn verið einstak-
lega góð. Verið velkomin á Vísindavöku
Rannís!
Allir velkomnir á
Vísindavöku Rannís
Aðalheiður Jónsdóttir, kynningarstjóri Rannís, segir vísinda- og fræðimenn á Íslandi uppfulla af hug-
myndum og eldmóði. Aldrei hafa fleiri skráð sig til þátttöku á Vísindavöku. MYND/VILHELM
■ GAKKTU Á GERVIFÓTUM
OG TAKTU MYND AF ÞÉR
MEÐ HEIMSMEISTARA
Össur verður með á Vísindavöku eins og
undanfarin ár og að þessu sinni verður gestum
boðið upp á að prófa vörur og spyrja stoðtækja-
fræðinga spurninga. Einnig verður Össur með
skemmtilegan Instagram-leik á básnum sínum
og hvetur fólk til að koma og taka þátt. Hlutverk
Össurar er að gera fólki kleift að hanna og fram-
leiða stoðtæki, spelkur og aðrar stuðningsvörur
sem gera fólki kleift að njóta sín til fulls. Það
er ekki á hverjum degi sem fólki gefst kostur
á að prófa að ganga á gervifótum, koma við
vörurnar og spyrja sérfræðingana spurninga
um hönnun og þróun hjá fyrirtækinu. Helgi
Sveinsson, nýkrýndur heimsmeistari í spjótkasti
fatlaðra verður á svæðinu og segir fólki frá því
frábæra afreki að vinna heimsmeistaratitil.
■ RAUNTÍMATÓNSKÖPUN
Í SÍBREYTILEGUM
HLJÓÐHEIMI
Listaháskóli Íslands kynnir CALMUS AUTOM-
ATA á Vísindavöku, byltingarkennda nýjung
í hugbúnaði sem semur og spilar fjölbreytta
tónlist í rauntíma. Hugbúnaðurinn byggir á
gervigreind sem gerir notandanum kleift að
starfa sjálfstætt út frá ákveðnum forsendum
en búnaðurinn getur breytt um stíl og
stefnur í ferlinu út frá utanaðkomandi skip-
unum eða breyttum aðstæðum hverju sinni.
Með hugbúnaðinum opnast nýir möguleikar
fyrir tónskáld til rauntímatónsköpunar en
kerfið hentar einnig fyrir tölvuleiki, gagn-
virk leik- og dansverk og tónsköpun fyrir
kvikmyndir. Verkefnið hlaut rannsóknarstyrk
2011 frá Nýsköpunarsjóði atvinnulífsins og
verkefnastyrk frá Tækniþróunarsjóði 2012.
■ JARÐARBERJUM FÓRNAÐ Í ÞÁGU VÍSINDANNA
Þau Albína Hulda Pálsdóttir dýrabeinafornleifafræðingur og Hrannar Smári Hilmarsson
meistaranemi verða fulltrúar Landbúnaðarháskóla Íslands á Vísindavöku. Albína mun kynna
rannsóknir auðlindadeildar á uppruna íslensku húsdýrastofnanna með fornDNA og dýrabeina-
fornleifafræði sem nú er unnið að. Hægt verður að skoða hauskúpur úr nautgripum, kindum
og hestum og börnin geta spreytt sig á fornleifauppgreftri. Hrannar ætlar að einangra erfða-
efni, eða DNA, úr jarðarberjum. Til verksins verða notuð einföld hráefni sem finna má á hverju
heimili. Aðferðin er hættulaus en nokkur saklaus jarðarber munu fórna sér í þágu vísindanna.
DNA-sameindina er að finna í öllum frumum og er hún hættulaus. Aðferðin sem er beitt í þessu
tilfelli gerir erfðaefnið, DNA-sameindina, sýnilegt og áþreifanlegt. Einangrun erfðaefnis er mikil-
vægt ferli og fyrsta skrefið í öllum sameinda-erfðarannsóknum.
■ VANDINN LEYSTUR MEÐ KVIKUM KERFISLÍKÖNUM
Það er hægt að greina ansi margt með kvikum kerfislíkönum. Bankahrunið var t.d. greint út
frá kviku kerfislíkani og hægt er að greina meðferðir við lyndis- og kvíðasjúkdómum með
þeim. Ráðgjafar Obama styðjast oft við slík líkön, en hvernig virka þau og hvaða vanda leysa
þau? Lítið við hjá verkfræðinemum í HÍ og komist að því!
■ MYSUKLAKINN ÍSLANDUS
Matís kynnir Mysuklakann Íslandus á
Vísindavöku. Klakinn mun verða framlag
Íslands í Evrópukeppninni EcoTrophelia 2012
í París í október, en þar munu vistvænar
hugmyndir frá ýmsum Evrópulöndum keppa
sín á milli. Meginmarkmið keppninnar er að
stuðla að nýsköpun og þróun nýrra og um-
hverfisvænna matvara meðal þverfaglegra
teyma á háskólastigi, auk þess að laða nem-
endur að matvælasviðinu, samhliða því að
þróa umhverfisvitund og frumkvöðlahugsun
til framtíðar.
■ TÖLVUSJÓN Í MATVÆLAVINNSLU
Marel verður með kynningu á tölvusjón, en
hjá fyrirtækinu er tölvusjón notuð í búnaði
til matvælavinnslu, við greiningu og flokkun
hráefnis eftir lögun, stærð og litaáferð.
Tilgangurinn getur t.d. verið að stýra skurði
eða gera róbótum, eða þjörkum, kleift að
grípa um stykki við röðun í pakkningar.
Sagt verður frá sögu þróunar tölvusjónar
hjá Marel á Íslandi, sem nær yfir tvo áratugi,
og sýnd dæmi um notkun hennar í há-
tæknivæddri matvælavinnslu víðs vegar um
heim.
Á Vísindavöku kynnir fræðafólk frá háskólum, stofnunum og fyrirtækjum viðfangsefni sín fyrir almenningi.
27. SEPTEMBER 2013 2 ● Vísindavaka Rannís FÖSTUDAGUR