Fréttablaðið - 27.09.2013, Síða 54
27. september 2013 FÖSTUDAGUR| MENNING | 26
BÍÓ ★★★ ★★
Frjálst fall / Freier Fall
Leikstjóri: Stephan Lacant
Leikarar: Hanno Koffler, Max Riemelt,
Katharina Schüttler.
RIFF KVIKMYNDAHÁTÍÐ
Kvikmyndin Frjálst fall segir frá Marc
sem hyggur á frama innan óeirðalög-
reglunnar og á von á sínu fyrsta barni
með sambýliskonu sinni. Í lögreglu-
skólanum kynnist hann Kay og takast
með þeim ástir. Tilfinn ingarnar sem
bærast innra með Marc eru honum
framandi og á hann í erfiðleikum með
að takast á við þær. Hann er neyddur til
þess að horfast í augu við sannleikann
og í kjölfarið upplifir hann sjálfan sig
í frjálsu falli.
Söguþráður myndarinnar minnir um
margt á söguþráð Brokeback Mounta-
in; tveir karlmenn sem lifa í einkar
karllægum heimi kynnast og falla hvor
fyrir öðrum. Myndin er raunsæ og til-
finningarík og þótti undirritaðri leik-
konan Katharina Schüttler sýna stórleik
í henni. Aðalleikararnir tveir eru einnig
góðir, en bíóunnendur gætu kannast við
Riemelt úr kvikmyndinni Die Welle.
Sara McMahon
NIÐURSTAÐA: Raunsæ og tilfinningarík
kvikmynd frá þýska leikstjóranum Stephan
Lacant sem vert er að kíkja á.
Þýskt raunsæi á Alþjóðlegri kvikmyndahátíð
Í FRJÁLSU
FALLI Marc
kynnist Kay
í lögreglu-
skólanum
og með
þeim takast
ástir.
Samkvæmisljónið, fatahönnuður-
inn og leikkonan Nicole Richie
hélt upp á 32 ára afmælið sitt í
Mexíkó fyrir fáeinum dögum. Ric-
hie, sem er tveggja barna móðir,
leigði einkaþotu fyrir sig og sex
nánar vinkonur sínar.
Þær gistu á lúxushóteli í bænum
Cabo San Lucas, sem er bær við
suðurströnd Mexíkó. Vinkonurnar
skemmtu sér konunglega þar sem
þær sóluðu sig á ströndinni og
drukku kokteila. Á afmæliskvöld-
inu sjálfu klæddu þær sig upp í
eins sundboli með blómamynstri.
Richie er gift Joel Madden, en
hann er söngvari hljómsveit-
arinnar Good Charlotte.
Bauð vinkon-
um til Mexíkó
HÉLT UPP Á AFMÆLIÐ SITT Nicole
Richie hélt upp á 32 ára afmælið
sitt í Mexíkó þar sem hún bauð sex
vinkonum sínum að fagna með sér.
NORDICPHOTOS/GETTY
Söngvarinn David Bowie situr
fyrir í nýrri auglýsingaherferð
fyrir franska tískumerkið Louis
Vuitton. Auglýsingin var mynduð
í Feneyjum í sumar. Ofurfyrir-
sætan Arizona Muse situr fyrir
með Bowie á myndunum.
Á myndunum sjást Bowie og
Muse meðal annars í loftbelg
sem svífur yfir Feneyjum. Bowie
er ekki fyrsta stórstjarnan sem
tískumerkið fær í lið með sér, en
stjörnurnar Keith Richards, Bono,
Pele, Muhammed Ali og Catherine
Deneuve, hafa allar setið fyrir í
auglýsingaherferðum fyrirtækis-
ins. Muse er hvað þekktust fyrir
að vera andlit tískumerkjanna
Miu Miu, Next og Prada.
Situr fyrir hjá
Louis Vuitton
SITUR FYRIR David Bowie er nýtt
andlit tískumerkisins Louis Vuitton.
NORDICPHOTOS/GETTY
Leikarinn Michael J. Fox talaði á
persónulegum nótum um líf sitt í
spjallþætti Howards Stern.
Fox, sem greindist með Park-
inson-sjúkdóminn þegar hann
var 29 ára, viðurkenndi að hafa
drukkið óhóflega eftir grein-
inguna. Fox segist hafa drukkið
einn heima á hverjum degi í eitt
ár.
Eftir erfitt ár leitaði hann sér
hjálpar og fór í áfengismeðferð.
„Ég lærði þar inni að ég verð
að lifa einn dag í einu. Líf mitt
varð miklu betra og hjónabandið
mitt líka,“ segir Fox. Fox giftist
Tracy Pollman árið 1998 og þau
eiga saman fjögur börn.
Drakk einn
heima í ár
FÓR Í MEÐFERÐ Michael J. Fox drakk
sig nánast í hel eftir að hann greindist
með Parkinson. NORDICPHOTOS/GETTY
Fáðu þér áskrift | 512 5100 | stod2.is
SKEMMTIPAKKINN
Margfalt meiri
skemmtun á aðeins 7.990 kr.
Bestu dramaþættir: Breaking Bad
Besti aðalleikari í dramaþáttum: Jeff Daniels, The Newsroom
Besta aðalleikkona í dramaþáttum: Claire Danes, Homeland
Bestu grínþættir: Modern Family
Besti aðalleikari í grínþáttum: Jim Parsons, The Big Bang Theory
Besta aðalleikkona í grínþáttum: Julia Louis-Dreyfus, Veep
Á nýafstaðinni Emmy-verðlaunahátíð fengu þættir á Stöð 2 öll helstu verðlaunin, eins og svo
oft áður. Þín bíður því ekki aðeins glæsilegasta innlenda dagskrá frá upphafi, heldur fjöldi
erlendra verðlaunaþátta. Við lofum góðum vetri á Stöð 2.
EMMY VERÐLAUNIN 2013