Fréttablaðið - 03.12.2013, Page 11
ÞRIÐJUDAGUR 3. desember 2013 | FRÉTTIR | 11
SVÍÞJÓÐ Aðeins tvö af tíu tilkynntum tilfell-
um um ofbeldi gegn konum í nánum sam-
böndum í Svíþjóð eru upplýst. Mikill munur
er á því hvernig lögregluembættum tekst
að leysa málin. Þetta skrifar Magnus Lind-
gren, framkvæmdastjóri óháðu samtakanna
Öruggari Svíþjóð, í aðsendri grein í Dagens
Nyheter.
Af þeim 80 þúsundum slíkra brota sem
kærð voru 2008 til 2012 upplýstust aðeins
17 þúsund þannig að hægt væri að tengja
geranda við brotið. Lindgren bendir á að til-
kynningum um ofbeldi hafi fjölgað á tíma-
bilinu en brotunum sem upplýst voru hafi
fækkað á sama tíma úr 23 prósentum 2008
í 19 prósent 2012. Það sé athyglisvert vegna
aukinna fjárframlaga til réttarkerfisins.
Lindgren bendir jafnframt á að það fari
eftir því hvar konur, sem verða fyrir ofbeldi
í nánum samböndum, búa hversu vel tekst
að upplýsa brotið. Hann segir að skýring-
arnar sem sérfræðingar innan lögregl-
unnar, saksóknarar, starfsmenn kvennaat-
hvarfa og aðrir gefa séu þær að skortur sé á
þekkingu og stjórnun í þessum málum auk
þess sem ekki sé tekið vel á móti konunum.
Menn bentu einnig á að erfitt væri að sanna
málin. - ibs
Óháð samtök í Svíþjóð um ofbeldi gegn konum í nánum samböndum segja lögreglu skorta kunnáttu:
Ofbeldi óupplýst vegna skorts á þekkingu
DANMÖRK 25 nemendur í borgar-
hlutanum Østerbro í Kaupmanna-
höfn, sem mættu illa í skólann,
hafa frá því í fyrra fengið aðstoð
yfirvalda við að vakna á morgn-
ana. Það er með samþykki foreldr-
anna sem ráðgjafar koma heim
til barnanna, gefa þeim morgun-
mat og koma þeim út um dyrnar í
tæka tíð.
Í sumum tilfellum hefur verið
nóg að hringja í börnin sem ýmist
koma frá fjölskyldum með vanda-
mál eða fjölskyldum þar sem for-
eldrarnir fara snemma til vinnu.
Taka á upp verkefnið í fleiri
hverfum. - ibs
Tilraun danskra yfirvalda:
Vekja morgun-
svæfa nemendur
NOREGUR Þegar fjarskiptamið-
stöð sænska hersins fékk aðgang
að fjarskiptanotkun í Svíþjóð fékk
hún samtímis aðgang að fjarskipt-
um Norðmanna þar sem mestur
hluti fjarskipta þeirra við útlönd
fer í gegnum Svíþjóð.
Þetta segir norski stjórnmála-
maðurinn Michael Tetzschner.
Hann segir norsk stjórnvöld hafa
tekið upp málið við Svía. Tetzsc-
hner segir Norðmenn vilja fá
tryggingu fyrir því að fjarskipti
Norðmanna falli ekki undir eftir-
lit Svía. Slíkt sé andstætt norskum
lögum. - ibs
Eftirlit sænska hersins:
Skoða fjarskipti
Norðmanna
OFBELDI Sérfræðingar í Svíþjóð segja lögregluna
ekki hafa næga þekkingu til að rannsaka ofbeldi gegn
konum í nánum samböndum. FRÉTTABLAÐIÐ/TEITUR
*Á meðan birgðir endast
©DISNEY
GLÆSILEG GJÖF FYLGIR
FRAMTÍÐARREIKNINGI
Við stofnun eða innlögn á Framtíðarreikning
barns að upphæð 5.000 kr. eða meira fylgir
alfræðibókin Jörðin frá Disney með sem gjöf.
Tilvalin jólagjöf sem vex með barninu.
Komdu við í næsta útibúi Arion banka.
Framtíðarreikningur — gjöf til framtíðar
KJARASAMNINGAR Samninga-
nefndir landssambanda og félaga
innan Alþýðusambandsins
fóru í gær yfir hugmyndir sem
ræddar hafa verið innan samn-
inganefndar ASÍ og í viðræðum
við Samtök atvinnulífsins um
ramma að nýjum kjarasamningi.
Menn ætla að halda áfram í dag að
skoða þessar hugmyndir.
Fái hugmyndirnar brautargengi
má búast við að viðræður við
atvinnurekendur fari á fulla ferð
seinni hluta vikunnar og þá hefjist
jafnframt viðræður um launaliði.
- jme
Ræða stöðu kjarasamninga:
Viðræður
á fulla ferð
FÉLAGSMÁL Hvatningarverðlaun
Öryrkjabandalags Íslands 2013
verða veitt í dag í tilefni af
alþjóðadegi fatlaðra. Verðlaunin
eru veitt þeim sem stuðlað hafa
að einu samfélagi fyrir alla, segir
í tilkynningu. Alls bárust 48 til-
lögur um 39 aðila í þremur flokk-
um: flokki einstaklinga, flokki
fyrirtækja og flokki umfjöllunar.
Verndari verðlaunanna er for-
seti Íslands og mun athöfnin fara
fram í Silfurbergi í Hörpu. - eb
Samfélag fyrir alla:
Hvatningar-
verðlaun
ÖBÍ veitt
KJARAMÁL Aðildarfélög innan ASí
ræða stöðu kjarasamninga í dag.