Fréttablaðið - 27.09.2013, Qupperneq 58
27. september 2013 FÖSTUDAGUR| SPORT | 30
KÖRFUBOLTI Íslandsmeistarar
Grindavíkur mæta K R í
undanúrslitum Lengjubikars
karla í Njarðvík í kvöld.
Vesturbæjarliðið hefur unnið
alla sjö leiki sína í keppninni
til þessa og virkar afar sterkt.
Grindvíkingar hafa aftur á móti
lagt Keflavík og Njarðvík í síðustu
leikjum sínum.
Pavel Ermolinskij sneri heim úr
atvinnumennsku á dögunum og
samdi við KR. Hann hafði verið
orðaður við Grindvíkinga.
„Það stóð aldrei til hjá okkur
að fá Pavel. Við erum ánægðir
með hópinn sem við erum með,“
segir Sverrir. Hinn bráðefnilegi
Jón Axel Guðmundsson mun vera
í leikstjórnandahlutverkinu í vetur
ásamt Daníel G. Guðmundssyni.
Íslandsmeistararnir þurftu
að senda bandarískan leikmann
sinn heim á dögunum. Sá, Christ
Stephenson að nafni, hafði logið til
um alvarleika meiðsla sinna.
„Hann átti að hafa meiðst
smávægilega í Litháen og þurft
að fara heim af þeim sökum,“
segir Sverrir. Í ljós hafi komið að
meiðslin smávægilegu voru slitið
krossband og hann hefði því verið
frá keppni í sjö mánuði.
„Hann átti svo langt í land að
hann hefði aldrei verið kominn í
stand fyrr en seint og síðar meir.“
Ekki kom því annað til greina en
að senda Stephenson heim. Sverrir
segir leitina að nýjum Kana ganga
vel. Fjölhæfur framherji sé á óska-
listanum og reiknar Sverrir með
því að hann verið kominn fyrir
fyrsta leik í Domino‘s-deildinni
10. október. Þá verður andstæð-
ingurinn KR líkt og í kvöld. Liðið
sem margir spá Íslandsmeistara-
titlinum.
„Þannig er umræðan og þeir
verða klárlega eitt af sterkustu
liðunum í vetur. Við höfum allir
fulla trú á því hér í Grindavík að
við getum unnið til nokkurra titla
í vetur,“ segir Sverrir.
Leikur Grindavíkur og KR
hefst í Ljónagryfjunni klukkan
20. Tveimur tímum fyrr mætast
Keflavík og Snæfell í hinni undan-
úrslitaviðureigninni.
Úrslitaleikurinn er á sama stað
á sunnudaginn. - ktd
Við getum unnið til nokkurra titla í vetur
Grindvíkingar mæta KR í öðrum tveggja spennandi undanúrslitaleikja í Lengjubikarnum í Njarðvík í kvöld.
ÍSLANDSMEISTARAR Á FYRSTA ÁRI
Sverrir Þór Sverrisson gerði flotta hluti
með Grindavík í fyrra. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
KÖRFUBOLTI „Þetta spyrst fljótt út
hérna,“ segir Petrúnella Skúla-
dóttir, leikmaður Grindavíkur.
Hinar gulklæddu þurfa að venj-
ast lífinu án framherjans í eitt
tímabil því Petrúnella er barns-
hafandi. Hún hefur ekki áhyggjur
af liðinu. „Þær hafa styrkt hóp-
inn svo vel þannig að það ætti
ekki að muna. Ég hef bullandi
trú á þeim,“ segir Petrúnella sem
hefur verið í stóru hlutverki í
landsliðinu.
Hún á von á sér í mars en fað-
irinn er Jóhann Árni Ólafsson,
leikmaður karlaliðs Grindavíkur.
Petrúnella setur stefnuna á að
snúa aftur á næstu leiktíð. - ktd
Grindavík án
Petrúnellu
PETRÚNELLA SKÚLADÓTTIR Ein sú
besta í deildinni. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
FÓTBOLTI Íslenska kvennalands-
liðið fer ekki vel af stað í undan-
keppni HM 2015 en það er erfitt
að sjá fyrir sér að stelpurnar mæti
sterkara liði en því svissneska sem
yfirspilaði íslenska liðið í gær.
Íslensku stelpurnar réðu ekkert
við hápressu Sviss eða hina frá-
bæru Ramonu Bachmann sem fór
afar illa með íslensku varnarlín-
una allan leikinn.
„Ég hálfvorkenndi fremstu
mönnum okkar því þetta var rosa-
lega erfitt fyrir þær. Við þurfum
að styrkja okkar leik í stuttu spili
til þess að verða betra lið. Langir
boltar eru ekki að gera mikið fyrir
okkur. Það er nóg eftir og þær
munu misstíga sig,“ sagði Freyr
Alexandersson.
Sviss átti alltaf að geta skorað
mörk en veikleikarnir áttu að
liggja í varnarleiknum. Það reyndi
bara aldrei almennilega á varnar-
línu Svisslendinga því hápressan
sá til þess að íslensku stelpurnar
náðu aldrei að spila boltanum upp
völlinn af einhverju viti.
„Þær eru snarpari, sterkari
og ákveðnari en við í öllum að-
gerðum. Þetta var bara erfitt
og við vorum bara undir í öllu í
dag. Þær voru miklu betri og áttu
sigurinn skilinn. Þær minna mig
svolítið á Frakkland á sínum tíma
þegar þær voru að koma upp. Þetta
er lið sem á eftir að ná rosalega
langt,“ sagði Margrét Lára Viðars-
dóttir eftir leikinn
Ramona Bachmann skoraði
fyrsta markið strax á 9. mínútu
leiksins eftir frábæran sprett milli
tveggja varnarmanna íslenska
liðsins. „Það kannski svíður mest
að Ramona komst í taktinn sinn.
Það vissu allir í okkar liði hversu
góð hún er og þá verðum við að
sjá til þess að hún komist ekki í
þennan gír,“ sagði Freyr. Seinna
markið kom úr vítaspyrnu en í
aðdragandanum hafði Ramona
Bachmann galopnað íslensku vörn-
ina í enn eitt skiptið.
„Það er nóg eftir enn þá og ég
held að þetta verði rosalega opinn
riðill. Þetta tap þýðir að við erum
búnar að misstíga okkur einu sinni
og erum komnar upp við vegg. Við
verðum að klára rest,“ sagði Mar-
grét Lára. ooj@frettabladid.is
Senuþjófur í Dalnum
Frumsýning Freys Alexanderssonar með íslenska kvennalandsliðið í fótbolta
snerist upp í sýningu hinnar frábæru Ramonu Bachmann sem fór fyrir Sviss í
öruggum 2-0 sigri í Laugardalnum í gær. Katrín var því ekki kvödd með sigri.
KVEÐJUSTUND Katrín Jónsdóttir gaf allt sem hún átti í sinn síðasta landsleik. Því
miður dugði það ekki til. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
SPORT
FRAMMISTAÐA
LEIKMANNA
GUÐBJÖRG GUNNARSDÓTTIR 5
Átti að gera betur í fyrsta markinu en varði
nokkrum sinnum vel í seinni hálfleik.
ANNA MARÍA BALDURSDÓTTIR 5
Komst allt í lagi frá fyrsta landsleiknum, lét
finna fyrir sér og hélt Önu Mariu Crnogorcevic í
skefjum.
GLÓDÍS PERLA VIGGÓSDÓTTIR 5
Þrátt fyrir að fá á sig vítaspyrnu var hún traust og
gerði ekki mörg mistök undir stöðugri pressu.
KATRÍN JÓNSDÓTTIR 4
Lenti oft í vandræðum með eldfljóta og leikna
sóknarmenn Sviss.
ÓLÍNA G. VIÐARSDÓTTIR 3
Var lengstum í vandræðum og spilaði auk þess
boltanum illa frá sér.
DAGNÝ BRYNJARSDÓTTIR 5
Traustasti miðjumaður liðsins, vann vel og hélt
stöðunni vel.
SARA BJÖRK GUNNARSDÓTTIR 4
Náði sér ekki á strik og varð undir í baráttunni
inni á miðjunni sem er eitthvað sem maður sér
ekki á hverjum degi.
DÓRA MARÍA LÁRUSDÓTTIR 3
Komst lítið áfram í að byggja upp spila enda gekk
henni illa að halda boltanum. Fór líka út á kanti
og niður í bakvörð.
HÓLMFRÍÐUR MAGNÚSDÓTTIR 3
Var langt frá sínu besta og skapaði nánast ekkert
hægra megin. Var heppin að fá ekki tvö gul spjöld.
HALLBERA G. GÍSLADÓTTIR 4
Komst lítið inn í leikinn í nýrri stöðu á kantinum.
MARGRÉT LÁRA VIÐARSDÓTTIR 3
Týnd nær allan leikinn enda fékk hún litla sem
enga þjónustu.
Mörkin: 0-1 Ramona Bachmann (9.), 0-2 Lara
Dickermann, víti (54.)
Skot (á mark): 4-19 (1-11) Horn: 4-10
Varin skot: Guðbjörg 9 - Thalmann 1
Aukaspyrnur: 14-16 Rangstöður: 0-4
Laugardals-
völlur
Bibiana
Steinhaus (8)
0-2
FH - VALUR 24-21
FH - Mörk (skot): Magnús Óli Magnússon 7 (13),
Sigurður Ágústsson 4 (4), Benedikt Reynir Krist-
insson 3 (6), Ragnar Jóhannsson 3 (7), Einar Rafn
Eiðsson 3 (9/2), Ísak Rafnsson 2 (2), Andri Berg
Haraldsson 1 (3), Ásbjörn Friðriksson 1/1 (3/1),
Varin skot: Daníel Freyr Andrésson 20/1 (41/4,
49%), 1 (1, 100%)
Valur - Mörk (skot): Guðmundur Hólmar
Helgason 6 (10), Finnur Ingi Stefánsson 3/2 (9/3),
Orri Freyr Gíslason 2 (2), Ægir Hrafn Jónsson 2 (3),
Sveinn Aron Sveinsson 2 (4), Geir Guðmundsson 2
(7), Atli Már Báruson 1 (2), Vignir Stefánsson 1 (3),
Þorgrímur Smári Ólafsson 1 (3), Elvar Friðriksson
1/1 (4/2),
Varin skot: Lárus Helgi Ólafsson 15/2 (33/3, 45%),
Hlynur Morthens 6 (12, 50%)
FRAM - HK 29-23
Fram - Mörk (skot): Garðar B. Sigurjónsson 5/2
(9/3), Sigurður Örn Þorsteinsson 5 (10), Ólafur
Magnússon 4 (4), Sveinn Þorgeirsson 4 (5), Stefán
Baldvin Stefánsson 4 (7), Sigfús Páll Sigfússon 3
(4), Stefán Darri Þórsson 3/1 (5/2), Arnar Freyr
Ársælsson 1 (1),
Varin skot: Steffan Nielsen 21/1 (43/3, 49%),
Svavar Már Ólafsson 1/1 (2/2, 50%),
HK - Mörk (skot): Leó Snær Pétursson 6 (9),
Daníel Berg Grétarsson 3/1 (4/1), Sigurður Már
Guðmundsson 3 (7), Atli Karl Bachmann 3 (9),
Davíð Ágústsson 2 (2), Ólafur Víðir Ólafsson
2/2 (4/2), Tryggvi Þór Tryggvason 1 (1), Garðar
Svansson 1 (2), Óðinn Þór Ríkharðsson 1 (2/1),
Jóhann Reynir Gunnlaugsson 1 (6/1), Eyþór Már
Magnússon (1),
Varin skot: Björn Ingi Friðþjófsson 9/1 (36/4,
25%), Helgi Hlynsson 1 (3, 33%),
OLÍS-DEILD KARLA
ÚRSLIT
LAGERHREINSUN
Á ARINELDSTÆÐUM
EINUNGIS 3 VERÐ!
19.900,-
29.900,-
39.900,-
Smiðjuvegi 2
Kópavogi
Sími 544 2121
www.rumgott.is
Opið virka daga frá kl. 10-18
og laugardaga kl. 11-16
SÉRHÆFUM OKKUR Í
SMÍÐI Á HEILSURÚMUM
FRÍ LEGUGREINING
OG FAGLEG RÁÐGJÖF
Kyn
nin
gar
ver
ð
Ítölsk hönnun
hágæða sófasett
20-
50%
AFS
LÁT
TU
R AF
ÖLL
UM
HE
ILS
UR
ÚM
UM
Frí heimsending á hjónarúmum
eða tökum gamla rúmið upp í nýtt!