Fréttablaðið - 03.12.2013, Qupperneq 10
3. desember 2013 ÞRIÐJUDAGUR| FRÉTTIR | 10
TAÍLAND Ólgan í Taílandi undan-
farna daga á sér langa sögu, en
átökin snúast um það hvort lýð-
ræðislega kjörin stjórn Yinglucks
Shinawatra forsætisráðherra hafi
rétt til þess að fara með völdin.
Hin gamla valdaklíka auð-
ugra höfuðborgarbúa, sem hafði
stjórnað landinu áratugum saman,
virðist engan veginn geta sætt
sig við að Yingluck, og þar áður
Thaksin bróðir hennar, hafi verið
kosin til valda fyrir tveimur árum
með yfirgnæfandi meirihluta
atkvæða, sem flest virðast hafa
komið frá fátækari landsmönnum
utan höfuðborgarinnar, Bangkok.
Yingluck, rétt eins og Thaksin,
komst til valda með loforðum til
almennings, sem gamla valdaklík-
an segir lýðskrum eitt. Thaksin
var sakaður um spillingu og hlaut
dóm fyrir, og Yingluck er sökuð
um að láta bróður sinn í reynd
stjórna landinu úr útlegð.
Suthep Thaugsuban, stjórnar-
andstæðingurinn sem er í forystu
mótmælanna undanfarið, segist
ekki ætla að linna látum fyrr en
stjórnin hefur hrakist frá völdum.
Hann vill þó ekki láta efna til
nýrra kosninga, enda engan veg-
inn hægt að reikna með því að
Yingluck yrði ekki kosin aftur,
heldur vill hann að völdin fari
til sérskipaðs ráðs, sem óljóst
er hvaða umboð á að hafa til að
stjórna.
Yingluck segist ekki sjá hvernig
hægt sé að verða við kröfum mót-
mælenda án þess að brjóta um leið
gegn stjórnarskrá landsins.
Herinn hefur til þessa kosið
að halda sig til hlés í átökunum,
en fyrir sjö árum tók hann sér
stöðu með höfuðborgarklíkunni
og steypti stjórn Thaksins af stóli.
Herinn hafði þá margsinnis í
sögu landsins gripið inn í pólitísk
átök með því að gera stjórnarbylt-
ingu. Alls hefur herinn í Taílandi
átján sinnum steypt stjórn lands-
ins af stóli, eða reynt það.
gudsteinn@frettabladid.is
Átök harðna
í Taílandi
Leiðtogi mótmælanna í Taílandi segist staðráðinn í að
linna ekki látum fyrr en ríkisstjórnin hefur hrakist frá
völdum. Deilurnar eiga sér margra ára aðdraganda.
ÁTÖK Í BANGKOK Vel stæðir íbúar höfuðborgarinnar virðast engan veginn geta
sætt sig við stjórnina. FRÉTTABLAÐIÐ/EPA
ÚKRAÍNA, AP Búist er við því að
vantrauststillaga á ríkisstjórn
Úkraínu verði borin undir atkvæði
þingmanna, jafnvel strax í dag.
Þingfylgi stjórnarinnar hefur
minnkað nokkuð síðustu daga,
en bæði sumir stjórnarliðar og
óháðir þingmenn, sem hafa stutt
stjórnina, hafa nú hlaupist undan
merkjum.
Ólgan á þingi stafar af ákvörð-
un stjórnarinnar um að hætta við
að undirrita samstarfssamning
við Evrópusambandið í síðustu
viku.
Fjölmenn mótmæli hafa verið
nánast daglega á Sjálfstæðistorg-
inu í höfuðborginni Kíev, og er
farið að nefna torgið Evróputorg.
- gb
Ríkisstjórn Úkraínu berst fyrir lífi sínu:
Þingfylgið minnkar
EKKERT LÁT Á MÓTMÆLUM Mótmælendum í Kíev fjölgaði til muna um helgina,
eftir að lögreglan beitti valdi. FRÉTTABLAÐIÐ/EPA
lÍs en ku
ALPARNIR
s
www.alparnir.is
GLERÁRGÖTU 32, AKUREYRI, SÍMI 461 7879 • KAUPVANGI 6, EGILSSTAÐIR, SÍMI 471 2525 • FAXAFENI 8, REYKJAVÍK, SÍMI 534 2727
Góð gæði
Betra verð
Góðar jólagjafi r
Led-ljós, verð frá kr. 995
Hitabrúsar, verð frá kr. 3.500
Göngustafir,
verð frá kr. 9.995
Húfur, verð frá kr. 5.995 Hanskar,
verð frá kr. 6.995
MICROspikes
keðjubroddar
Tilboðsverð kr. 9.995
með geymslupoka
Ennisbönd og höfuðklútar
ýmsir litir, merino ull og fleece,
verð frá kr. 2.995