Fréttablaðið - 15.10.2013, Blaðsíða 31

Fréttablaðið - 15.10.2013, Blaðsíða 31
BÍLAR FRÉTTABLAÐIÐ 315. október 2013 ÞRIÐJUDAGUR Á bílasýningunni í Frankfurt í síðasta mánuði sýndi Ford Vignale-bíl sinn, sem er lúxusút- gáfa af Mondeo-bílnum. Hann verður sá fyrsti sem Ford mun kynna í nýrri lúxusbíladeild sinni. Ford ætlar greinilega ekki að eftirláta þýsku lúxusbílafram- leiðendunum Audi, BMW og Mercedes Benz, sem og Lexus, Infi nity og Acura frá Japan, alveg þennan markað. Ekki er ljóst hve margar bílgerðir Ford ætlar að bjóða undir þessum merkjum en þessir bílar verði á sama verðbili og ST-kraftabílar Ford. Þessir bílar eiga samt að draga að an- nars konar markhóp, sem sækist eftir miklum gæðum og lúxus í bílum sínum. Ford segir að þessi hópur bílkaupenda tilheyri efsta 15 prósenta laginu í verðbili bíla. Vignale-bílar Ford verða víst 10 prósentum dýrari en Titanium- útfærslur, þ.e. dýrustu útfærslur núverandi bíla Ford. Um 500 söluaðilar Ford í Evrópu munu selja Vignale-útfærslurnar og áætla Ford-menn að sala þeirra verði um tíu prósent af sölu allra Ford-bíla í Evrópu, en um fi mm prósent heildarsölunnar í heiminum. Ford ætlar á lúxusbíla- markaðinn Regn - snjór - krap Er bíllinn þinn klár fyrir veturinn? Nýr og fullkominn tölvuhugbúnaður og hágæða ný efni í þvottastöðvum Löðurs. Rain-X býður upp á fullkomna yfirborðsvörn Rain-X verndar bílinn, eykur útsýni og öryggi Rain-X ekki bara fyrir framrúðuna. Rain-X fylgir öllum bílaþvotti í svamp burstastöð Löðurs á Fiskislóð 29 og er fáanlegur á snertilausu þvottastöðvum Löðurs á Grjótahálsi 8 og Fiskislóð 29. Löður kynnir Mælaborðið í Honda Accord er smíðað í einu lagi til þess að koma í veg fyrir að í því hrikti. Innrétting bílsins hefur tekið stórstígum framförum frá síðustu kynslóð. Öll stjórntæki eru einföld og skiljanleg. Ford Mondeo Vignale.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.