Fréttablaðið - 27.09.2013, Side 62
27. september 2013 FÖSTUDAGUR| MENNING | 34
„Það liggur í augum uppi að það
er ekki ókeypis að leigja Höllina,
birta allar þessar auglýsingar og
hafa allan þennan tækjabúnað
sem til þarf. Markmiðið er að gera
þetta vel, þannig að öllum líði vel,“
segir Ragnar Gunnarsson, fram-
kvæmdastjóri Hátíðar vonar.
Aðalpredikari trúarhátíðarinnar
verður Franklin Graham, sem er
þekktur fyrir andstöðu sína gegn
sýnileika samkynhneigðra í fjöl-
miðlum, hjónaböndum samkyn-
hneigðra og íslamstrú.
Mikil auglýsingaherferð hefur
staðið yfir í fjölmiðlum og á
strætis vagnaskýlum til að kynna
hátíðina, sem verður haldin í
Laugar dalshöll á morgun og
sunnudag. Aðspurður hver borgar
brúsann segir Ragnar að pening-
arnir komi úr ýmsum áttum.
„Hluti af þessu er greiddur af
kirkjum og einstaklingum hér
innanlands og hluti af samtökum
Billys Graham [hins heimsfræga
sjónvarpspredikara og föður
Franklins Graham]. Ég veit ekki
endanlega fjárhagsáætlun. Fjár-
málin verða lögð á borðið þegar
þetta er allt búið og uppgert,“ segir
hann en reiknar með að kristni-
boðssamtök Billys Graham greiði
meira en helming kostnaðarins.
Telja má líklegt að heildarkostn-
aður nemi tugum milljóna króna.
Auk leigu Laugardalshallar, tækja-
búnaðar og greiðslu fyrir auglýs-
ingar kemur hingað tólf manna
hljómsveit frá Bandaríkjunum
með Franklin Graham.
Ókeypis er inn á hátíðina og
verða þrjú þúsund sæti í boði í
Höllinni. „Þetta er kristileg sam-
koma og þær eru yfirleitt ókeypis.
Við viljum ekki að fjármagn standi
í vegi fyrir neinum að koma og
njóta þess sem er í boði,“ segir
Ragnar. freyr@frettabladid.is
Billy Graham eyðir
stórfé í Hátíð vonar
Samtök predikarans fræga Billy Graham borga milljónir vegna Hátíðar vonar.
FRAMKVÆMDASTJÓRI Ragnar Gunnarsson, framkvæmdastjóri Hátíðar vonar, býst
við góðri mætingu í Höllina um helgina. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Samtökin ´78 ætla að halda eigin mannréttindahátíð í Þróttarheimilinu,
rétt hjá Laugardalshöll, milli klukkan 17 og 18 á laugardaginn. Hátíðin
heitir Glæstar vonir. Séra Sigríður Guðmarsdóttir, prestur í Guðríðarkirkju,
og Sigurður Hólm Gunnarsson frá Siðmennt stíga í pontu, auk þess sem
tónlistaratriði verða í boði. „Hátíðin er haldin til að leggja áherslu á að
mannréttindi, jafnrétti og mannleg reisn hverrar manneskju
séu ofan á í okkar samfélagi. Við gerum þetta á okkar eigin
forsendum en tímasetningin er engin tilviljun,“ segir Anna
Pála Sverrisdóttir, formaður samtakanna. „Ég hvet fólk ein-
dregið til að mæta og sýna að í okkar samfélagi sé jafn-
rétti og sömu mannréttindi fyrir allt fólk efst á dagskrá.“
Friðsamleg mótmæli hafa einnig verið skipulögð
fyrir utan Laugardalshöll vegna þátttöku Franklins
Graham í Hátíð vonar. Samtökin ´78 standa ekki
fyrir þeim.
Samtökin ´78 í Þróttarheimilinu
„Þetta er pínulítil stuttmynd sem
var undirbúin í algjöru brjálæði
á fjórum dögum. Tökurnar tóku
tvo daga og myndin kostaði ekki
krónu,“ segir sjónvarps- og kvik-
myndagerðarkonan Elsa María
Jakobsdóttir um heimildar-
myndina Megaphone. Myndin,
sem er leikin heimildarmynd,
verður frumsýnd á RIFF í dag.
Megaphone er fyrsta leikna
myndin sem Elsa leikstýrir og
fóru tökur fram í október á síð-
asta ári. Með aðalhlutverk fara
Salóme Rannveig Gunnars dóttir
og Hjörtur Jóhann Jónsson.
Einnig fer leikarinn Damon Youn-
ger með aukahlutverk í myndinni.
Spurð út í myndina, segir Elsa að
hún sé Reykjavíkursaga og svefn-
herbergisdrama sem fjallar um
einnar nætur gaman sem fer inn
á grátt svæði þar sem tveir aðilar
eiga ólíkar upplifanir. „Þetta er
saga sem ég veit að margar konur
og karlar sem hafa séð myndina
tengja við á óþægilegan og ónota-
legan hátt. Ég hef mikinn áhuga á
að segja sögur kvenna og þá sér-
staklega frá þeirra upplifunum af
kynlífi,“ útskýrir hún.
Kvikmyndatökumaðurinn Árni
Filippusson, sem tók meðal ann-
ars upp íslensku þættina Fanga-
vaktina, sá um tökur og segir
Elsa að það hafi verið nauðsyn-
legt að hafa einhvern reyndan
með á setti. „Ég vildi vinna með
Árna og fá hann til þess að skjóta
myndina. Hlutirnir æxluðust svo
þannig að Árni lét mig vita að
hann væri tilbúinn í tökur og við
byrjuðum fjórum dögum síðar.
Þetta gekk eins og í sögu og lítið
mál var að manna myndina, enda
vilja allir vinna með rokkstjörnu
eins og Árna,“ segir Elsa María
og hlær.
Megaphone hefur fengið frá-
bærar viðtökur og hefur hún verið
valin til sýninga á International
Film Festival í Helsinki og á Upp-
sala International Short Film Festi-
val. „Það er rosalegur heiður að
mynd sem tók svona stuttan tíma
í vinnslu, komist að á jafn virtum
hátíðum og þessar tvær eru,“ segir
Elsa að lokum. - áo
Svefnherbergisdrama
í Reykjavík
Elsa María Jakobsdóttir frumsýnir stuttmyndina
Megaphone á kvikmyndahátíðinni RIFF í dag.
FRUMSÝNIR Á RIFF Elsa María Jakobsdóttir frumsýnir sína fyrstu leiknu mynd á
kvikmyndahátíðinni RIFF í dag. MYND/ÞORBJÖRN INGASON
„Ég er að vinna núna um helgina í
Te og kaffi. Ég er með nóg af verk-
efnum sem ég þarf að byrja á eða
ljúka um helgina fyrir skólann og
svo er ég að undirbúa myndatöku
þar sem ég verð að farða. En ég
ætla þó að leyfa mér að hafa rólegt
og kósý með kærastanum líka.“
Ástrós Erla Benediktsdóttir, förðunarfræð-
ingur og nemi.
HELGIN
„Okkur var bara boðið að gera þetta og okkur
þótti þetta mjög spennandi,“ segir Nanna
Bryndís Hilmarsdóttir söngkona hljómsveit-
arinnar Of Monsters And Men. Nýtt lag sveit-
arinnar, Silhouettes, mun hljóma í kvikmynd-
inni The Hunger Games: Catching Fire sem
frumsýnd verður á Íslandi í nóvember.
„Við tókum lagið upp í stúdíói í Tennes-
see í Bandaríkjunum þegar við vorum þar í
sumar og aðstandendur myndarinnar voru
mjög hrifnir af því. Þetta er mikill heiður
fyrir okkur og ein af mínum uppáhalds hljóm-
sveitum, The National, er einmitt líka með
lag í myndinni, ásamt Coldplay,“ segir Nanna
Bryndís.
Upptökustjórinn Jacquire King rekur hljóð-
verið sem lagið var tekið upp í, en hann var
einnig upptökustjóri á bandarísku útgáfu plöt-
unnar My Head Is an Animal, sem er fyrsta
breiðskífa hljómsveitarinnar. Meðlimir Of
Monsters and Men eru í fríi um þessar mundir
eftir langt og strangt tónleikaferðalag um
heiminn.
„Við erum í fríi núna og erum í raun öll í
sitt hvoru horninu. Það var kominn tími á smá
pásu. Það er skrítið þurfa ekki að fara eftir
einhverju plani alla daga og allt einu getur
maður fengið að sofa út,“ segir Nanna Bryndís.
Ekki hefur verið ákveðið hvort Silhouettes
verði á næstu plötu sveitarinnar. - glp
OMAM með lag í The Hunger Games 2
Nýtt lag með hljómsveitinni Of Monsters and Men mun hljóma í stórmyndinni The Hunger Games 2.
NÝTT LAG Hljómsveitin Of Monsters And Men eiga
lag í The Hunger Games 2. NORDICPHOTOS/GETTY