Fréttablaðið - 03.12.2013, Page 2
3. desember 2013 ÞRIÐJUDAGUR| FRÉTTIR | 2
SPURNING DAGSINS
LÖGREGLUMÁL Sérsveitarmenn réðust inn í
blokkaríbúð í Hraunbæ í Reykjavík í gær-
morgun og skutu 59 ára karlmann, sem síðar
lést af sárum sínum.
Maðurinn hafði skotið á lögregluna úr
tveimur gluggum á íbúð sinni með haglabyssu,
auk þess sem hann hafði skotið á sérsveitar-
menn inni í stigaganginum. Mikið hættu-
ástand ríkti á svæðinu og stóð það yfir í um
þrjár klukkustundir, eða frá klukkan þrjú um
nóttina til rúmlega sex þegar maðurinn var
yfirbugaður.
Um þrjúleytið var lögreglu tilkynnt um að
háværir hvellir hefðu borist frá íbúðinni og
voru almennir lögreglumenn sendir þangað til
að kanna málið. Sérsveitarmenn voru sendir
þeim til aðstoðar. Þegar þeir reyndu að hafa
samband við íbúann og fengu ekki svar var
hurðin að íbúð hans opnuð og skaut maður-
inn þá að sérsveitarmönnunum. Skotið lenti í
skildi sérsveitarmanns sem kastaðist við það
aftur og féll niður stiga.
Lögreglan dró sig til baka og kallað var á auka
liðsstyrk. Því næst voru íbúðir í stigagang-
inum rýmdar og almennu lögreglumönnunum
komið út. Einnig voru sjúkrabílar kallaðir á
vettvang.
Að því loknu, og þrátt fyrir ítrekaðar til-
raunir til að ná sambandi við byssumann-
inn, og í ljósi almannahættu vegna fólks sem
var á ferli í nágrenni hússins, var ákveðið að
reyna að yfirbuga manninn með gasvopnum.
Þá byrjaði maðurinn að skjóta út um glugga
íbúðarinnar.
„Þetta voru alveg nokkur skot í smá tíma
þar til lögreglan kom,“ sagði einn sjónarvotta
í samtali við Vísi og bætti við að lögreglumenn
hefðu falið sig á bak við jeppa og byrjað að
skjóta inn um glugga. „Ég var inni í herbergi.
Þá var hann hlaupandi um íbúðina í stofunni
og eldhúsinu með byssuna. Hann byrjaði að
skjóta á lögregluna og skaut á bílinn, en þá fór
þjófavörnin í gang. Svo skutu þeir táragasi og
íbúðin fylltist af reyk.“
Samkvæmt fréttatilkynningu frá lögreglu
var ekki ljóst hvort beiting gasvopna hefði
haft fullnægjandi áhrif og þess vegna var
ákveðið að sækja manninn. Þegar sérsveitar-
menn réðust inn í íbúðina skaut hann nokkr-
um skotum að sérsveitarmönnum og hitti í
höfuð eins þeirra sem féll við, auk þess sem
skot fóru fram hjá höfðum annarra. Á þeirri
Byssumaður skotinn til bana
Eftir þriggja klukkustunda umsátur í Hraunbæ var 59 ára karlmaður skotinn af sérsveitarmönnum. Hann lést
af sárum sínum á Landspítalanum. Maðurinn skaut á lögregluna og sérsveitarmenn, sem sluppu við meiðsli.
VEÐUR Veðurstofa Íslands spáir
miklu kuldakasti á landinu frá
miðvikudegi fram á föstudag.
Frostið gæti farið í 20 gráður segir
veðurfræðingur. Bíleigendur eru
minntir á að búa bíla sína undir
frostið.
„Það er kalt heimskautaloft að
síga yfir landið. Það er stór og
voldug hæð suður í hafi sem dreg-
ur heimskautaloftið yfir landið og
veldur þessum mikla kulda,“ segir
Þorsteinn V. Jónsson, veðurfræð-
ingur á Veðurstofu Íslands.
Frostið mun víða verða á bilinu
10 til 15 stig, og staðbundið mun
það fara í 20 stig, segir Þorsteinn.
Hann segir að spár geri ráð
fyrir því að kuldakastið muni
vara fram á aðfaranótt laugardags
þegar suðvestanáttin muni færa
landsmönnum hlýindi.
Sigurjón Bruno, bifvélavirki og
tæknistjóri hjá Bifreiðaverkstæði
Reykjavíkur, brýnir fyrir bíleig-
endum að búa bílana undir kuld-
ann. Kanna þarf frostþol á frost-
legi á vélinni. Sé frostþolið ekki
nóg getur vélin, vatnskassinn og
fleira skemmst í frostinu. Þá þarf
að gæta þess að rúðuúði þoli nægi-
lega mikið frost.
Rafgeymar geta farið í frost-
inu og raki myndast í gamalli olíu.
Hvort tveggja hefur þær afleiðing-
ar að bílarnir fara ekki í gang.
Sigurjón segir að fólk sem fari
reglulega með bílinn sinn í smurn-
ingu þurfi ekki að hafa áhyggjur,
en þeir sem hafi sparað sér það
undanfarið ættu að drífa sig af
stað. - bj
Veðurstofan spáir kuldakasti seinnipart vikunnar með allt að tuttuga stiga frosti:
Bílvélar geta jafnvel skemmst í frostinu
„Hann var hlaupandi um íbúðina,
í stofunni og eldhúsinu með
byssuna. Hann byrjaði að skjóta
á lögregluna og skaut á bílinn.
Svo skutu þeir táragasi og íbúðin
fylltist af reyk,“ segir kona, sem
sá inn um glugga í svefnherbergi
byssumannsins þar sem hann
lagðist í rúm með vopnið. „Hann
tók bara Rambó á þetta, bara
með risabyssu, sest upp í rúminu
og byrjar að skjóta og leggst svo
niður aftur. Síðan hringir lög-
reglan í mig og ég segi að hann
sé í öðru herbergi og þá skjóta
þeir einhverju „uniti“ þarna inn
og kemur bara sprenging.“
➜ Tók Rambó á þetta
„Þegar víkingasveitin kom byrjuðu
þeir að taka fólkið á stigaganginum
hans út bakdyramegin, börn og fólk
á öllum aldri. Svo byrjar þessi skot-
hríð hinum megin og hún stendur
yfir í dágóðan tíma,“ segir íbúi. „Ég
heyrði alveg fimm, sex, jafnvel sjö
„ránd“, alveg örugglega um fimm-
tíu skot.“ Hann segist aldrei hafa
orðið smeykur. „Nei, nei, það voru
fjörutíu löggur fyrir utan. Ég hafði
engar áhyggjur af þessu.“
➜ Um fimmtíu skot
Íbúi í stigagangi byssumannsins
hélt sig inni þar til lögreglan sótti
hann og aðra íbúa.
„Ég fattaði ekki hvað var að
gerast,“ segir maðurinn og kveðst
lítið samband hafa átt við byssu-
manninn. Ég talaði einu sinni við
hann á göngunum. Hann var til-
tölulega nýkominn í stigaganginn
en það var búið að ganga svolítið
á. Hann virkaði sérstakur.“
➜ Virkaði sérstakur
„Ég var alein hérna og hugsað
með mér: „Hvað er að ske?“
Planið orðið fullt af lögreglubíl-
um og sjúkrabílum,“ segir Oddný
Vestmann. „Svo fattaði ég: „Guð
minn góður það er einhver að
skjóta og ég gjörsamlega fríkaði
út,“ segir Oddný sem fór niður til
nágranna sinna.
„Sem var ágætt því þá fyrst
upphófust stórskotin,“ segir hún.
➜ Fríkaði alveg út
Yngri kona segir lætin hafa byrjað
með hvelli um tvöleytið. „Stuttu
seinna komu löggubílar og sér-
sveitin og rýmdu stigaganginn.
Seinna sá ég lögregluna bera
hann út,“ segir hún. Hún kveður
manninn hafa verið skuggalegan
og vandræði verið í kringum hann,
enda hafi hann oft verið drukkinn
„Jú, svona lagað gerist ekki á
hverjum degi,“ svarar hún spurð
hvort hún hafi verið óttaslegin.
➜ Byrjaði með hvelli
„Ég vaknaði við skelli,“ segir eldri
kona, sem fylgdist með úr eld-
húsglugganum ásamt dóttursyni
sínum á menntaskólaaldri. „Ég sá
þegar þeir byrjuðu að skjóta. Mér
þótti þetta voða ömurlegt.“
➜ Alveg ömurlegt
stundu var maðurinn skotinn af sérsveitinni
og hann yfirbugaður.
Sérsveitarmenn reyndu strax að bjarga lífi
mannsins og skömmu síðar var hann fluttur
á slysadeild. Hann var síðan úrskurðaður lát-
inn. Meiðsli lögreglumannanna reyndust ekki
alvarleg og ljóst að hlífðarbúnaður þeirra kom
í veg fyrir mjög alvarleg meiðsli. Einnig er
ljóst að lögreglumennirnir sem fóru fyrst á
staðinn voru í mikilli hættu.
Í tilkynningu lögreglunnar harmaði hún
umræddan atburð og vildi koma á fram-
færi innilegum samúðarkveðjum til ættingja
mannsins. freyr@frettabladid.is
Óttaslegnir íbúar í Hraunbæ vöknuðu upp við vondan draum
Unnur, er bara allt í þessu fína
frá Kína?
„Já, fína Kína/er sem safarík
appelsína/góð fyrir þig og góð fyrir
mig/sem og alla hina.“
Unnur Guðjónsdóttir, hefur heimsótt Kína 37
sinnum og er félagi í Kínversk-íslenska menn-
ingarfélaginu sem fagnar nú 60 ára afmæli.
MÆLT Hægt er að mæla frostþol á
frostlegi bílvéla á bensínstöðvum og
smurstöðvum. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
BANDARÍKIN Bókavefverslunin
Amazon hefur verið að þreifa sig
áfram með að nota ómönnuð flug-
för, svonefnda dróna, til að senda
vörur heim til fólks.
Flugumferðaryfirvöld í Banda-
ríkjunum hafa þó enn ekki gefið
samþykki sitt til þess að drónar
verði notaðir með þessum hætti.
Í viðtali við bandaríska frétta-
skýringaþáttinn 60 mínútur sagð-
ist Jeff Bezos, framkvæmdastjóri
Amazon, þó reikna með að þetta
geti orðið að veruleika innan
fimm ára. Drónarnir geti þá flutt
vörurnar heim til viðskiptavina í
Bandaríkjunum á innan við hálf-
tíma eftir að pöntun berst. - gb
Amazon prófar nýjung:
Heimsendingar
með drónum
PÓSTFLUTNINGADRÓNI Þetta er
tækið sem Amazon hefur verið að
prófa. FRÉTTABLAÐIÐ/EPA
SÝRLAND Navi Pillay, mannrétt-
indafulltrúi Sameinuðu þjóðanna,
segir að rannsókn hafi leitt í ljós að
æðstu yfirvöld í Sýrlandi hafi gefið
fyrirskipanir um árásir, sem falli
undir stríðsglæpi.
Þetta er í fyrsta sinn sem Sam-
einuðu þjóðirnar ásaka Bashar al
Assad Sýrlandsforseta beint um
hlutdeild í stríðsglæpum.
Hún segir uppreisnarmenn í
Sýrlandi einnig hafa gerst seka um
alvarlega stríðsglæpi. Bæði stjórn-
arliðar sem stjórnarandstæðingar
hafi sýnt ótrúlega grimmd. - gb
Mannréttindafulltrúi SÞ:
Assad sakaður
um stríðsglæpi
LÖGREGLAN Fjölmennt lið
lögreglumanna tók þátt í miklum
aðgerðum við Hraunbæ 20 í
fyrrinótt og fram eftir degi.
➜ Íbúar voru fluttir á
brott um miðja nótt og
vettvangurinn girtur af
svo tæknideild löreglunnar
gæti athafnað sig. Til að
byrja með fengu íbúarnir
skjól í Árbæjarkirkju.
FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR