Fréttablaðið - 27.09.2013, Side 39

Fréttablaðið - 27.09.2013, Side 39
FRÉTTABLAÐIÐ LÍFIÐ 27. SEPTEMBER 2013 • 7 Ég og Petra, dóttir mín. Aðalleikkona Harmsögu, Elma Stefanía Ágústsdóttir. Skúlptúr eftir Evu frá samsýningu sem nefndist Til eru hræ og var opnuð í Kling og bang árið 2009. Mynd eftir Zeno Vaclavic úr verkinu Á Botninum eftir Maxim Gorki í leikstjórn Rúnars Guðbrandssonar. Myndaalbúmið mig að fá fullan aðgang að stoð- deildum Þjóðleikhússins, meira fjármagn en ég er vön og meira að segja hærri laun,“ segir Eva Signý og hlær. Hvað áttu við þegar þú segir stoðdeildir? „Ég er vön að vinna með sjálfstæðum leikhópum og smíða eða sauma flest sjálf. Síð- asta ár var ég fastráðin við sviðs- listadeild Listaháskóla Íslands í eitt ár vegna mikils fjölda út- skriftar sýninga. Þar sinnti ég alls kyns hlutverkum og sá meðal ann- ars um tæknimál, lýsingu, leik- mynd og búninga, sem var mjög lærdómsríkt og skemmtilegt. Í Þjóðleikhúsinu eru deildir sem sjá um alla hluti: leikmunadeild, bún- ingadeild, sviðsmenn og sérfræð- ingar í öllum tæknimálum. Maður deilir ábyrgðinni með fleirum og er meira með á æfingum og hefur betri heildarsýn. Ég þarf til dæmis ekki að laga leikmynd eða búninga ef eitthvað skemmist, eða mæta á hverja sýningu til að strauja dúk eða stilla upp, sem er mikill lúxus.“ Lítið um búðaráp Hvernig undirbýrðu þig fyrir nýtt verkefni? Hvaðan færðu inn- blástur og hugmyndir? „Það er mismunandi. Ef það er handrit byrja ég á að lesa það og þá kvikna oftast einhverjar hug myndir. Ég nota netið mikið og les mér til um efnið og svo fer ég á bókasafnið og skoða bækur, tímarit og myndir. Maður vinnur líka náið með leik- stjóranum og stundum leikskáld- inu. Síðan tekur við hönnunar- vinna sem felst í því að koma hug- myndunum í einhvers konar form, oft teikningar og líkön.“ Hvað tekur svo við? Ferðu á bæjarrölt og finnur það sem vantar í uppsetninguna? „Já, ég er á stanslausu búðarápi,“ segir hún og brosir. „Nei, oft hefur maður úr litlu fjármagni að moða og þá nýtir maður nytjamarkaði eða reynir að fá hluti lánaða, til dæmis hjá Þjóðleikhúsinu og Sjónvarpinu, sem hafa verið mjög liðleg. Stund- um nota ég mína eigin hluti í upp- setningar og svo þarf oft að búa til hluti frá grunni. Þetta er mjög misjafnt eftir verkefnum, ég hef til dæmis eytt heilu dögunum á Barnalandi í leit að hlutum sem manni finnst að ættu að vera alveg borðleggjandi. Einu sinni þurfti ég að finna útvíðar gallabuxur á há- vaxinn karlmann og það var virki- lega snúið að verða sér úti um slíka flík. Skemmtilegast finnst mér samt að búa hluti til og þurfa ekki að eyða of miklum tíma í að keyra um bæinn og kaupa inn.“ Verður þú aldrei kvíðin fyrir frumsýningar? „Nánast undan- tekningarlaust.“ Alþjóðlegt fjölskyldulíf Hvað með eftirnafn þitt, er það erlent að uppruna? „Pabbi minn er tékkneskur. Hann og mamma kynntust þegar þau voru við nám í Manchester en hann hefur búið hér á Íslandi frá því þau luku námi. Hann, amma mín og afi yfir gáfu Tékkland árið 1968 og fluttu til London. Mamma og pabbi voru mjög heppin því þau losnuðu við mig í mánuð eða tvo á hverju sumri þegar ég fór til Englands til ömmu og afa og kom heim sól- brún og sæl. Mér þótti alltaf af- skaplega gaman að heimsækja ömmu og afa og hluti af ástæð- unni fyrir því að ég sótti um nám í London var að ég vildi geta hitt þau oftar en einu sinni á ári. Mér þótti líka mjög gaman að kynn- ast London upp á nýtt þegar ég var þar við nám, áður höfðu amma og afi bara leitt mig um borgina og ég lítið pælt í henni. Ég elska London, þetta er svo margslungin borg með mörgum skemmtilegum en ólíkum kjörnum og auðvitað iðandi leik- húslífi.“ Eva er í sambúð með Dean Fer- rell, kontrabassaleikara með Sin- fóníuhljómsveit Íslands, og eiga þau saman dótturina Petru, sem er þriggja ára. Fyrir á Dean þrjú önnur börn. Dean er banda- rískur og því má með sanni segja að heimilið sé ansi fjölþjóðlegt. Er lögð mikil áhersla á listrænt

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.