Fréttablaðið - 15.10.2013, Blaðsíða 19
JÓLAHLAÐBORÐ
ÞRIÐJUDAGUR 15. OKTÓBER 2013 Kynningarblað Matur, skemmtiatriði, borðsiðir og uppskriftir.
Slippbarinn á Icelandair hótel Reykjavík Marina
„Jólin eru öðruvísi hjá okkur. Matseðillinn okkar er ekki
beinlínis hefðbundinn jólamatseðill. Við erum ekkert í reykt-
um og söltum mat heldur leggjum áherslu á létt og ferskt og
óhefðbundið. Hér fær enginn bjúg,“ segir Jóhannes Steinn
Jóhannesson matreiðslumeistari á Slippbarnum á Icelandair
hótel Reykjavík Marina.
Jóhannes segir Slippbarinn kærkomið skjól í yfirþyrm-
andi jólaösinni og þar finni allir eitthvað við sitt hæfi. Mat-
urinn er útbúinn af framúrskarandi kokkum en Bjarni Sigur-
óli Jakobsson, matreiðslumaður á Slippbarnum og Jóhannes
Steinn, hafa báðir hampað titlinum matreiðslumaður ársins.
„Við bjóðum upp á mikið stuð og gífurlega góðan jólamat.
Við vorum í fyrsta skipti með jólahlaðborð í fyrra og því var
mjög vel tekið. Það verður því með sama sniði í ár en þó með
nokkrum viðbótum. Hlaðborðið verður bæði í hádeginu og á
kvöldin og við byrjum 29. nóvember. Eftir það verður það öll
hádegi og kvöld fram á Þorláksmessu. Það finna allir eitthvað
við sitt hæfi hjá okkur og mjög sniðugt fyrir hópa að kíkja til
okkar í hádeginu. Við erum til dæmis með frábært jólapúns
sem kokteilmeistararnir okkar sérblanda af einstakri snilld.
Púnsið setur algjörlega punktinn yfir i-ið á jólunum“ full-
yrðir Jóhannes.
Borðapantanir í síma: 560 8080 – nánari upplýsingar:
www.slippbarinn.is
Boðið verður upp á sushi meðal annars á jólahlaðborði VOX.
MYND/ICELANDAIR HOTELS
Haldið í hefðirnar á Satt Restaurant. MYND/ICELANDAIR HOTELS
Öðruvísi jól á Slippbarnum.
MYND/ICELANDAIR HOTELS
Satt Restaurant á Icelandair hótel
Reykjavík Natura.
„Við höldum fast í hefðirnar á Satt Restaurant enda áralöng
hefð fyrir jólahlaðborði hér á hótelinu. Þetta eru þriðju jólin
okkar síðan við tókum við rekstrinum og við byggjum á því
gamla og góða en þó með nýjum áherslum. Við
skiptum hlaðborðunum okkar niður og bjóðum
meðal annars upp á síldarborð, hangikjötsborð,
heilsuborð, eftirrétta borð og svo framvegis. Salur-
inn er skreyttur með íslenskum jurtum og viði úr
norðlenskri náttúru en Laufey Skúladóttir frá Stóru-
Tjörnum sér um skreytingarnar fyrir okkur,“ segir
Hrafnhildur Steindórsdóttir, veitingastjóri á Satt
Restaurant á Icelandair hótel Reykjavík Natura.
Jólahlaðborðin hefjast fimmtudaginn 14. nóvem-
ber og verða öll fimmtudags-, föstudags- og laugar-
dagskvöld og svo alla daga fram að jólum frá 5. des-
ember. Hádegisjólahlaðborð er einnig á sínum stað.
„Gestirnir okkar koma ár eftir ár og bóka yfirleitt
strax aftur fyrir næsta ár. Guðrún Árný Karlsdóttir
söngkona syngur fyrir gesti eins og hún hefur gert
undanfarin ár og á sunnudögum fáum við jólasvein
í heimsókn í hádeginu. Það er eitthvað fyrir alla fjölskylduna
hér á Satt,“ segir Hrafnhildur.
Borðapantanir: 444 4050 – allar nánari upplýsingar:
www.sattrestaurant.is
Jólin á Icelandair
Hotels
Allir ættu að geta fundið eitthvað við sitt hæfi á jólahlaðborðum
veitingastaða Icelandair Hotels. Á Slippbarnum eru farnar
óhefðbundnar leiðir á meðan gamalgrónar hefðir fá að njóta sín á
veitingastaðnum Satt. Í hátíðarsal Hilton er boðið upp á glæsilegar
jólakræsingar með nýjum og skemmtilegum útfærslum og dansleik.
Jóladýrðin á Hilton Reykjavík Nordica
og VOX Restaurant
„Í hátíðarsal Hilton munum við bjóða upp á jóla-
mat með breyttum áherslum frá því sem áður hefur
verið. Það verður ekki eitt stórt og langt hlaðborð
eins og fólk á að venjast, heldur fleiri smærri borð
og skemmtilegri útfærslur á matnum sjálfum. Við
munum til dæmis bjóða upp á sushi á jólahlað-
borðinu sem við höfum ekki gert áður,“ útskýrir
Páll Hjálmarsson, veitingastjóri á VOX Restaurant
á Hilton Reykjavík Nordica.
„Þá verðum við einnig með jóladansleik í fyrsta
skipti nú í ár frá 22. nóvember til 14. desember.
Pálmi Sigur hjartarson píanóleikari og Erna Hrönn
Ólafsdóttir söngkona verða með okkur eins og
undan farin ár og skemmta gestum meðan á borð-
haldi stendur. Þegar líður á kvöldið bætist Eyþór
Ingi Gunnlaugsson í hópinn með hljómsveit og
skemmtunin breytist í dansleik. Dansinn dunar
svo fram eftir.“ Á VOX Restaurant verður sérstakur
jólamatseðill í boði frá 18. nóvember fyrir þá sem
kjósa framúrskarandi þjónustu og umgjörð á að-
ventunni. Sem fyrr verður jólahádegishlaðborð á
virkum dögum og jólabrunch um helgar.
Borðapantanir: 444 5050 – nánari upplýsingar:
www.vox.is