Fréttablaðið - 15.10.2013, Blaðsíða 17

Fréttablaðið - 15.10.2013, Blaðsíða 17
ÞRIÐJUDAGUR 15. OKTÓBER 2013 L and Rover-verksmiðj- urnar gáfu það upp í síðastliðinni viku að þær ætla að hætta smíði Land Rover Defender-bílsins eftir 67 ára framleiðslu. Nafnið Defender fékk þessi goð- sagnakenndi bíll reyndar ekki fyrr en árið 1990 en engu að síður á hann rætur sínar í bíl sem kom fyrst á markað árið 1948 undir nafninu Series I Land Rover. Defender verður að sjálfsögðu leystur af hólmi með nýjum bíl frá Land Rover og verður hann kynntur árið 2015. Framleiðsla Defender hættir 20. desember árið 2015. Helsta ástæða þess að framleiðslunni á Defender verður hætt er sú að hann stenst ekki þær meng- unarkröfur sem gerðar eru til bílaframleiðenda. Þessar frétt- ir munu örugglega ekki minnka áhuga þeirra sem gætu hugsað sér að eiga þennan sterkbyggða bíl. Þessi bíll hentar aðstæðum hér á landi mjög vel, enda algjör vinnuþjarkur sem ræður vel við erfiðar aðstæður eins og við Ís- lendingar búum við og slíkur bíll veitir eiganda sínum mikið frelsi til að skoða okkar fallega land, ekki síst hálendið. Ísak er með 19 Defendera í sinni þjónustu Mörg þeirra fyrirtækja hérlendis sem bjóða ferðamönnum afnot af jeppum til lengri og styttri ferða á torfærari slóðir eru einmitt með marga Defender-bíla í sinni þjónustu, ekkert þeirra þó í eins miklu magni og fyrirtækið Ísak, sem er með eina 19 slíka bíla. Margir þekkja vel til þessara bíla því 17 þeirra eru með skráning- arnúmerin Ísak 1 til Ísak 17 og eru oft áberandi á götum og slóð- um landsins, þá oft margir saman í för. Ísak býður þeim sem taka slíka bíla á leigu að aka þeim sjálfir, þó svo að í flestum tilvik- um séu starfsmenn Ísaks með í för. Bílunum hefur fjölgað mjög hjá fyrirtækinu en það keypti fyrstu tíu Defender-bíla sína nýja árið 2008. Flotinn hefur stækk- að um nær helming síðan. Móður- fyrirtæki Ísaks, Ísafold, er einn- ig með þrjá Econo line-bíla, einn Toyota Hiace og einn Merce- des Benz Vario-kálf sem að sjálf- sögðu er fjórhjóladrifinn. Nóg að gera yfi r veturinn líka Flestir myndu ætla að útleigan einskorðaðist að mestu við sum- artímann en Jón Baldur Þor- björnsson, aðaleigandi fyrirtæk- isins, segir að svo mikið sé að gera nú að þeir gætu vart verið meira á ferðinni og bókanir fyrir veturinn líti afskaplega vel út. Það er í takt við markmið ferða- þjónustunnar, að nýta þá fjár- festingu sem í ferðageiranum er sem best allt árið. Það hefur greinilega lukkast vel í tilfelli Ísaks. Viðskiptavinir Ísaks eru 85-90 prósent útlendingar, en sí- fellt vinsælla virðist að íslensk fyrirtæki verðlauni starfsmenn sína með spennandi ferðum og leigi vænan flota af Ísak-bílum í ferðir sem Ísak skipuleggur. Jón Baldur hvetur íslensk fyrirtæki til að kynna sér þessar ferðir því gríðarleg ánægja hefur verið með þessar ferðir og margir fara á slóðir sem þeir hafa aldrei farið á áður og kynnast land- inu sínu betur fyrir vikið. Ísak er ávallt með labbrabbstöðv- ar í öllum bílunum og myndast afar góð stemning í kringum það spjall sem á milli bílanna fer. Defender er ekki spurning um líf eða dauða En hvað segir Jón Baldur um þau áform Land Rover að hætta framleiðslu Defender-bíls- ins? „Betri fréttir var að sjálf- sögðu hægt að fá en þó eru marg- ir kostir í stöðunni. Það er að festa kaup á fleirum áður en framleiðslan hættir eða gera eins og við höfum talsvert gert af, kaupa notaða Defender-bíla og halda þeim vel við, eins og við gerum af kostgæfni. Land Rover hefur gefið það upp að annar bíll muni leysa Defen- der af hólmi og líklegt er að hann verði ekki jafn heppileg- ur og núverandi Defender. Lík- lega þurfum við að leita á önnur mið og þá kemur fyrst upp í hug- ann G-Länder wagen frá Merce- des Benz, en hann er gríðarsterk- ur bíll. Umfram allt þurfa þetta að vera alvöru bílar sem þola vel jask og ekki sakar að þeir þoli stærri dekk og aðrar breyting- ar. Ég sé fram á að floti okkar stækki á næstu árum og það eru margir möguleikar í stöðunni. Eitt er víst, eftirspurnin er bara að aukast.“ LAND ROVER HÆTTIR FRAMLEIÐSLU DEFENDER-JEPPANS EFTIR TVÖ ÁR Margir aðilar í íslenskri ferðaþjónustu treysta á Defender en enginn eins og Ísak, sem er með 19 Defender-bíla. BÍLAR LYFTARARAFGEYMAR BETRI ENDING MEÐ EXIDE Endingargóðir og sterkbyggðir rafgeymar fyrir flestar gerðir lyftara. Veldu þaulreynda vöru frá gæðafram- leiðanda. Exide rafgeymarnir fást hjá Olís. PI PA R\ TB W A • SÍ A • 13 18 58 Hafið samband við sérfræðinga Olís í síma 515 1257 eða kjartans@olis.is og fáið nánari upplýsingar.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.