Fréttablaðið - 27.09.2013, Síða 42
FRÉTTABLAÐIÐ Trendnet.is partý og prinsessan. Spjörunum úr og helgarmaturinn.
10 • LÍFIÐ 27. SEPTEMBER 2013
U
m síðastliðna helgi voru samankomnir margir af
helstu tísku- og lífsstílsbloggurum landsins. Til-
efnið var eins árs afmæli Trendnet.is en síðan
hefur átt mikilli velgengni að fagna frá upphafi.
Boðið var upp á ferska kokteila og Natalie þeytti
skífum fram eftir kvöldi. Karen Lind og Ása Regins hafa nú
bæst í Trendnet-hópinn en aðrir bloggarar eru Andrea Röfn,
Elísabet Gunnarsdóttir, Erna Hrund Hermannsdóttir, Helgi
Ómarsson, Hildur Ragnarsdóttir, Theodóra Mjöll, Svana
Lovísa, Pattra Sriyanonge og Þórhildur Þorkelsdóttir.
TRENDNET.IS
FAGNAR EINS
ÁRS AFMÆLI
Mikil gleði var í mannskapnum þegar Flottar
tískudrottningar héldu skemmtilegt teiti á Loftinu.
„Ég fæ að leika fógetafrúna og er
að spila og syngja í Jeppa á Fjalli.
Það er ekki amalegt að fá að leika
á móti Ingvari,“ segir Unnur Birna
Bassadóttir, söng- og tónlistarkona.
„Draumurinn minn var alltaf að
verða bíómyndaleikkona. Reyndar
flugmaður líka en það er víst ekki
að fara gerast úr þessu. Það er gott
að hafa einhverja drauma,“ segir
hún flissandi. Unnur Birna er fjöl-
hæf tónlistarkona og virðist fátt
vefjast fyrir henni þegar kemur
að hljóðfærum og tónlist. Í Jeppa á
Fjalli syngur hún og spilar á píanó,
bassa, orgel, fiðlu og klukkuspil en
tónlistin er eftir Megas og Braga
Valdimar. Jeppi á Fjalli er klass-
ískt verk sem fjallar um alkóhól-
isma og vítahring hans.
Unnur Birna hefur áður unnið
í leikhúsi en tónlistina segir hún
hafa fylgt sér alla tíð. „Ég svaf í
hljómborðstöskunni hjá mömmu
og pabba þegar þau voru á hljóm-
sveitaræfingum. Svo byrjaði ég
í kór þegar ég var þriggja ára
þegar pabbi var með Snælands-
skólakórinn. Í dag reka foreldar
mínir tónlistarskólann Tónrækt-
ina á Akureyri og ég hef því haft
gott bakland.“ Unnur Birna æfði
djasssöng og tók kennsluréttindin
í FÍH. Verkefnin sem hún hefur
tekið að sér eru margvísleg en
hún er meðal annars eina konan
í Fjallabræðrum. „Það er æðis-
legt að vera eina konan í Fjalla-
bræðrum því ég fæ að vera algjör
prinsessa.“
PRINSESSAN
Í FJALLABRÆÐRUM
Unnur Birna Bassadóttir leikur, syngur og spilar í Jeppi á
Fjalli í Borgarleikhúsinu sem frumsýnt verður 4. október.
Unnur Birna
Bassadóttir
er skemmti-
leg og fjöl-
hæf tónlistar-
kona en hún
spilar á flest
hljóðfæri.
Í Trendnet.is hófinu var samankomið margt flott fólk í góðum gír. Þar voru meðal annars Manúela Ósk og Elísabet Gunnarsdóttir, annar stofnandi tísku- og lífsstílsbloggsins. Aldís Pálsdóttir tók myndirnar.
Álfrún Pálsdóttir, stofnandi Trendnet.is, og vinkonur.
Vinafólkið
Erna Hrund
Hermanns-
dóttir blogg-
ari og
Viktor Bjarki
Arnars son
fótbolta-
kappi.