Fréttablaðið - 15.10.2013, Blaðsíða 6

Fréttablaðið - 15.10.2013, Blaðsíða 6
15. október 2013 ÞRIÐJUDAGUR| FRÉTTIR | 6 1. Hversu margir einstaklingar hafa farið á atvinnuleysisskrá frá árinu 2008? 2. Með hvaða liði leika knattspyrnu- konurnar Sara Björk Gunnarsdóttir og Þóra Björk Helgadóttir? 3. Hvað heitir ný skáldsaga Kára Valtýs- sonar? SVÖR: 1. 62 þúsund. 2. LDB Malmö í Svíþjóð. 3. Afl eiðingar. SÝRLAND, AP Fjórir af sjö hjálpar- starfsmönnum voru í gær látn- ir lausir í Sýrlandi, eftir að hafa verið í haldi gíslatökumanna frá því á sunnudag. Þrír þeirra eru frá Rauða krossinum en einn frá Rauða hálfmánanum. Enn eru þrír starfsmenn Rauða krossins í haldi gíslatökumannanna. Óljóst er hverjir stóðu að verki en fólkinu var rænt skammt frá Sar aqeb í Idlib-héraði norðvestan til í landinu. Fjórum hinna rændu var svo sleppt við tyrknesku landamærin í gær. Rauði krossinn segir mannrán geta grafið undan hjálpar starfi í Sýrlandi. - gb Mannrán ógna hjálparstarfi: Fjórir gíslanna lausir í Sýrlandi VEISTU SVARIÐ? Prófaðu Sensodyne vörurnar og finndu muninn. Sensodyne fyrir viðkvæmar tennur D Y N A M O R E Y K JA V ÍK NÝ OG BE TRI HÖNNUN ! TANNBURSTAR OG TANNKREM FYRIR VIÐKVÆM SVÆÐI SKIPULAGSMÁL Mikill meirihluti landsmanna er andvígur því að sveitarfélögin úthluti trúfélög- um ókeypis lóðum til að byggja trúarbygging- ar samkvæmt niðurstöðum skoðanakönnunar MMR. Alls sögðust 71,3 prósent þeirra sem afstöðu tóku í könnuninni mjög eða frekar andvíg úthlut- un ókeypis lóða. Um 18,8 prósent sögðust hlut- laus en tíu prósent sögðust frekar eða mjög fylgj- andi því að trúfélög fái ókeypis lóðir. Halldór Halldórsson, formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga, segir það lengi hafa verið stefnu sveitarfélaganna að afnema hvers kyns undanþágur. „Ég heyrði fréttirnar af þessari könnun og niðurstöðurnar komu mér ekkert á óvart. Bæði hefur viðhorf til svona undanþága breyst og svo er hitt að trúfélög eru umdeildari í dag en þau voru hér áður,“ segir Halldór. Samkvæmt lögum um tekjustofna sveitar- félaga eru kirkjur og bænahús skráðra trúfélaga undanþegin fasteignaskatti. Halldór segir að slíkt hafi einnig átt við um íslenska ríkið en þar hafi orðið breyting á. „Fyrir nokkrum árum borgaði ríkið ekki fast- eignaskatt af sínum eignum nema að litlu leyti. Framtíðarmúsíkin er að útrýma þessum undan- þágum,“ segir Halldór. -eh Formaður Sambands sveitarfélaga segist ekki undrast andstöðu fólks við ókeypis lóðir til trúfélaga: Lengi viljað útrýma öllum undanþágum TRÚFÉLÖGIN GREIÐI SJÁLF Halldór Hall- dórsson segir að skattgreiðendur eigi ekki að bera kostnað af lóðaúthlutunum til trúfélaga. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA ÍTALÍA, AP Kaþólska kirkjan í Róm harðneitar að taka þátt í að jarð- syngja og grafa þýska nasistann Erich Priebke, sem lést í stofu- fangelsi þar í borg á föstudag. Priebke varð hundrað ára fyrr á árinu. Hann var dæmdur í ævi- langt fangelsi árið 1996 fyrir aðild að fjöldamorðum þýskra nas- ista í Ardeatíne-hellunum í Róm. Priebke var á flótta í nær hálfa öld áður en hann var framseldur frá Argentínu. Dóminn afplánaði hann í stofufangelsi heima hjá lögmanni sínum, Paolo Giachini. Kirkjan segir að Giachini verði sjálfur að sjá um útförina. - gb 100 ára deyr í stofufangelsi: Jarðsyngja ekki nasista í Róm LÖGREGLUMÁL Íslenska utanríkis- þjónustan kom því til leiðar um helgina að ungi, íslenski maðurinn sem gripinn var við kókaínsmygl til Buenos Aires í Argentínu á fimmtu- dag var fluttur í skaplegra fang- elsi, fyrst og fremst ætlað útlendingum. Maðurinn, sem er fæddur árið 19 91, var handtekinn á a lþjóða- flugvellinum í Buenos Aires á fimmtudaginn með fjögur og hálft kíló af kókaíni í fórum sínum. Samkvæmt heimildum Frétta- blaðsins var hann þá á leiðinni úr landi, til Alicante á Spáni. Maðurinn var færður í varð- hald í almennt fangelsi, þar sem hann deildi litlum klefa með fjölda manns. Í samráði við sendiráð Íslands í Washington gekk Daniel Koltonski, ræðismaður Íslands í Argentínu, í það að útvega mann- inum lögfræðing og fá hann flutt- an í annað fangelsi, sem gekk eftir. Þar munu aðstæður vera allt aðrar og betri. Samkvæmt heimildum blaðsins hefur maðurinn verið í sambandi við fjölskyldu sína og auk þess hefur verið tryggt að aðstand- endur muni geta komið til hans fjár- munum þegar og ef það reynist nauð- synlegt fyrir lög- mannskostnaði og öðru. Almennt eru fjármagnsflutning- ar til og frá Arg- entínu vandkvæð- um bundnir vegna gjaldeyrishafta. Maðurinn mun hafa farið frá Íslandi í ágúst síðastliðnum og síðan tilkynnt fjölskyldu sinni að hann væri kominn með vinnu í Danmörku. Eftir það spurðist lítið til hans, þangað til hann var hand- tekinn fyrir helgi. Alls er óvíst hversu langan tíma meðferð málsins ytra mun taka en það gætu þó orðið margir mánuðir. Að sögn Karls Steinars Valssonar, yfirmanns fíkniefnadeildar lögregl- unnar á höfuðborgarsvæðinu, hafa íslensk lögregluyfirvöld enn ekki fengið málið inn á borð til sín, þótt búist sé við að svo verði. stigur@frettabladid.is Íslendingnum í Argentínu komið í skaplegra fangelsi Íslendingurinn sem situr inni í Buenos Aires fór frá Íslandi í ágúst og sagði fjölskyldunni að hann væri kominn með vinnu í Danmörku. Við handtökuna var hann á leið til Spánar. Getur nú fengið peninga senda frá Íslandi. Undanfarin ár hafa Íslendingar margsinnis verið handteknir í Suður-Ameríku eða við komuna þaðan með fíkniefni í fórum sínum, og oft er Íberíuskaginn upphaf eða endir ferðarinnar. ➜ Júní 2006 Hlynur Smári Sigurðsson hand- tekinn á brasilískri rútustöð á leið úr landi með það sem hann hélt vera þrjú kíló af kókaíni, en reyndist mestmegnis barnapúður. Hlynur hlaut þriggja ára dóm. ➜ Ágúst 2006 Ingólfur Rúnar Sigurz handtekinn á Guarulhos-flugvellinum í Sao Paulo með 12,2 kíló af hassi við komuna frá Amsterdam. Hlaut sex ára og átta mánaða dóm. ➜ Júní 2007 Karl Magnús Grönvold handtekinn á Guarulhos-flugvelli í Sao Paulo á leið til Lissabon með tvö og hálft kíló af kókaíni í fórum sínum. Karl fékk fjögurra ára dóm. ➜ Maí 2009 Ragnar Erling Hermannsson hand- tekinn á flugvelli í Recife í Brasilíu með sex kíló af kókaíni á leið til Malaga á Spáni. Ragnar bíður enn dóms. ➜ Október 2009 Hörður Sigurjónsson, fyrr- verandi lögreglumaður, handtekinn á Ezeiza- alþjóðaflugvellinum í Buenos Aires á leið til Spánar með fimm kíló af kókaíni. Ekkert hefur frést af dómi yfir honum. ➜ Desember 2009 Ungt par handtekið á Barajas-flugvellinum í Madríd með fjögur kíló af kókaíni við komuna frá Perú. Bæði hlutu sex ára dóm. ➜ Mars 2010 Jóna Denný Sveinsdóttir handtekin á alþjóðaflugvellinum í Líma í Perú á leið úr landi með tvö kíló af kókaíni. Sat af sér dóm. ➜ Júlí 2005 Sverrir Þór Gunnarsson handtekinn í Rio de Janeiro, grunaður um að standa að smygli á 50 þúsund e-töflum til landsins frá Lissabon. Fékk 22 ára dóm. Sverrir hefur frá því um miðjan síðasta áratug búið í Brasilíu, á Spáni og í Amsterdam. Mörg dæmi um smygl til og frá Suður-Ameríku FLUGVÖLLURINN Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Íslendingur er handtekinn fyrir fíkniefnasmygl á Ezeiza-flugvellinum í Buenos Aires. NORDICPHOTOS/AFP ERICH PRIEBKE Dæmdur í ævilangt fangelsi árið 1996. FRÉTTABLAÐIÐ/AP

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.