Fréttablaðið - 27.09.2013, Blaðsíða 52
27. september 2013 FÖSTUDAGUR| MENNING | 24
Eiginkonan harðasti gagnrýnandinn
Andri Snær Magnason ætlaði að senda nýjustu bók sína, Tíma-
kistuna, frá sér fyrir ári en eiginkonan setti honum stólinn fyrir dyrnar.
FÖSTUDAGUR 27. SEPTEMBERHVAÐ? HVENÆR? HVAR?
Tónlist
12.00 Á tónleikunum Tveir strengir sem
eru hluti af tónleikaröðinni Á ljúfum
nótum flytja Margrét Hannesdóttir
sópran og Lilja Eggertsdóttir píanó-
leikari ljóðaflokk Op. 13 eftir Samuel
Barber. Einnig verða flutt þekkt íslensk
og þýsk klassísk sönglög. Almennt
miðaverð er 1.000 krónur.
Fyrirlestrar
12.30 Kviss Bamm Búmm er með
hádegisfyrirlestur í myndlistardeild
Listaháskóla Íslands að Laugarnesvegi
91. Aðgangur er ókeypis og allir eru
velkomnir.
Upplýsingar um viðburði sendist á
hvar@frettabladid.is og einnig er hægt
að skrá þá inni á visir.is.
Októberfest verður haldið í risa-
tjaldi í Laugardalnum í dag og á
morgun.
Á meðal atriða verða fræðslu-
leikritið Bjórsaga með Víkingi
Kristjánssyni, fullorðinssirkusinn
Skinnsemi, pub-quiz með Hjörvari
Hafliðasyni og einnig kemur fram
hópur listamanna og uppistandara,
þar á meðal Halldór Gylfason, Lee
Nelson, Sólmundur Hólm, Steindi
jr. og Bent. Tjaldið opnar klukkan
16 í dag með sýningu Skinnsemi.
Að sýningu lokinni verður tjaldið
opið gestum og gangandi.
Októberfest
í Laugardal
KOMA FRAM Steindi jr. og Bent eru á
meðal þeirra er koma fram á Október-
fest á morgun. MYND/ELLÝ
„Ég ætla formlega að gefa út
myndasögubók sem ég hef unnið
að lengi. Ég á von á því að það
komi eitthvað af fólki til þess að
fagna með mér og þetta verður
án efa skemmtilegt kvöld,“ segir
Bjarni Hinriksson, myndasögu-
maður og grafískur hönnuður, sem
fagnar í kvöld formlegri útgáfu
bókar sinnar, Skugginn af sjálfum
mér.
Skugginn af sjálfum mér er
myndasaga fyrir fullorðna og
segir frá Kolbeini Hálfdánssyni
myndasöguhöfundi, sem er í fríi
á Kanaríeyjum ásamt tíu ára syni
sínum. Hugmyndin að bókinni kom
þegar Bjarni fór að skrifa stuttar
ferðasögur af sér og syni sínum.
Tilgangurinn var að skrásetja dag-
legt líf þeirra feðga. „Í gegnum
árin hefur sagan þróast þannig
að þótt hún byggi á sjálfsævisögu
færðist hún í að vera hrein skáld-
saga með tilvísunum í það sem ég
þekki úr mínu lífi,“ segir Bjarni
um inntak bókarinnar. Útgáfu-
hófið verður haldið í bókabúðinni
Útúrdúr í kvöld milli fimm og sjö.
Bjarni segir að hann hafi valið
þennan stað af sérstakri ástæðu.
„Það er við hæfi að hún sé kynnt
á þessum stað sem er vettvangur
fyrir listir af mörgu tagi. Mynda-
sagan er á mörkum ýmissa miðla
og er svolítið sérstök í forminu eins
og Útúrdúr,“ segir Bjarni sem ætlar
jafnvel að bregða sér á kaffihús með
syni sínum eftir frumsýningar-
partíið. „Ég ætla að sjá hvert þessi
fögnuður leiðir mig, ég mun án efa
gera eitthvað skemmtilegt,“ segir
Bjarni að lokum.
asa@frettabladid.is
Fagnar með syninum
Bjarni Hinriksson ætlar að fagna útgáfu bókarinnar Skugginn af sjálfum mér.
GEFUR ÚT MYNDASÖGUBÓK Bjarni Hinriksson fagnar útgáfu bókarinnar Skugginn
af sjálfum mér í bókabúðinni Útúrdúr í kvöld. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
➜ Bjarni Hinriksson nam myndasögugerð við École régionale des
beaux-arts í Angoulême í Frakklandi. Hann hefur samið og teiknað
myndasögur auk þess að starfa sem grafískur hönnuður hjá
RÚV og við kennslu í Myndlistaskólanum í Reykjavík.
Danskvöldið Heiladans verður
haldið í 28. sinn á skemmtistaðn-
um Bravó í kvöld. Þar koma með
annars fram listamennirnir If-
ThenRun og Nuke Dukem ásamt
plötusnúðunum Dj Dorrit og
Techsoul. Aðstandendur kvölds-
ins er tónlistarútgáfan Möller
Records sem sérhæfir sig í
íslenskri raftónlist. Forsprakkar
útgáfunnar eru Jóhann Ómars-
son, sem gengur undir lista-
mannsnafninu Skurken, og Árni
Grétar, betur þekktur sem Fut-
uregrapher.
Heiladans
á Bravó
STOFNANDINN Árni Grétar Jóhannes-
son stendur fyrir Heiladansi á Bravó í
kvöld. MYND/JELENA SCHALLY
Skaft ahlíð 24 | 105 Reykjavík | 512 5000 | Auglýsingar 512-5401 | visir.is
VALFRELSI ER
MÍN PÓLITÍK
HELGARBLAÐ FRÉTTABLAÐSINS
Ómissandi hluti af góðri helgi
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir er komin í nýtt starf
hjá Samtökum atvinnulífsins. Hún kveðst frjálsari þar en
í landsmálapólitíkinni.
FRÉTTABLAÐIÐ ER HELGARBLAÐIÐ
Gamlir
flöskuhálsar
hamla námi
Fjölmargir iðnnemar
komast ekki að í vinnustaða-
námi. Nám margra tefst um
mislangan tíma meðan aðrir
snúa sér að öðru.