Fréttablaðið - 27.09.2013, Síða 32
KYNNING − AUGLÝSINGBarnaafmæli FÖSTUDAGUR 27. SEPTEMBER 20134
Það heyrist gjarnan þegar stendur til að halda afmælis-partí í Laser Tag að það sé
ávísun á ónýtan skóladag sökum
spennings og tilhlökkunar hjá
krökkunum,“ segir Einar Birgis-
son, eigandi Laser Tag, sem býður
tvo mismunandi afmælispakka
með leikjum, pitsum og gosi.
„Laser Tag er skemmtilegur af-
þreyingarleikur þar sem þátttak-
endur klæðast Laser Tag-vestum
og fela sig, elta og hitta andstæð-
inginn með laserbyssum,“ út skýrir
Einar um leikinn sem ungir og
aldnir geta skemmt sér í.
„Laser Tag-salurinn er einn sá
stærsti sinnar tegundar í Evrópu
og hannaður af Darklight Develop-
ments Ltd. í Englandi. Í honum er
allt sem fullkomnar stemninguna;
leikmyndareykur, blikkandi ljós og
fullkominn búnaður frá Darklight.
Byssurnar eru með öllu skað lausar
og með inn rauðum geislum sem
gera Laser Tag að fullkominni og
marblettalausri skemmtun,“ segir
Einar og brosir.
Hann segir Laser Tag fela í sér
fjör, spennu og hasar en börn
þurfa að hafa náð átta ára aldri til
að geta tekið þátt í leiknum.
„Laser Tag er einkar vinsælt
meðal barna á aldrinum 9 til 13 ára
og ríði einhver í bekknum á vaðið
með afmæli í Laser Tag er víst að
fleiri í bekknum halda upp á af-
mæli sitt hérna á eftir. Stelpur eru
þar engir eftirbátar og hafa mikið
sótt í sig veðrið á undanförnum
árum.“
Þegar leik í Laser Tag lýkur fá
leikmenn útprentaða pappíra sem
sýna árangur hvers og eins.
„Töfrar Laser Tag felast ekki
síst í hópefli leiksins sem er 100
prósent skemmtun því hann fær
krakkana líka til að vinna og tala
saman. Ég tek svo sjálfur völdin
þegar kemur að því að skipta í lið
svo enginn verði út undan. Oftar
en ekki kemur þá í ljós að sá sem er
stundum til hliðar í bekknum slær
í gegn með því að standa sig vel í
Laser Tag,“ segir Einar.
Áður en leikur hefst er farið
vandlega yfir leikreglur. Hver leikur,
sem fram fer í risastóru völundar-
húsi, tekur fimmtán mínútur.
„Í Laser Tag geta börnin leikið
sér frjáls og óheft í þægilegu um-
hverfi. Þegar slakað er á
eftir leikinn er hægt
að skemmta sér við
þythokkí, fótbolta-
spil, billjard og 50
tomma sjónvarpsskjá
með tilheyrandi barna-
efni. Hvert afmæli fær úthlutað
sérherbergi til afmælishaldsins og
það er velkomið að taka afmælis-
tertuna með sér. Við sköffum svo
gos, djús, diska, hnífapör, glös og
servéttur,“ upplýsir Einar.
Afmæli í Laser Tag miðast við
átta gesti að lágmarki. „Hjá okkur
bætist enginn aukakostnaður við
og aðeins er greitt fyrir afmælisgesti
sem mæta. Þá færist mjög í aukana
að foreldrar taki sig saman fyrir
bekkjarsystkin sem eiga afmæli á
svipuðum tíma. Héðan fara allir
heim sáttir og glaðir og við sjáum
um að taka til eftir veisluhöldin.“
100 prósent skemmtun og spenna
Afmælisveisla í Laser Tag er skotheld skemmtun fyrir börn eldri en átta ára. Þar mætir þeim spennandi leikur, heillandi hópefli og stanslaust
stuð. Boðið er upp á tvenns konar afmælispakka með leikjum, pitsum og gosi og vitaskuld er velkomið að koma með afmælistertuna að heiman.
Í Laser Tag er gnótt skemmtilegrar afþreyingar fyrir afmælisgesti.Spenna og einbeiting leynir sér ekki í andlitum þátttakenda í
Laser Tag.
Það er ósvikið fjör að halda afmælisveisluna í Laser Tag. MYNDIR/DANÍEL
Laser Tag
er á Salavegi 2 í
Kópavogi.
Sjá nánar á www
.lasertag.is
KISUGREY
FRÁ 5 ÁRA
Hópurinn situr í hring á gólfi.
Einn er hann og fer inn í miðjan
hringinn og leikur kisu. Kisa
labbar um í hringnum, stoppar
fyrir framan einn þátt takandann
og mjálmar þrisvar sinnum. Sá
þarf að strjúka kisu um hausinn
og segja kisugrey án þess að
fara að hlæja. Takist honum
það heldur kisa áfram að labba
hringinn, velur sér nýjan þátt-
takanda og leikur sama leikinn.
Geti þátttakandinn ekki stillt sig
um að hlæja þarf hann að skipta
um hlutverk við kisuna.
AÐ GEFA GJÖF
FRÁ 4 ÁRA
Börnin standa í hring. Eitt byrjar
og gefur því sem stendur næst sér
ímyndaða gjöf og segir: Ég er með
gjöf handa þér, gjörðu svo vel. Sá
sem fær gjöfina tekur við henni
og þakkar fyrir sig, opnar hana og
tekur upp það fyrsta sem honum
dettur í hug, til dæmis frosk. Þá
segir hann: Vá froskur! Takk fyrir.
Því næst leggur hann froskinn frá
sér, sækir nýja gjöf og gefur næsta
manni. Þannig gengur þetta koll
af kolli þar til allir hafa fengið
gjöf.
BANGSI LÚRIR
FRÁ 6 ÁRA
Bangsi lúrir, bangsi lúrir
bæli sínu í.
Hann er stundum stúrinn,
styrfinn eftir lúrinn.
Að hann sofi, að hann sofi
enginn treystir því.
Nemendur ganga réttsælis í hring
en bangsi lúrir í miðjunni. Þegar
kemur að vísupartinum „Að hann
sofi“ stoppa börnin, ganga hænu-
skref að bangsa og um leið og
síðasta orðið er sungið potar ein-
hver í hann. Þá upphefst eltinga-
leikur, bangsi á að reyna að ná
hinum, og allir sem hann nær
hjálpa honum svo þar til öllum
hefur verið náð.
HANS OG GRÉTA
FRÁ 3 ÁRA
Allir standa í hring. Einn er valinn
til að vera Hans og bundið fyrir
augun á honum með slæðu eða
trefli. Annar er valinn til að vera
Gréta en Hans má ekki vita hver
það er. Hans kallar nú á Grétu sem
svarar með því að klappa saman
lófunum. Hans gengur á hljóðið
og þegar hann finnur Grétu
heldur hann fast í hana og giskar á
hver Gréta er.
Leikir sem hrista hópinn saman
Börn elska leiki og að leika við önnur börn. Í öllum góðum afmælum er farið í leiki með afmælisgestum til að hrista hópinn saman
með söng, leikrænni tjáningu og skemmtun.
Kátínan og gleðin
yfir skemmti-
legum leikjum setja
punktinn yfir i-ið
í vel heppnuðum
barnaafmælum.