Fréttablaðið - 27.09.2013, Síða 44

Fréttablaðið - 27.09.2013, Síða 44
Lífi ð FRÉTTABLAÐIÐ Spjörunum úr og helgarmaturinn. ...SPJÖ RU N U M Ú R Hvern faðmaðir þú síðast? Eiginmanninn minn, Gylfa Má, í morgun. En kysstir? Ég kyssti eigin manninn minn ljúfum kossi. Hver kom þér síðast á óvart og hvernig? Mað- urinn minn tók sig til og samdi lag á munnhörpu og léttan dans við lagið. Svo spilaði hann það fyrir mig og fjölskylduna sem var ein- staklega fyndið, skemmtilegt og óvænt. Það eru duldir hæfileikar í fjölskyldunni. Hvaða galla í eigin fari ertu búin að um- bera allt of lengi? Flokka í geymslunni minni. Ertu hörundsár? Já, ég get verið það. Dansarðu þegar eng- inn sér til? Já, ég dansa á hverjum degi og nýt þess í botn! Hvenær gerðirðu þig síðast að fífli og hvernig? Ég leik við Max, labradorinn okkar, daglega og geri mig oft að fífli með skemmtilegum látum með honum. Hringirðu stundum í vælubílinn? Ég þarf þess ekki – lífið er svo skemmti- legt. Tekurðu strætó? Nei, hef ekki gert það undan- farið en gerði það oft þegar við bjuggum á Sel- fossi. Þá var snilld að nýta sér þjónustuna og taka leið- ina Selfoss/Reykjavík. Hvað eyðirðu miklum tíma á Facebook á dag? Ég eyði töluverðum tíma. Ferðu hjá þér þegar þú hittir fræga eða heilsarðu þeim? Ég fer nú ekki hjá mér en heilsa þeim. Skemmtilegt var þegar Chris Cornell, söngv- arinn frægi, var með tón- leika í Laugardalshöllinni en eftir tónleikana sáum við kappann, heilsuðum honum og hann talaði lengi við okkur um land og þjóð. Lumarðu á einhverju sem fáir vinir þínir vita um þig? Já, ég get hermt eftir Dýra eða „Animal“ úr „The Muppet Show“. Hvað ætlarðu alls ekki að gera um helgina? Ég ætla alls ekki að „detta í það“. Unnur Pálmarsdóttir ALDUR: 37 ára STARF: Stöðvarstjóri World Class Seltjarnarnesi Kári Gunnarsson grafískur teiknari hefur mikinn áhuga á bragðgóðum og heimatilbúnum mat. Hér deilir hann uppskrift að morgunverðarjóg- úrti með ristuðum hnetum og ávöxtum en einn skammtur inniheldur u.þ.b. 15 grömm af kolvetnum. MORGUNVERÐARJÓGÚRT MEÐ RISTUÐUM HNETUM OG ÁVÖXTUM Ristaðar hnetur 2 msk. valhnetur (saxaðar) 2 msk. möndlur (saxaðar) 2 msk. kókosflögur 1 msk. smjör Bræðið smjörið á heitri pönnu og ristið hneturnar og kókosflög- urnar í smástund. Sett í skál og látið kólna. Jógúrtblandan 2 msk. hreint skyr 2 msk. grískt jógúrt 4 msk. kókosolía (fljótandi) 2 msk. Torani-raspberry síróp Allt pískað vel saman í skál. Ávextir 6 jarðarber 1 lárpera Skorið í litla bita. Samsetning Jógúrtblandan er sett í tvær skálar. Berin, avókadó og hnetublandan sett ofan á. 2 msk. af rjóma og Torani- síróp efst. Rúm | Sængurver | Springdýnur | Púðar og rúmteppi | Kistur og náttborð Gaflar | Heilsukoddar | Dýnuhlífar og lök | Fylgihlutir Allt fyrir svefnherbergið RB rúm | Dalshrauni 8 | Hafnarfirði | Sími: 555 0397 Opið alla virka daga frá kl. 09.00–18.00, laugardaga 10.00–14.00, sunnudaga lokað www.rbrum.is | rum@rbrum.is | erum á Íslensk hönnun RÚM ára 1943-2013 Framúrskarandi fyrirtæki 2012 Framúrskarandi fyrirtæki 2011 Framúrskarandi fyrirtæki 2010

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.