Fréttablaðið - 27.09.2013, Side 50
27. september 2013 FÖSTUDAGUR| MENNING | 22
Það felst ákveðið hlutleysi í því að vera ekki
með nafn, þá er ekki eins niðurneglt hverjir skipa
kvartettinn hverju sinni.
Ég hef leitt kvartetta fyrir
Kammermúsíkklúbbinn rosa-
lega lengi, alveg síðan á níunda
áratug síðustu aldar, ég var ekki
einu sinni búin að klára skól-
ann þegar ég kom fyrst fram
fyrir þá,“ segir Sigrún Eðvalds-
dóttir spurð hvort kvartett
undir hennar nafni sé rótgróið
fyrirbæri. „Hann heitir ekk-
ert endilega Kvartett Sigrúnar
Eðvalds. Málið er að við höfum
aldrei valið okkur nafn vegna
þess að í gegnum tíðina hafa
verið miklar mannabreytingar í
kvartettinum. Það felst ákveðið
hlutleysi í því að vera ekki með
nafn, þá er ekki eins niðurneglt
hverjir skipa hann hverju sinni.“
Kvartettinn sem leikur á
sunnudaginn er auk Sigrúnar
skipaður þeim Zbigniew Dubik á
fiðlu, Ásdísi Valdimars dóttur á
víólu og Bryndísi Höllu Gylfa-
dóttur á selló. Á efnisskrá tón-
leikanna eru þrír strengja-
kvartettar: síðasti kvartett
Beethovens, fyrsti kvartett
Brahms og einn af kvartettum
spænska undrabarnsins Arriaga.
„Þetta eru þrír rosalega flottir
kvartettar,“ segir Sigrún og
leggur áherslu á rosalega.
Tónleikarnir marka upphaf 57.
starfsárs Kammermúsíkklúbbs-
ins, sem starfað hefur síðan 1957
og haldið meira en 280 tónleika.
Sigrún hefur tekið þátt í þeim
einu sinni á ári og segir það
algjörlega nauðsynlegan lið í tón-
listarárinu. „Þetta hefur verið
fastur punktur í lífinu í öll þessi
ár, sem er yndislegt og algjör
nauðsyn fyrir mig,“ segir hún.
„Þeir hafa haldið uppi frábæru
starfi og gert fólki kleift að
spila kammermúsík en til þess
gefast ekkert svo mörg tækifæri
á þessu litla landi. Það er bara
stórkostlegt að fá að taka þátt í
þessu.“
Tónleikarnir eru í Norðurljósa-
sal Hörpu og hefjast klukkan
19.30. fridrikab@frettabladid.is
Fastur punktur í lífi nu
Fyrstu tónleikar 57. starfsárs Kammermúsíkklúbbsins eru á sunnudag. Kvartett
Sigrúnar Eðvaldsdóttur fl ytur þrjá strengjakvartetta í Norðurljósasal Hörpu.
Nauðsynlegt að spila eina kammermúsíktónleika á ári, segir Sigrún.
SIGRÚN OG FÉLAGAR Sigrún Eðvaldsdóttir og Zbigniew Dubik leika á fiðlur, Ásdís
Valdimarsdóttir á víólu og Bryndís Halla Gylfadóttir á selló.
Fyrsta nýja íslenska leik ritið
af tíu sem Útvarpsleikhúsið
flytur í vetur verður frumflutt á
sunnudaginn klukkan 13. Það er
verkið Best í heimi, útvarpsleik-
gerð Maríu Reyndal eftir leikriti
Hávars Sigurjónssonar, Maríu
Reyndal og leikhópsins Rauða
þráðarins frá 2006. María er jafn-
framt leikstjóri verksins eins og á
sviðinu um árið.
Það virðist vera orðin lenska
að leikrit stökkvi á milli miðla,
byrji ýmist sem útvarpsleikrit
og endi á sviði eða öfugt. Hvað
veldur? „Það er gaman að nýta
sér muninn á þessum miðlum og
útvarpsverkið er talsvert ólíkt
því sem við gerðum á sviði,“ segir
María. „Við náum fram öðrum
tengingum við hlustandann.
Það er til dæmis hægt að fara í
hraðari skiptingar, þarf ekki að
skipta út leikmynd, ljósum og
öllu. Útvarpsverkið er töluvert
ólíkt sviðsverkinu, sagan af Kim
og Rögnu tengdamóður hennar er
hér fyrirferðarmeiri.“
Leikritið var upphaflega samið
af Hávari, Maríu og fjórum leik-
urum af erlendu bergi sem léku
það á sviðinu, eru þau öll með í
þessari útgáfu? „Já, og fleiri til.“
Og þau tala öll íslensku? „Nei,
og gerðu það alls ekki þegar þau
stóðu á sviði í einn og hálfan tíma
og fóru með texta á íslensku. Það
tókst hins vegar mjög vel og í
útvarpsverkinu eru enn fleiri
sem ekki tala íslensku en lærðu
textann auðveldlega, enda hafa
þau sjálf mótað rullurnar að
miklu leyti og þurfa bara hjálp
við þýðinguna.“
Allar sögurnar í Best í heimi
eiga sér fyrirmyndir í raun-
verulegum upplifunum. „Já, við
deildum sögum okkar og ann-
arra. Þótt ég sé Íslendingur hef
ég búið mikið í útlöndum og þekki
það að vera innflytjandi. Kannast
við vandamálin sem því fylgja og
hef mikinn áhuga á innflytjenda-
málum á Íslandi.“
Útsendingin hefst eins og áður
sagði klukkan 13 á sunnudaginn
og María hvetur fólk til að koma
sér vel fyrir og virkilega hlusta.
„Þótt fólki finnist þetta kannski
fyndið í fyrstu þá fer aðalsagan
á dýpri mið þegar líður á verkið.“
- fsb
Byggir allt á raunverulegum
upplifunum innfl ytjenda
Best í heimi er útvarpsgerð af leikriti sem margir sáu í Iðnó árið 2006. María Reyn-
dal vann útvarpsgerðina og leikstýrir. Hún segir verkið alvarlegra en frumgerðina.
BEST Í HEIMI
María Reyndal
leikstýrir og gerði
leikgerð upp úr
verki sínu, Hávars
Sigurjónssonar og
leikhópsins.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Stöð er ný
sjónvarpsstöð
Aðeins 2.990 kr.
á mánuði
Tryggðu þér áskrift og fáðu nánari upplýsingar á
X Factor
Arrow
Friðrik Dór
=Skjár 1 4.990 kr. á mánuði
+ + =Stöð 2.990 kr. á mánuði
Gerðu verðsamanburð
Super
Fun
Night
Krakkastöðin
fylgir með
The Mindy
Project
Save the Children á Íslandi
MENNING